Úrval - 01.09.1975, Side 111
AÐ MISSA MAKA SINN
109
ingar án þess að hann fái nokkuð
við það ráðið. Iivernig kemst hann
upp úr þessu byldýpi og hvernig
getur hann spjarað sig, í stað þess
að daga uppi með harmi sínum?
Fyrsta skref rnitt í þá átt var að
reyna að meðtaka þennan missi sem
eitthvað, er væri óbreytanlegt. Það
tekur tíma, oft kvalafullan tíma,
að komast að því, að maður „kemst
ekki yfir“ fráfall makans. Það er
ekki mögulegt, ef þú getur ekki
breytt hugarfarinu og ert bundinn
maka þínum áfram af huga og sál.
Ég hef orðið vitni að því, þegar
ekkja nokkur, sem var fremur köld
og hafði góða stjórn á sér, brast
í grát, þegar hún rakst á regnhlíf
mannsins síns, tíu árum eftir að
hún hafði síðast verið notuð. Hvöt
til að rjúka á maka einhvers ann-
ars og segja honum frá einhverju,
er reynsla í beinu framhaldi. Tím-
mn dregur úr sárasta söknuðinum,
en eitthvað óvéfengjanlegt og var-
andi fylgir eftirlifandi maka ætíð.
Það hljómar eins og þversögn að
segja, að svona dapurlegur skiln-
ingur geti hjálpað manni, en þann
ig er það nú sarnt.
Til að hafa sig áfram, verður
maður að búa sig undir að líta
hlutlaust á missi sinn. Margt, sem
eiginmaðurinn gerir, skiptir hjart-
að engu máli, heldur er um að ræða
efnalegan ávinning. Þegar þú við-
urkennir, að þú sér hnuggin yfir
að tapa þessum ágóða, ertu farin
að fá innsýn í vandræði ekkju-
dómsins.
Erfiðleikar mínir voru andlegs
eðlis. Ég er hlédræg. Maðurinn minn
gaf mér sjálfstraust, sem veitti vel-
líðan í daglegu lífi, og samkennd
hans studdi mig í einkalífinu. Sam-
kennd veitir öryggi og það er eig-
inmaðurinn, fremur en nokkur ann-
ar, sem veitir það í ríkum mæli.
Hver stendur með þér, ef einhver
er óheflaður í framkomu við þig?
Hver annar er bandamaður þinn,
þegar þú ert leið og döpur? Hver
annar myndi hugga þig, ef þú ræk-
ir bílinn utan í bílskúrsvegginn og
færir að skæla?
Staða eiginmannsins getur aukið
á virðingu konunnar. Þannig dýrð
er kvenfrelsiskonum ekki að skapi,
en það er staðreynd að konan sól-
ar sig í árangri eiginmannsins, er
hluti af honum í augum heimsins
og hefur oftlega hjálpað til við
sköpun hans. Tap þessa verður ógn-
andi í augum flestra ekkna. Það
varð yfirþyrmandi fyrir mig. Hafði
ég einhvern persónuleika eða af-
komumöguleika? Hvernig gat ég
orðið sjálfstæð vera? Ég fann, samt
sem áður, að það að borða áfram
þrjár máltíðir á dag, svara síman-
um, lesa póstinn og aðrir venju-
bundnir hættir daglegs lífs, drógu
úr missi mínum og ótta við hann.
Það er eins og sumar konur
stækki, þegar þær eru allt í einu
skildar eftir einar. Vinkona mín,
sem varð ekkja, tók stöðu manns-
ins síns sem útgefandi virts tíma-
rits og fréttablaðs. Hún leysti sin
daglegu störf vel af hendi, í raun-
inni er óhætt að segja, að hún hafi
gert bað stórkostlega vel.
Framkvæmdir af sérhverju tagi
létta ekkjunni þessa snauðu daga.
Hlédrægum ekkjum hættir til að
hugsa á þann veg, að fjármál þeirra