Úrval - 01.09.1975, Side 14

Úrval - 01.09.1975, Side 14
12 ÚRVAL ur þéttbyggð svæði, þar sem er gnægð af verslunum, veitingahús- um, leikhúsum og mörkuðum. Eina örugga ráðið til þess að drepa borg- irnar er að breyta jarðhæðum þeirra í galtómt olnbogarými. Jane Jacobs benti á þetta fyrir næstum 15 árum í bók sinni „Dauði og líf amerískra stórborga“. En ennþá er samt verið að hrúga upp háhýsum úr gleri, sem hvíla á súlum, þann- ig að á jarðhæð þeirra og á milli þeirra er ekki neitt nema torg, með einstaka gosbrunni eða banka, sem lokar klukkan 3 síðdegis. Slíkar fyrirmyndir að nútíma- borgum hafa í för með sér örugg- an dauða íbúa þeirra. Hér er ekki aðeins um kenningu að ræða. Ein af hættulegustu tískugötum á Man- hattaneyju er 6. breiðgata í New York, en við efri hluta hennar eru næstum eingöngu glerturnar með geysimikið olnbogarými á jarð- hæð. Ég veit það af eigin reynslu, því að ég á heima rétt hjá henni. Þar var áður fjöldi lítilla versl- ana, veitingahúsa, vínstúka og kvik myndahúsa, sem opin voru mest- alla nóttina. Og þá var enginn stunginn með hnífi. Nú getur þar að líta gimsteina á sviði byggingar- listarinnar, en jafnframt er þetta svæði, þar sem líf þitt er í stöð- ugri hættu. Glerveggir, sem festir eru á grind úr stáli eða steinsteypu, er rökréttasta lausn í byggingarmál- um 20. aldarinnar. Sérhver nútímaarkítekt hefur yndi af hinum óviðjafnanlegu eig- inleikum glersins. En sérhver nú- tímaarkítekt hefur einnig lent í vandræðum vegna þessara sérstöku ástamála sinna. Þegar um mikið gler er að ræða, hættir því til að þenjast út og dragast saman. Því hættir til að brotna í óútreikn- anlegum stormum. Það hleypir í gegn of miklum hita eða kulda. Það skapar svo mikið blik, að það þarf dýra baklýsingu til þess að vera mótvægi gagnvart hinni eðli- legu birtu, sem það hleypir í gegn- um sig. í hinni raunverulegu veröld, fremur en í draumaveröld kenn- inga byggingarlistarinnar, eru mikl- ir ókostir við hús, sem eru að mestu leyti úr gleri. Þar er ekki aðeins um að ræða ókosti fyrir þá, sem lifa og starfa innan glerveggjanna, heldur einnig þá, sem lifa og starfa hinum megin götunnar. Sumar af nýrri glerbyggingum okkar hafa haft svo mikla endurkastseiginleika, að þær hafa ,,steikt“ næstu ná- granna, sem þörfnuðust talsvert meiri loftkælingar, eftir að nýju byggingarnar tóku að endurkasta sólarhitanum til þeirra. Við þörfnumst geysistórra sam- býlishúsa í borgum okkar til þess að leysa ógnvænleg húsnæðisvand- ræði. Reynslan af húsbyggingarmálum í Bandaríkjunum síðustu 40 árin hefur sýnt, að háhýsaíbúðum fyrir barnafjölskyldur hættir til þess að verða alger óskapnaður, hversu vel sem húsin og bvggingarsvæðin eru skipulögð. Pruitt-Igoe-hverfið í St.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.