Skírnir - 01.04.1906, Blaðsíða 64
160
Gróðrarsaga hraunanna á Islandi.
Skírnir.
sandi og ösku og t. a. m. bærinn Fellsmúli stendur á
þess háttar hrauni. Af hraununum norðan við Heklu má
geta Sölvahrauns.
II. Búðahraun.
Gróðurinn þróast ekki jafnsnemma alstaðar um hraun-
ið, eins og ofureðlilegt er, þegar gætt er að, hverja lögun
yfirhorð hraunsins hefir. Þótt gróðurinn sé víða kominn
á hin síðustu stig, eru stórar spildur ekki komnar lengra
en á fyrstu stigin. I gömlu hrauni má þannig glögt deila
öll gróðrarstigin, er talað var um hér á undan, og meira
að segja fjölda millibilsstiga. Til frekari skýringar set eg
hér lýsingu á gróðri í gömlu hrauni, eins og hann lítur
út nú á dögum. Svo mætti ætla, að vandi væri að velja
hraun til þessarar lýsingar, en það er öðru nær; Búða-
hraun er sjálfkjörið, því að það er merkilegast allra hrauna
á íslandi að því er gróður snertir, enda hefir það um
langan aldur haft mikið orð á sér fyrir gróðursæld, að
minsta kosti um Vesturland. Þar við bætist, og að eg
rannsakaði gróður þess ítarlega 1897.
Búðahraun er, eins og alkunnugt er, við Faxaflóa, á
Snæfellsnesi sunnanverðu. Það er allstórt ummáls og
skagar langt út í sjó. Meginið af Búðahrauni er hellu-
hraun, en stórar kringlóttar spildur hafa fallið niður og
takmarkast spildur þessar umhverfis af gjám eða glufum
mismunandi djúpum. Gjárnar eru auðvitað sár þau, er
urðu þegar hraunspildan féll. Samfastar hellur má þó
finna að minsta kosti yfir þvert hraunið, þar sem þjóðveg-
urinn liggur. Er það bezti vegur og mun vera æfagam-
all, því götuslóði hefir troðist víða í bergið. Einkennilega
glymur í hellunum, er riðið er um þær, einkum ef hart
er riðið, því holt er víðast hvar undir. Þar sem hraunið
skagar lengst út í sjóinn er það alt öðruvísi útlits. Yfir-
borðið er jafnara, en við storknunina hefir það stokkið
sundur og molast niður. Líkist yfirborðið hér að nokkru
smágrýtisurðum. Sumstaðar hefir sjáfarsandur borist í
hraunið utanvert og var þar nokkur sandgróður.