Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 118
Fréttir
Prestastefna í Eyjafirði
Prestastefna íslands var haldin í Eyjafirði 26.-28. júní
1973. Hún hófst með guðsþjónustu í Akureyrarkirkju og
þar flutti biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, yfirlits-
skýrsiu sína.
Hann valdi prestastefnunni einkunnarorðin úr 1. Pét.
2, 4—5. Hann sagði:
„Dægurmál eru óteljandi, vandamálin legio. Hver einn
af oss ber sínar spurningar í barmi, sínar byrðar á herðum.
Og kirkja íslands á mörgu að mæta, ýmislegu atlæti. Innri
veilur veikja, ytri aðstæður þröngva, illhryssingur í lofti.
Jesús sagði það fyrir, að kærleikurinn myndi kólna og lög-
málsbrotin magnast. Það var eitt þeirra tákna tímanna, sem
vinir hans áttu að taka eftir til þess að þeir hefðu andvara
á sér. Slíkir eru tímarnir nú. Og ekki þarf að minna á það,
að hann sagði líka fyrir, að falsspámenn myndu koma og
leiða marga í villu. Slíkir eru tímarnir nú. En Drottinn
sagði einmitt í þessu sambandi: Þegar þetta tekur að koma
fram, þá réttið úr yður og lyfið upp höfðum yðar, því að
lausn yðar er í nánd.
Uppréttir, með lyftum höfðum, göngum vér fram undir
merkjum konungs vors. Og tökum eftir vorboðum. Já, tök-
um eftir því, hvernig nútíminn hrópar á lifandi Guð. Hann
gerir það leynt og ljóst, stundum með annarlegri raust og
ókenndum tilburðum, oft með atferli, sem virðist benda í
gagnstæða átt. En oft bert. Ég held, að hið næma skáld,
Jón úr Vör, tali í orðastað margra í þessum hendingum: