Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 166
169
FRÉTTIR
fastsdæmisins. Móti þessu stýrði prófasturinn séra Stefán
Snævarr á Dalvík og var dagskrá hagað á svipaðan veg og
áður með skráningu mótsgesta, helgistund, biblíulestri,
leikjum og íþróttakeppni, og nutu mótsgestir góðrar fyrir-
greiðslu heimamanna. Að áliðnum degi var svo ekið yfir
Lágheiði, gegnum Fljótin og til Hóla i Hjaltadal og þar hélt
mótið áfram á helgum stað kirkjunnar og þótti það vel við
hæfi á þjóðhátíðarári. Við messu í kirkjunni prédikaði séra
Birgir Ásgeirsson, Siglufirði.
Mót þetta tókst í alla staði vel, þótt nokkuð væri áliðið
þegar þeir síðustu náðu til síns heima, þreyttir en ánægðir.
Þ. H.
Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar
Þar sem séttarbræður hafa aðstöðu til þess að hittast, er því svo víða fyrir
komið, að þeir hafi fastan fundartíma og stað til þess að koma saman og
ræða mál sin.
Þannig hafa prestar i Reykjavík hádegisfundi fyrsta mánudag hvers mán-
aðar í Norræna húsinu. Fundirnir eru óformlegir rabbfundir, segir i ný-
komnu bréfi stjórnar Prestafélags íslands, og eru prestar utan höfuðborgar-
svæðisins velkomnir þangað, þegar þeir eru á ferðinni á þeim tíma.
Stjórn Prestafél. Hólastiftis ákvað sl. haust, að hafa fundi með síðdegis-
kaffi að Hótel KEA á Akureyri kl. 2,30 fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Eru félagsbræður sem aðrir prestar velkomnir til þeirra óformlegu rabb-
funda, þegar þeir geta átt leið í bæinn, eða eru staddir á Akureyri. En Ak-
ureyri er sá staður sem flestir félagsbræður eiga stytzt að sækja til. Fyrsti
fundurinn var 4. desember 1974.