Morgunblaðið - 28.03.1991, Side 2

Morgunblaðið - 28.03.1991, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTCDAGUR 28! MARZ 1991 Eignm ekki að þurfa að búa við öryggis- leysi í þessari borg - segir Davíð Oddsson „ÞOTT þessir atburdir, sem gerst hafa, kunni að vera túnabundn- ir, er full ástæða til að taka þá mjög alvarlega. Þessir atburðir hljóta að kalla upp öryggisleysi hjá fólki og við eigum ekki að þurfa að búa við öryggisleysi í þessari borg,“ sagði Davíð Odds- son borgarstjóri þegar leitað var álits hans á löggæslumálum í borginni. „Það er óhjákvæmilegt að bregðast við með aukinni löggæslu og virkari löggæslu. Eg hef heyrt eftir lögreglustjóra að teldi sjálfur að lögreglan hefði ekki verið nógu virk. Hann vildi leggja áherslu á að á því yrði breyting. Borgai’yfirvöid hljóta að leggja höfuðáherslu á að við þessari öldu verði brugðist á þann eina máta að styrkja þann mannskap sem á að tryggja það að fólk geti farið óhult um þessa borg,“ sagði Davíð Oddsson. „Ég held að meginatriðið sé að átta sig á því að þegar borg er komin í þá stærð sem Reykjavík er komin í, þá þarf að sjá fyrir miklu öruggara eftirlitskefi en nú er. Við sjáum að það er hægt að tryggja slíkt og tekst víða í borg- um. Eg nefni til að mynda fjöl- menna borg eins og Tókyó, sem er hundraðfalt fjölmennari en Reykjavík. Þar er talið algjörlega öruggt að ganga um hvar sem er að kvöldlagi. Þar er lögregla mjög virk, mjög sjáanleg, staðsett ná- lægt þeim stöðum þar sem fólk fer um. Ekki endilega fjölmennari en hér en nýtist betur og er virk- ari en hér. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort það væri hugs- anlegt að borgin hefði sjálf ákveðna öryggisvörslumenn á sínum snærum sem kæmu til víðbótar hinu venjulega lögreglu- Iiði þegar mikið lægi við en það þyrfti væntaniega lagabreytingu tii að heimila slíkt“ Davíð Oddsson var spurður álits á þeirri skoðun lögreglustjóra að heífta þyrftí opnunartíma sölu- vagna'í miðborginni til að hindra að fólk safnaðist þar saman fram eftir nóttu. „Ég ber mikla virðingu fyrir lögreglustjóra en ég get ekki ímyndað mér að menn ráðist frek- ar á fólk af því að pylsuvagnar séu opnir í borginni,“ sagði hann. Sjá bls. 59. Flugmannadeilan: Morgunblaðið/Ámi Sæberg Samning'anefndir Félags íslenskra atvinnuflugmanna, Flugleida og Vinnuveitendasambands íslands voru kallaðar til samningafundar hjá ríkissáttasemjara kl. 16 í gær, eftir að flugmenn höfðu aflýst boðuðu verkfalli á föstudag. Næsti fundur verður á þriðjudag kl. 14, en nefnd samningsaðila mun fara yfír einstök atriði í kröfugerð flugmanna á næstu dögum. Flugmenn aflýsa verk- fallinu á föstudaginn Samningaviðræður hafnar hjá ríkissáttasemjara FELAG íslenskra atvinnuflug- manna aflýsti í gær boðuðu sólar- hrings verkfalli hjá Flugleiðum, sem átti að hefjast á miðnætti aðfaranótt föstudags. Ákvörðunin var tekin á stjórnarfundi í hádeg- jnu í gær og kl. 16 voru samnings- aðilar boðaðir til sáttafundar hjá ríkissáttasemjara. Stóð fundurinn yfir í tvo tíma og er annar fundur boðaður á þriðjudag. Flugmenn lögðu fram formlega kröfugerð á fundinum og var fallist á að setja niður vinnuhóp til að skoða vinn- utímareglur flugmanna og und- irbúa