Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 98
101
HÉRAÐSFUNlíIR
Þá er þess næst að geta að 384 börn voru skírð í umdæminu sl.
ár og þó líklega nokkru fleiri, því að skýrslur vantaði úr einu
prestakallinu fyrir næstum þrjá ársfjórðunga. Þær munu þó hafa
verið sendar suður. Árið þar áður voru skírð 431 barn innan pró-
fastsdæmisins. Fermingar voru 338 og tala altarisgesta 1290.
Kirkjulegar hjónavígslur voru 118 og greftranir 123.
Þá ræddi prófastur næst um kirkjureikningana. Reikningar
höfðu borist seint og illa, og lágu því ekki fyrir endurskoðaðir til
úrskurðar eins og vera ber. Prófastur fór fram á heimild til að
úrskurða þá, með aðstoð síra Þórhalls Höskuldssonar, Möðruvöll-
um, og Kristjáns Vigfússonar, Litla-Árskógi. Sú heimild var veitt.
Þá var lagt fram bréf frá umsjónarmanni kirkjugarða, Aðal-
steini Steindórssyni, þar sem hann leggur til að kosin sé á héraðs-
fundum þriggja manna kirkjugarðanefnd og sé hlutverk hennar að
ráða menn til umferðavinnu við garðana o. fl.
All mikið var rætt um þetta mál og vandkvæði á því að fá menn
til að hirða garðana svo að í lagi sé. Kirkjugarðarnir virðast flestir
hafa það rúm fjárráð, að þeir gætu lagt nokkuð fé að mörkum til
að standa straum af kostnaði við hirðingu þeirra. En víðast hvar
er sama sagan. Menn eru ófáanlegir og þess vegna er hirðingu og
viðhaldi margra kirkjugarða mjög ábótavant. Tillaga umsjónar-
manns kirkjugarða var samþykkt með þeirri breytingu, að kosnir
voru tveir menn til aðstoðar prófasti, og skulu þeir í félagi athuga
um útvegun eða ráðningu manna til að sinna þessu verkefni. í
nefndina voru kosnir síra Þórhallur Höskuldsson, Möðruvöllum og
Aðalsteinn Oskarsson, Dalvík.
Undir liðnum: Onnur mál, var all mikið rætt um sóknargjöld.
Það var upplýst á fundinum að sóknarnefnd einnar kirkju í pró-
fastsdæminu hafði hækkað sóknargjöld í kr. 750,00 til samræmis
við það, sem sóknargjöld eru í Reykjavík. Flestar eða allar kirkjur
í prófastsdæminu eru reknar með miklum halla, allt upp í eina
milljón krónu halla. Slíkt er ekki hægt til lengdar. Það eru gjafir,
sem bjarga kirkjunum svo að þær komast ekki í greiðsluþrot. Það
er dálítið undarlegt ósamræmi í því, að sóknarnefndir eru lögum
samkvæmt skyldar til að sjá um sómasamlegan rekstur og viðhald
kirkna, en svo er þeim sniðinn þröngur stakkur með sóknargjöldin
og af einhverjum annarlegum ástæðum, sem fundarmenn gátu
ekki fyllilega gert sér grein fyrir, eru kirkju- eða sóknargjöld
ákveðin lægri utan Reykjavíkur, af því ráðuneyti, sem fer með
þetta mál. Á fundinum var samþykkt tillaga þess efnis að skora á
kirkjumálaráðuneytið að heimila kirkjum í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi að hækka sóknargjöld allt að leyfðu hámarki sóknargjalda