Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 60
63
MENNTAMÁL
af djákna sínum nokkrum dögum áður en altarisgangan
fer fram, og spyrzt um leið fyrir um líðan fjölskyldunnar.
Ef atvinnuleysi, veikindi eða aðrir erfiðleikar steðja að,
reynir prestur og djákni sameiginlega að bæta úr því með
ráðum og dáð.
Það er hátíðlegt að sjá þá 50 djákna uppi við altari ásamt
presti sínum, aðstoða við altarisgönguna og njóta síðan
sameiginlega hátíðlega altarissakramentisins.
í djáknastarfið veljast úrvalsmenn, sem njóta álits og
virðingar. Margir landar vorir vestan hafs hafa starfað ár-
um saman í sóknarnefndum kirkna sinna og njóta álits
og virðingar.
Það eru áreiðanlega til 20 manns, karlar og konur, í
hverjum söfnuði í höfuðstaðnum, sem fúslega vildu starfa
með presti sínum á svipaðan hátt og fríkirkjan gerir í mörg-
um löndum heims. Það þarf meira persónulegt samstarf."
Hér lýkur ritstjóri Hlínar grein sinni. Það sem sagt er
um Reykjavík, getur eins átt við um hvaða stað annan í
landi okkar, þar sem verkefni bíða á þessu sviði.
Pétur Sigurgeirsson.
Þjóðkórinn
Fyrir allraörgum árum var sá háttur upp tekinn í útvarpinu að láta þjóð-
kórinn syngja. Það var kór allra landsmanna, sem sátu við útvarpstækin sín,
er dr. Páll ísólfsson stjórnaði forsöngvurum ( ákveðnum dagskrárþætti og
lét þjóðina alla taka undir.
Þessi þáttur gafst mjög vel, enda var dr. Páll vinsæll og ágætur stjórnandi.
Þátturinn vakti þjóðina til samheldni og áhuga á hinum sígildu ættjarðar-
lögum. Hvernig væri að taka þennan þátt upp aftur í útvarpi, eða sjón-
varpi? Hvað, segja „kóríélagar" í byggð og bæ, og væri ekki æskilegt að æska
landsins fengi eitthvað af þeirri tegund sönglistar í fjölmiðlum til að leggja
rækt við og hafa yndi af? — Takið þetta til athugunar, kæru stjórnendur
Ríkisútvarpsins.
P. S.