Skírnir - 01.04.1906, Blaðsíða 60
156
Grróðrarsaga hraunanna á Islandi.
Skirnir,
skilja, að þar sé lífvænt öðrum háplöntum en þeim, er
eigi eru sérlega sólgnar i vatn, eða þeim, er hafa slíkan
skapnað blaða, að þær geta temprað uppgufan vatnsins
úr plöntulikamanum. Meðal hinna fyrstu plantna, er koma
í hinn nýja mosajarðveg hraunsins, eru því t. a. m. kræki-
berjalyng, móasef, axhæra, blásveifgras, sauðvingull, ló-
gresi, bugðupuntur, geldingalauf, heiðastör o. fl. o. fl. I
fyrstu eru innflytjendur þessir fáir og dreifðir víðs vegar
um mosaþembuna, einn og einn á stangli; en með tíman-
um fjölga einstaklingarnir og fleiri plöntutegundir setjast
að. Brátt skipa plönturnar sér og í félög eftir þeim kröf-
um, sem þær gera til lífsins, og félög þessi taka þau svæði
í hrauninu, er þeim henta bezt. Þannig eru t a. m. all-
stórar spildur þaktar venjulegum lynggróðri, er samsettur
er af krækilyngi, bláberja- og aðalblábei'jalyngi, sortulyngi,
beitilyngi, fjallhrapa, grávíði o. þ. h., en á öðrum stöðum
finnum vér grasgróður og vaxa þar hinar algengustu gras-
tegundir, er jarðvegurinn þar og nokkru rakari en í lyng-
heiðinni. Þessi grastegundafélög eru vísir til grasgróðurs
þess, er síðar skal getið. Sumstaðar má og sjá vísi til
jurtastóðs.
4. gróðrcirstig.
A. K j a r r, s k ó g u r.
Smám saman fara að koma í ljós birkiplöntur hingað
og þangað í lyngheiðinni, og eftir því sem árin líða og
jarðvegurinn eykst, dafnar birkið betur og betur og verð-
ur að lokurn kjarrskógur. Sé birkið ekki skemt með fjár-
beit eða skógarhöggi, má óhætt fullyrða, að víða kemur
fram reglulegur skógur samsettur af trjám með beinum,
óklofnum stofni. Innan um birkið vex reynir, grávíðir
og gulvíðir, og eru þá tegundir þessar venjulega svipaðar
birkinu að þroska.. Dæmi upp á hraun með kjarrskógi
eru Búðahraun, Eldborgarhraun, Hraundalshraun og Þing-
vallahraun. Eflaust hefir verið miklu meiri skógur í hraun-
um þessum fyrrum og hefir honum auðvitað farið stórum
aftur sökum beitar og skógarhöggs. Hafa hraun þessi