Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 148
151
FRÉTTIR
kirkju. Við smíðina vann einnig Friðrik Pétursson, er þá
bjó á Svínavatni, en hann var faðir sr. Friðriks Friðriksson-
ar, æskulýðsleiðtogans mikla.
Kirkjan, sem ekki hefir verið nothæf um nokkurra ára
skeið var flutt á nýjan grunn norðar og hærra í túninu, end-
urnýjuð að viðum í veggjum og þaki og máluð í nær sömu
litum og hún var í upphafi. Verkið var unnið undir umsjá
Þjóðminjavarðar og annaðist Þorsteinn Gunnarsson, arki-
tekt allt eftirlit. Yfirsmiður var Guðmundur Tryggvason
bóndi í Finnstungu, en málararnir Sigurður Snorrason í
Stóru-Gröf og Haukur Stefánsson á Sauðárkróki önnuðust
málningarvinnu. Kirkjan var raflýst og rafhituð og sá Jón
Ingi Ingvarsson, rafvirki á Skagaströnd um raflögn.
Hátíðaguðþjónustan hófst með skrúðgöngu presta úr
Húnaþingi, ásamt vígslubiskupi og tveim fyrrv. prestum
kirkjunnar til kirkjunnar þar sem vígslubiskup Hólastiftis
sr. Pétur Sigurgeirsson flutti ávarp og blessunarorð. Sókn-
arpresturinn sr. Árni Sigurðsson predikaði og þjónaði fyr-
ir altari ásamt vígslubiskupi. Altarigöngu önnuðust sr.
Pétur Þ. Ingjaldsson, prófastur og sr. Birgir Snæbjörnsson.
í lok guðsþjónustunnar talaði sr. Gunnar Árnason, sem
þjónaði kirkjunni um nokkurra ára skeið, og formaður
sóknarnefndar Guðmundur Þorsteinsson bóndi í Holti las
bæn. Söng annaðist söngflokkur úr sókninni undir stjórn
Jóns Tryggvasonar, bónda og söngstjóra í Ártúnum.
Eftir guðsþjónustuna buðu konur úr söfnuðinum til sam-
sætis í samkomuhúsi sveitarinnar þar sem formaður sóknar-
nefndar rakti sögu kirkjunnar og tildrög verksins. Einnig
gat hann nokkurra gjafa er kirkjunni bárust á þessum tíma-
mótum.
Auk annarra gjafa hafði verið stofnaður minningarsjóður
um konu hans frú Soffíu Jóhannsdóttur í Holti, er látizt
hafði fyrr á árinu og var ákveðið að verja andvirði hans til
orgelkaupa. Fjögur börn sr. Björns Stefánssonar fyrrum
prófasts á Auðkúlu, gáfu kr. 40. þús. til kirkjunnar til minn-