Morgunblaðið - 16.12.1987, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
71
GOSI
ÆVINTÝRI SPÝTUSTRÁKS
Gosi í ným
þýðingu
FJÖLVAÚTGÁFAN hefur gefið
út nýja þýðingn á ævintýrinu um
Gosa, eftir Carlo Collodi.
Þorsteinn Thorarensen hefur
þýtt Gosa úr frummálinu og segir
í fréttatilkynningu Fjölva, að þetta
sé fyrsta óstytta heildarþýðingin á
sögunni á íslensku.
Sl. sumar las Þorsteinn söguna
af Gosa upp í Morgunstund bam-
anna í útvarpinu. I bígerð er að
gefa upplesturinn út á hljóðsnæld-
um og mun sagan í heild þannig
koma út á fjórum 90 mínútna
snældum.
Nýja Gosabókin er skreytt 80 lit-
myndum eftir ítalska listmálarann
Giorgio Scarato. Sagan skiptist í
36 kapítula og er um 120 bls. Fjölvi
gefur bókina út í samstarfi við
Mondadori-útgáfuna á Ítalíu.
Skuggsjá
Skáldsaga eft-
ir Theresu
Charles
BÓKAÚTGÁFAN Skugpjá hef-
ur gefið út nýja skáldsögu eftir
Theresu Charles, sem nefnist
Angela.
I kynningu útgefanda segir m.a.
að bókin §alli um Angelu Smith,
sem kemur til bæjarins Wheystone
frá London. í Wheystone ætlar hún
að sækja um læknisstarf og reyna
að jafna sig um leið í hreinu sveita-
lofti og kyrrlátu umhverfi eftir slys,
sem hún hafði lent í. Hún fær starf-
ið og kynnist í þessu nýja umhverfí
ýmsu fólki sem tekur henni misvel.
Henni er í fyrstu vantreyst sem
kvenlækni og litin homauga sem
persóna, en smátt og smátt vinnur
hún álit og traust fólks."
Angela er 232 -blaðsíður. Bókin
var sett og prentuð í Prisma og
bundin í Bókfelli. Andrés Kristjáns-
son þýddi bókina.
§tP^2
\ aí.*1
HÓLMGARÐI 34, REYKJAVÍK Simar: 672400 - 672401 - 31599
G E RVIH N ATTASJ Ó N VAR P