Úrval - 01.09.1975, Síða 15
MISTÖK NÚTÍMA BYGGINGARLISTAR
13
Louis er áhrií'aríkasta dæmið um
slíkt. Þar hafa 36 háhýsi, sem hugs-
uð voru sem athvarf fjölskyldna
með lágar tekjur, algeriega tæmst.
Fólkið hefur allt flutt burt. Nokk-
ur þeirra hafa þegar verið brotin
niður og fram hefur komið áætlun
um að hin skuli fara sömu leiðina.
Slík lausn er versta aðferðin til
þess að leysa húsnæðisvandræði
okkar. Hugsið ykkur bara, hvað
það merkir í raun og veru að búa
í slíku háhýsi, sem byggt hefur
verið með opinberum styrkjum.
Hugsið ykkur hina félagslegu nið-
urlægingu, sem er því samfara að
verða að búa þar. Allir vita, að
tekjur fjölskyldunnar eru undir
vissu lágmarki. Fólkið, sem þar
býr, er neytt til þess að halda áfram
að búa þar, enda þótt þess brýn-
asta þörf sé að búa nær betri at-
vinnu- og menntunarmöguleikum.
Þeir, sem skipuleggja og byggja
slík fjölbýlishús fyrir lágtekjufjöl-
skyldur, eru í rauninni að viðhalda
áframhaldandi aðskilnaði þessa
fólks, enda þótt þeim hafi einungis
gengið gott eitt til. Þeir hindra
þetta fólk í að fá betri atvinnu og
að geta sent börnin sín í betri
skóla. Það er nú alveg ljóst, að
húsaleigu- og húsakaupastyrkir til
handa fólki, sem á rétt á þeim, eru
miklu betri aðferð til þess að koma
þessu fólki til hjálpar í húsnæðis-
vandræðum þess.
Betri og afkastameiri samgöngu-
kerfi munu leysa vandamál borg-
anna, þannig að þær fái staðist.
Lausnin fyrir stórar og vaxandi
borgir, eins og Los Angeles, er ekki
fólgin í því að skipuleggja og hrinda
í framkvæmd betri og afkastameiri
múgsamgöngukerfum, heldur að
skipuleggja og hrinda í framkvæmd
endurskipulagningu, hvað snertir
búsetu fólks, þannig að slík sam-
göngukerfi verði ónauðsynleg. Sam-
göngutæki svo sem bílar, almenn-
ingsvagnar, einsporalestir og neð-
anjarðarlestir munu ekki leysa öll
borgavandamál okkar.
Fyrirmyndarborgin þarfnast alls
engra samgöngutækja nema þess
samgöngutækis, sem sérhver borg-
arbúi hefur umráð yfir frá náttúr-
unnar hendi, þ. e. fótanna. Fyrir-
myndarborgin er borg iðandi mann
hafs á tveim jafnfljótum, en ekki
hraðbrauta, sem er ímynd firring-
arinnar. Fyrirmyndarborgin er svo
troðfull af fólki og atburðum, lífi
og fjöri, að einu glæpamennirnir,
sem þar þrífast eru vasaþjófar, og
eina samgönguvandamálið þar er
breidd gangstéttanna.
Fjöldaframleiðsla húsa og hús-
hluta í verksmiðjum mun leysa flest
byggingarvandamál nútímans.
Gallinn við flestar hugmyndir
okkar um verksmiðjuframleidda hús
hluti og hús er sá, að þær þróuðust
í Evrópu og Japan, þar sem þétt-
býli er mikið og veðurfar og bygg-
ingarreglur með áþekkum hætti,
stutt er á markað og vinnuafl er
tiltölulega ódýrt.
Augljósasta staðreyndin í þessu
sambandi, hvað Bandaríkin snertir,
er hin geysilega stærð þess, sem