Skírnir - 01.04.1906, Blaðsíða 76
172
Ritdómar.
Skírnir
Af kvæðum hans í kveri þessu tel eg bezt: »Draum« og seinni
partinn af »Haustnótt«.
Andlitsdrættir Siguröar Sigurðssonar eru sk/rari. Svipurinn er
ekki stórskorinn, en fríður og prúðmannlegur er hann. Það er
stíll og snið yfir efni og búningi, er 'sýnir, að vel kann Sigurður
að vera með hinni tignu frú, skáldgyðjunni. 011 eru kvæði hans
skáldi samboðin, en bezt þeirra þykir mér »Nóttin )anga«. »Skip-
stjóri nokkur hrapaði um haustnótt fyrir björg í Laugarnestöngum
og lá þar, lærbrotinn, til morgutis«. Um þetta er kvæðið — um
alt það sem er á sveimi kringum dauðvona manninn: Yofur innan úr
Yiðeyjarsundum og afbryðissamar öldur, sem langar í hann, unz
dagur ljómar. Svo vel er frá því kvæði gengið, að ekki mætti
fram hjá því ganga, er samin væri sýnisbók íslenzkra Ijóða.
Að ytri gerð er kverið snoturt. Því er skift í kafla: I. Frelsis-
og föðurlandssöngvar, II. íslenzk náttúra, III. Mansöngvar, IV. Ljóð,
ýmislegs efuis, V. Söngvar. Báðir eru liöf. í hverjum kafla. G. F.
* *
BJÖRN BJARNASON: Nordboernes legemlige Uddannelse i Oldtiden.
Kbh 1905. (Doktors ritgjörð).
Frá því að »Hið norræna fornfræðafélag« á fj rra hluta síðustu
aldar tók að gefa út heimildir að fornsögu Norðurlanda, og hinir
ágætu sagnaritarar Norðmanna, Keyser og Mutieh, um líkt leyti
hófu rannsöknir sínar í því efni, má svo að orði kveða, að aldrei
hafi lint rannsóknunum um fornaldarbókmentir, fornaldarlíf og
fornaldarmenningu Norðurlandabúa. íslenditigar hafa jafnan staðið
framarlega í fylkingu í þessum rannsóknum og lagt drjúgan skerf
til þeirra, enda hafa þeir margra hluta vegna staðið þar manna
bezt að vígi. Þeir eru nákunnir fornmálinu frá barnæsku, og
ýmislegt í lífi og háttum Islendinga, sem haldist hefir fram á
þenttan dag, hefir stundum hjálpað þeim til að raða fram úr atrið-
um, sem útlendingum eru býsna torskilin. Af tnönnum, sem
fengizt hafa við slíkar rannsóknir, má hér helzt til nefna þá
Sveinbjörn Egilsson, Konráð Gíslason, Jón
S i g u r ð s s o n , J ó tt Þ o r k e 1 s s o n e 1 d r a (útgáfur heimildar-
rita, málfræðisraunsóknir), Guðbrand Vigfússon (rita útg.,
söguranttsóknir), Vilhjálm Finsett (stjórnarfars- og lagarann-
sóknir), prófessor B. M. Ólsett (bókmentas., stjórnarfar),
prófessot Fittn Jónsson (textarannsókuir, bókmentas.),
d r. V a 1 t ý G u ð m u n d s s o n (lífshættir og menning) og Jóu
prófast Jónsson (atr. úr fornsögunni). Hór bætist nú nýr