Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1906, Page 60

Skírnir - 01.04.1906, Page 60
156 Grróðrarsaga hraunanna á Islandi. Skirnir, skilja, að þar sé lífvænt öðrum háplöntum en þeim, er eigi eru sérlega sólgnar i vatn, eða þeim, er hafa slíkan skapnað blaða, að þær geta temprað uppgufan vatnsins úr plöntulikamanum. Meðal hinna fyrstu plantna, er koma í hinn nýja mosajarðveg hraunsins, eru því t. a. m. kræki- berjalyng, móasef, axhæra, blásveifgras, sauðvingull, ló- gresi, bugðupuntur, geldingalauf, heiðastör o. fl. o. fl. I fyrstu eru innflytjendur þessir fáir og dreifðir víðs vegar um mosaþembuna, einn og einn á stangli; en með tíman- um fjölga einstaklingarnir og fleiri plöntutegundir setjast að. Brátt skipa plönturnar sér og í félög eftir þeim kröf- um, sem þær gera til lífsins, og félög þessi taka þau svæði í hrauninu, er þeim henta bezt. Þannig eru t a. m. all- stórar spildur þaktar venjulegum lynggróðri, er samsettur er af krækilyngi, bláberja- og aðalblábei'jalyngi, sortulyngi, beitilyngi, fjallhrapa, grávíði o. þ. h., en á öðrum stöðum finnum vér grasgróður og vaxa þar hinar algengustu gras- tegundir, er jarðvegurinn þar og nokkru rakari en í lyng- heiðinni. Þessi grastegundafélög eru vísir til grasgróðurs þess, er síðar skal getið. Sumstaðar má og sjá vísi til jurtastóðs. 4. gróðrcirstig. A. K j a r r, s k ó g u r. Smám saman fara að koma í ljós birkiplöntur hingað og þangað í lyngheiðinni, og eftir því sem árin líða og jarðvegurinn eykst, dafnar birkið betur og betur og verð- ur að lokurn kjarrskógur. Sé birkið ekki skemt með fjár- beit eða skógarhöggi, má óhætt fullyrða, að víða kemur fram reglulegur skógur samsettur af trjám með beinum, óklofnum stofni. Innan um birkið vex reynir, grávíðir og gulvíðir, og eru þá tegundir þessar venjulega svipaðar birkinu að þroska.. Dæmi upp á hraun með kjarrskógi eru Búðahraun, Eldborgarhraun, Hraundalshraun og Þing- vallahraun. Eflaust hefir verið miklu meiri skógur í hraun- um þessum fyrrum og hefir honum auðvitað farið stórum aftur sökum beitar og skógarhöggs. Hafa hraun þessi

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.