Úrval - 01.12.1971, Qupperneq 65
Nýtt vopn
í barátt-
unni gegn
glæpum
Óháð fréttablað í Detroit
hefur fundið upp aðferð,
sem hefur aukið stórlega
áhrifamátt lögreglunnar.
'M kömmu eftir klukkan 9 f. h. þann 18. ágúst 1967 lagði
Don Damon póstbíl sínum framan við veitingahúsið
„Tasty Sandwich Shop“ i Marshall, Michigan og varð
skömmu síðar óvitandi að liandbendi morðingja. —
Hann gekk inn á veitingahúsið og rétti eiganda stað-
arins, Paul Puear brúnan pakka. Utan á pakkann var ritað nafn
eiginkonu Puyears, Nólu. Hún var þarna nærstödd, og var að
steikja egg og' flesk fyrir viðskiptavin. Ilún þerraði hendur sin-
ar á dulu og opnaði pakkann. Ilún lézt samstundis, þegar inni-
hald pakkans sprakk i andlit hennar.
Frú Puyear, kona lág vexti, feitlagin og næsta málglöð, var
mjög vel liðin i Marshall. Enginn gat ímyndað sér að einhver
hefði áhuga á eða ætlaði sér að drepa hana. Lögreglumenn gátu
tínt til rifrildi af hrúna pappírnum utan af pakkanum. og þann-
ig kannað rithönd þess sem skrifaði nafn fórnarlambsins á liann.
ÚDRÁTTUR ÚR ROTARIAN EFTIR JAMES STEWART GORDON
Allir, sem gætu haft hina allra minnstu ástæðu til að myrða frú
Puyear, voru spurðir og ritliandir þeirra athugaðar. Árangur
þessara athugana varð enginn. Þótt lögreglan í samvinnu við
póstyfirvöld athugaði meira en 50.000 undirskriftir í skjölum
póstsins, vinnuskjölum i verksmiðjum bæjarins og atkvæða-
seðlum, fannst ekkert sem g'æti brugðið ljósi yfir þetta mál.
Þá, 30 dögum eftir morðið, og lögreglan orðin ráðalaus, fór
póststarfsmaður að nafni M. P. Wood að liitta Boyd Simmons,
fréttastjóra blaðsins Detroit News, sem er útbreiddasta síðdegis-
blað í Bandaríkjunum. Va,r erindi lians að athuga hvort „News“
gæli notað „Ieynivitnið“ sitt til að hjálpa við lausn þessa máls.
Simmons, laglegur og hroshýr maður, sem fyrrum var dug-
legur lögreglufréttamaður, tottaði eilífðarvindilinn sinn og sagði
Wood að klausa um málið myndi birtast á forsíðu „News“ dag-
inn eftir. „News“ myndi hjóða 3000 dollara lióknun fyrir upp-