Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 69
MINNING
72
sonar og konu hans Jakobínu Jakobsdóttur frá Valdastöð-
um. Var kvonfangið Páli gæfuvegur. Frú Guðbjörg Kolka
var mikil húsmóðir, hjartagóð og reglusöm og lét sér mjög
annt um velferð Páls, var gjafmild, gestrisin, og eigi þá síst
við þá er voru nauðleitarmenn. Þá var hún og trúuð kona
og var það henni kært er Páll maður hennar lagði lið kristni
og kristnihaldi. Sjálf var hún um fjölda ára formaður sóknar-
nefndar Blönduóskirkju og hafði umsjón með rekstri henn-
ar. Þau hjón voru bæði kirkjurækin og var Páll oft með-
hjálpari. Þegar Páll fluttist til Reykjavíkur þá varð hann
áhrifamaður fyrir kirkjunnar málum, sat hann í kirkjuráði
1958—72 og var í kjörstjórn ti'l kirkjuþingskosninga. Þá var
hann skipaður í nefnd sem fjallaði um skipulagsmál prests-
setra. Páll Kolka var mikill meðhaldsmaður Skálholtsskóla
og vænti mikils af honum kirkju vorri til framdráttar. Þau
Guðbjörg og Páll Kolka gáfu Skálholtsskóla bókasafn hans,
til minningar um Guðmund son þeirra hjóna. Bókasafn
þetta ber vitni um fjölhæfni Páls.
Guðfræði og trúmál voru Páli Kolka kær viðfangsefni,
enda mun hann hafa álitið þau nákomin læknavísindunum,
lífi og dauða mannsins. Hann var í tölu þeirra lækna, er
gerði bæn sína í einrúmi, áður en hann hóf skurðaðgerðir,
sér til styrktar í trúarhandleiðslu Drottins. Þar var líka hans
ástríka kona, Guðbjörg, honum samdóma, enda örvaði hún
mann sinn til dáða í guðsótta og bænheyrslu til almættisins.
Þeir sem bezt þekktu til, töldu það Páli guðsgjöf að kona
hans lifði hann, svo mikið var hún honum á hans jarðlífs-
reisu.
Frú Guðlijörg Kolka andaðist árið 1974.
Pétur Þ. Ingjaldsson.