Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 88
91
FÉLAGSLÍF
hæfi að leiða hugann að þessu sinni að tilefni þjóðhátíðar-
ársins, og því var sr. Jónas Gíslason, lektor í kirkjusögu
við Háskóla íslands fenginn til þess að flytja erindi. Ræddi
hann um upphaf byggðarinnar í landinu og þá möguleika
að byggð í landinu væri allmiklu eldri en 1100 ára. í þessu
sambandi rakti hann sögu papanna hér og hinna írsku
kristnu áhrifa bæði frá pöpum sem og frá hugsanlegum
kristum þrælum er fylgt gátu hinum norrænu landnáms-
mönnum. Það er vissulega athyglisvert að minnast þess,
þegar haldið er upp á afmæli byggðar í landinu, að ísland
er eina landið í veröldinni, sem hefur haft kristna menn
meðal sinna þegna frá upphafi byggðar í landinu. í síðara
erindu sínu rakti sr. Jónas íslenzka kirkjusögu frá aldamót-
um og fram til ársins 1973 með sérstöku tilliti til guðfræði-
skoðana og kirkjupólitískra hreyfinga. Var mjög mikill
fengur í erindum sr. Jónasar og góður rómur að þeim gerð-
ur. enda urðu umræður hinar fróðlegustu.
Á öllum þessum mótum hefur tiiluvert verið flutt af
skemmtiefni, svo sem upplestrum, stuttum erindum eða hug-
vekjum svo og skugga og kvikmyndasýningum og fl. Síðast
en ekki síst hafa jafnan verið fluttar hugvekjur í helgi-
stundum kvölds og morgna, og í öll skiptin hafa mótsgest-
ir gengið til kirkju að Grenjaðarstað, hlýtt þar á messu og
gengið að Drottins borði. Að messu lokinni hafa þátttak-
endur jafnan notið gestrisni prófastshjónanna á staðnum
og átt með þeim hlýlega samverustund.
Það er von allra þeirra, er að þessum mótum hafa staðið,
að þau megi halda áfram að efla kynni og vináttu prests-
hjónanna í stiftinu og gefa kost á sameiginlegum góðum
stundum. Til þess að svo rnegi takast þurfa sem flestir að
leggja þessu máli lið fyrst og fremst með þátttöku sinni,
því best væri, að engann prest eða prestskonu vantaði að ári.
Ólafsfirði, 4. desember 1974,
Úlfar Guðmundsson.