Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 103
PÉTUR SIGURGEIRSSON:
Sóknarnefndir
Sögu leikmannastarfs má rekja til postulasögunnar. Þar
er greint frá því, að postulunum 12 í Jerúsalem var um
megn að sinna öllum störfum í frumsöfnuðinum. Þá sögðu
þeir við söfnuð sinn:
„Ekki hæfir, að vér yfirgefum Guðs orð til þess að þjóna
fyrir borðum. Komið því bræður auga á 7 vel kynnta menn
í yðar hópi, sem fullir eru af anda og vizku, og munum vér
setja þá yfir þetta starf. En vér munum halda oss stöðugt að
bæninni og þjónustu orðsins."
Verk þeirra var, að þjóna fyrir borðum, með því að safna
og útdeila matgjöfum, og var það all víðtæk líknarþjónusta.
Kosnir voru 7 menn til þess að annast þessa þjónustu. Þeir
eru allir nefndir á nafn í postulasögunni. Kunnastur þeirra
er Stefán.
Sömu sögu er að segja um verkefni kirkju nú. Prest-
um er í dag um megn að sinna hverju starfi, sem til fellur.
Þess vegna hafa verið til kvaddir menn úr hópi safnaðarins
að annast tiltekin störf, og hafa þeir í hverri sókn verið
settir yfir þau verk.
Lög um sóknarnefndir frá 1907 segja frá í hverju starf
þeirra er fólkið: Sjöunda grein laganna: Sóknarnefnd skal,
auk starfa þeirra, sem henni eru eða verða fengin með sér-
stökum lögum, stuðla til þess, að guðsþjónusta safnaðarins
fari sómasamlega fram, vera prestinum til aðstoðar í því, að
viðhalcla og efla góða reglu og siðsemi í söfnuðinum, styðja
með honum kristindómsfraðslu ungmenna, að halda uppi
samlyndi og friðsemi á heimilum meðal allra í söfnuðinum.
Áttunda grein: Sóknarnefndin annast kirkjusöng og hljóð-