Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 92
95
FÉLAGSLÍF
Áhugamenn hafa þegar lagt um kr. 370 þús. af mörkum
til stofnunar kristilegs lýðskóla á Hólum.
Eitt aðalmarkmið Hólafélagsins allt frá stofnun þess, hef-
ir verið að standa fyrir árlegum Hóladegi í 17. viku sum-
ars, þegar því hefir verið við komið. I sambandi við hinn
árlega Hóladag hefir hátíðaguðsþjónusta farið fram í dóm-
kirkjunni og hátíðarsamkoma að lokinni guðsþjónustu.
Hafa kirkjukórar víða að af Norðurlandi annast kirkju-
söng, ásamt listamönnum er sungið hafa við samkomuna eða
flutt tónverk og andleg ljóð. Erindi hafa jafnan verið flutt
um hin margvíslegustu kirkjuleg efni.
Hóladagurinn hefir jafnan verið fjölsóttur hvaðanæva að
af landinu.
Að morgni Hóladagsins hefir aðalfundur Hólafélagsins
verið haldinn heima á staðnum. Þar hafa m. a. verið rædd
framtíðaráform félagsins. Félagið beitti sér m. a. á sl. ári
fyrir skipulagningu staðarins, í samráði við skipulagsstjóra
og þjóðminjavörð, með tilliti til kirkjulegra stofnana, er fé-
lagið mun beita sér fyrir að rísi á hinum fornhelga stað.
Má í því sambandi nefna staðsetningu biskupsseturs, skóla-
stofanna og í tengslum við þær fyrirhugaðar sumarbúðir.
Stjórn félagsins var löngu ljóst, að brýnasta verkefnið er
bygging nýs steingarðs umhverfis dómkirkjuna og hefir Al-
þingi þegar veitt á fjárlögum ársins 1974 kr. 800 þús. til
þessara framkvæmda. Munu framkvæmdir hefjast við verkið
á þessu sumri. Einnig er fyrirhugað að lagfæra og hlaða upp
Gvendarbrunn.
Fjórðungsþing Norðlendinga, sem allt frá upphafi hefir
haft endurreisn biskupsstólsins á Hólum á stefnuskrá sinni,
hefir lýst fullum stuðningi við stefnu og markmiðum Hóla-
félagsins.
Stjórn félagsins fyrir þetta ár skipa: sr. Árni Sigurðsson,
formaður, sr. Gunnar Gíslason, ritari, Gestur Þorsteinsson,
gjaldkeri, sr. Bjartmar Kristjánsson, sr. Sigfús J. Árnason,
frú Margrét Árnason og Gunnar Oddsson.