Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 85
FÉLAGSLÍF
88
Briem á Stóra-Núpi innilegar hamingjuóskir, í tilefni þess,
að hann á þessu ári er fimmtugur að aldri og hefur verið 25
ár í prestsstöðu og hjónabandi. Var fundarstjóra falið á
hendur að semja ávarp til séra Valdimars í þessu skyni, og
senda honum í nafni fundarins.
10. Samþykkt var að senda séra Jóni Helgasyni presta-
skólakennara afskrift af fundargerðinni, og fundarstjóra
einnig falið á hendur að annast um það.
Þá er hér var komið, var liðið langt fram á nótt, og ekki
fleira fyrir til umræðu í bráð.
Mælti þá Friðrik Friðriksson nokkur orð og þakkaði fund-
armönnum fyrir góðvild þeirra, að lofa sér að vera á fundin-
um. Einnig talaði séra Eyjólfur Kolbeins og óskaði fundar-
mönnum gleðilegrar heimkomu og alls góðs. Að lokum
kvaddi fundarstjóri alla viðstadda með hjartnæmum orðum
og uppörfandi áminningum, og sagði því næst fundi slitið.
Zóphónías Halldórsson,
fundarstjóri.
Björn L. Blöndal,
skrifari.
I
I
i
I
&
75
ara
t
?
t
f
Sumarið 1973 varð Prestafélag Hólastiftis 75 ára. Af því tilefni
hélt félagið aðalfund sinn í Sauðárkrókskirkju laugardaginn 28. júlí.
Bæjarstjórn Sauðárkróks bauð til kvöldverðar í samkomuhúsinu
Bifröst, og veizlunni stýrði Halldór Jónsson forseti bæjarstjórnar. í
ræðu, sem hann flutti lýsti hann gleði sinni yfir því, að félagið skyldi
hafa verið stofnað á Sauðárkróki og þakkaði störf þess til heilla fyrir ^
byggðir Skagafjarðar og Norðurland. %
Um kvöldið var kvöldvaka í kirkjunni þar sem ræður fluttu biskup- ^
? inn, herra Sigurbjörn Einarsson, og séra Sigurður Guðmundsson, pró- ^
J fastur, en kirkjukór Sauðárkrókskirkju söng. Meðal gesta voru norsku J;
© prestshjónin, séra Harald og Hanna Hope. Prestshjónin á Sauðár- -5-
króki, séra Tómas Sveinsson og frú Unnur Halldórsdóttir, buðu öll-
(í, um fundargestum eftir kvöldvökuna til kaffidrykkju á heimili sínu,
og þar lauk fundinum um miðnætti.
T «