Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 95
HÉRAÐSFUNDIR
98
fundarins sleit prófastur honum með bænagjörð.
Þágu fundargestir síðan kvöldverð í boði prestshjónanna á
Blönduósi sr. Árna Sigurðssonar og konu hans Eyrúnar Gísla-
dóttur.
Pétur Þ. Ingjaldsson.
HÉRAÐSFUNDUR
SKAGAFJARÐARPRÓFASTSDÆMIS 1974
Héraðsfundur Skagafjarðarprófastsdæmis var haldinn í félags-
heimilinu í Hofsósi, sunnudaginn 3. nóvember 1974. Kl. 2 sama dag
var guðsþjónusta í Hofsóskirkju og flutti þar prédikun sr. Ágúst
Sigurðsson á Mælifelli, en altarisþjónustu önnuðust sr. Sigurpáll
Óskarsson og sr. Tómas Sveinsson. Að messugerð lokinni var hald-
ið til félagsheimilsins í Hofsósi og notið þar veitinga, er prófastur
sr. Björn Björnsson þakkaði.
Að kaffihléi loknu setti prófastur héraðsfundinn og minnti á
hlutverk kirkjunnar í mannlegu samfélagi og tilgang héraðsfunda.
Ennfremur minntist hann á afmæli þriggja alda ártíðar sr. Hall-
gríms Péturssonar og ellefu alda afmæli íslandsbyggðar, sem
minnst var á Hólum í Hjaltadal á síðastliðnu sumri með hátíðar-
höldum þann 23. júní. Hin árlega hátíð Hólafélagsins var þar felld
inn í. Sama dag var afhjúpuð stytta af Guðmundi biskupi Arasyni.
Styttuna gerði Gunnfríður Jónsdóttir. í yfirlitsskýrslu sinni, sem
var bæði löng og ýtarleg, gat prófastur margra merkra mála, m. a.
prestastefnu frá síðastliðnu sumri, hjálparstofnunar kirkjunnar
og margs fleira. Loks minntist prófastur þeirra, sem komið höfðu
við sögu kirkjulegra mála, en látist á árinu. Voru það þessir:
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar Róbert Abraham Ottóson, Jón
Sigurjónsson, Ási, Felix Jósafatsson, Sauðárkróki, Bjöm Daníels-
son, Sauðárkróki, Sigurjón Helgason, Nautabúi og Hermann Jóns-
son, Yzta-Mói. Risu fundarmenn úr sætum til þess að votta öllum
þessum mönnum virðingu sína.
Prófastur gat þess, að Knappsstaðir í Stíflu hefðu farið í eyði í
haust, hefðu af þeim ástæðum þækur og flestir munir kirkjunnar
á staðnum verið fluttir í vörzlu prófasts að Hólum. Hefur kirkjan
ekki verið notuð til messugjörðar undanfarin ár.
Að lokinni yfirlitsskýrslu prófasts var orðið gefið laust, og tók
þá til máls sr. Ágúst Sigurðsson og lýsti yfir vanþóknun sinni yfir
því að sveitakirkjur væru lagðar niður, og taldi það hættulega
stefnu. Sr. Sigurpáll Óskarsson taldi, að kirkjusókn í Knappsstaða-