Úrval - 01.09.1975, Qupperneq 43
41
HINN OGLEYMANLEGI „SVARTI-JACK“ . . .
við yrðum einnig mjög snyrtilega
klæddir samkvæmt reglugerðinni
og steinþegjandl þegar við héld-
um upp landgöngubrúna).
Galleg'han frétti það í Singapore,
að hann hafði ekki verið hækkaður
í tign og gerður stórfylkishöfðingi
heldur hefði annar hlotið tignina.
Hann varð mjög vonsvikinn, en
ákvað að sanna, að hann og her-
fylki hans sköruðu fram úr öðrum
innan gervallrar herdeildarinnar.
Hann hafði varnarþjálfun þá að
engu, sem ástralskir hermenn voru
látnir fá á Malakkaskaganum, held-
ur þjálfaði hann okkur í frumskóga
hernaði. Aðferðir hans voru gagn-
rýndar. Sumir æðstu vfirmenn
breska flughersins á Malakkaskaea
álitu slíka þjálfun ónauðsvnlega,
iafnvel heimskulega. En Galleghan
var einn þeirra, sem álitu, að stríð
við Japan væri yfirvofandi. Og
þegar bað stríð skall á, var hann
rsiðubúinn.
JAPANSKTR VERÐIR ÁVÍTAÐ-
IR. f ianúar árið 1942, þegar jap-
anir sóttu suður eftir Malakka-
skaga, valdi Gordon Bennett hers-
höfðingi Galleghan úr hópi sex
ástralskra herfylkisforingja til þess
að gera japönum fyrirsát við
Gemenchehbrúna. Sagan um þá
viðureign er nú orðin fræg. Þá voru
slíkar aðgerðir álitnar úreltar, en
Galleghan skinulagði og fram-
kvæmdi fyrirsátursárás, sem er lík-
lega sú mesta og stórkostlegasta,
sem gerð var af fótgönguliðssveit
í síðari heimsstyrjöldinni. Á einni
klukkustund voru 6000 japanir
bu'H’kaðir út, en aðeins einn ástr-
alskur hermaður féll í viðureign-
inni, Þegar viðureigninni var lok-
ið, hurfu „Mjóhundar11 Galleghans
aftur inn í frumskóginn.
Mánuði síðar var stríðinu lokið,
hvað okkur snerti að minnsta kosti.
Japanir hertóku Singapore, og við
fylgdum Svarta-Jack sem herfang-
ar á hinni löngu hergöngu til
Changifangabúðanna.
Japanir ákváðu að flytja her-
tekna hershöfðingja frá Singapore.
Þannig varð Galleghan æðsti yfir-
maður allrar 8. hersveitar ástra-
líumanna. Hann átti erfitt með að
sætta sig við að taka við skipun-
um frá japönum. En brátt tóku
þeir að virða hann fyrir ákveðni
hans, heiðarleika og skynsemi, og
þeir revndu aldrei að hræða hann
með ofstopa og yfirgangi.
Svarti-Jack leyfði ekkert
hirðuleysi meðal hermanna sinna.
Hann bannaði hvers kyns óhrein-
læti, ósnyrtileg skegg og sítt hár,
og hann kom upp rakarastofum til
þess að halda mönnum sínum
snyrtilegum. Eitt sinn vísaði hann
jafnvel subbulega klæddum jap-
önskum varðmönnum burt og skip-
aði þeim að láta ekki sjá sig, fyrr
en þeir væru komnir í vel press-
aða og hreina einkennisbúninga.
Hann sagði hinum furðu lostna
japanska yfirmanni, að slíkir her-
menn gerðu keisaranum skömm og
væru slæmt fordæmi fyrir ástra-
líumennina og aðra fangra.
Á Ástralíudaginn árið 1943 hélt
Svarti-Jack fullkomna hersvningu
með áströlskum fánum og trumbu-
slætti. Japanir voru of furðu lostn-