áframhaldandi viðræður. Flugmenn ákváðu að setjast að samningaborðinu með sameiginlegri samninganefnd Flugleiða og VSÍ. Þá lýsti stjóm félagsins því yfir, að nú væri útséð um að niðurstaða Fé- Iagsdóms í máli Flugleiða gegn FÍA liggi fyrir áður en boðað verkfall komi tii framkvæmda. „Félag íslenskra atvinnuflug- manna vill ekki valda Flugleiðum tjóni með ólögmætum hætti. Meðan einhver minnsti vafi er á því að hið umdeilda verkfall sé iöglegt, vill fé- lagið ekki halda því til streitu og kýs því að afboða það að sinni. Formleg og endurskoðuð kröfugerð verður hins vegar send til Flugleiða og ríkis- sáttasemjara nú þegar og ef ekki nást samningar, mun málinu verða fylgt eftir með verkfalli þótt síðar verði,“ segir í yfirlýsingu stjórnar FÍA í gær. Þar segir einnig að verk- fallsréttur félagsins sé óumdeildur og að ljóst sé að samningaviðræður séu vonlausar fyrir milligöngu VSÍ. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara, var farið yfír stöðu málsins í gær og náðist samkomulag um í hvaða röð einstakar kröfur verða teknar fyrir í viðræðunum. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að verkfallsboðunin Hækkun á gengi Bandarlkjadollars: hefði þegar valdið félaginu nokkru tjóni. 1.200 farþegar voru bókaðir í millilandaflug hjá Flugleiðum á föstudag en gerðar höfðu verið ýms- ar ráðstafanir til að koma þeim á áfangastað með öðrum félögum eða með því að færa til ferðaáætlanir. Þá sagði Einar að lokað hefði verið á bókanir í flug á föstudag umyiokk- urn tíma, sem hefði valdið félaginu einhveiju tjóni. Sagði hann að ekki yrði flogið til Kaupmannahafnar á föstudag og myndu farþegar þangað því þurfa að fara um Osló og til baka um Gautaborg. „Að öðru Ieyti munum við halda uppi flugi sam- .kvæmt áætlun. Fréttir af verkfallinu höfðu borist á ferðamarkaðinn er- lendis og hafa valdið skaða sem er- fitt er að meta,“ .sagði hann. Frystingin eykur framleiðslu þorsks á Bandaríkjamarkað VEGNA hækkunar á gengi dollars eru eigendur frystitogara og hraðfrystihúsa að undirbúa breytingar á framleiðslunni, að auka framleiðslu á frystum þorski fyrir Bandaríkjamarkað sem nú er hagkvæmari en áður en minnka að sama skapi framleiðslu fyrir Evrópumarkað. Styttri tíma tekur að breyta framleiðslunni um borð í frystitogurunum og eru margar útgerðir þegar búnar að breyta um áherslur. Bjami Lúðvíksson framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að með auknu framboði á Bandaríkjamarkað væri hætta á að verðið þar lækkaði eitthvað. Hækkun dollarans setur strik í reikninginn hjá fyrirtækjum sem flytja inn vörur frá Bandaríkjunum og skulda mik- ið í dollurum. Sölugengi dollarans var komið í 59,93 kr. í fyrradag en lækkaði lítil- lega aftur í gærmorgun, eða í 59,74 kr. Um síðustu áramót var gengi dollarans 55,47 kr. og hefur því hækkað um 4,27 krónur, eða 7,7%, á árinu. Lægst fór gengið reyndar í Persaflóastríðinu, rétt fyrir miðjan febrúar, 53,49 kr. Bjarni Lúðvíksson sagði að staða dollarans hefði styricst um 10% gagnvart þýsku marki í þessum mánuði. Taldi hann óraunhæft að ætla að það héldist. „Fiskurinn rennur á milli markaða, fer þangað sem hæsta verðið er greitt og verð- ið jafnar sig eftir framboðinu,“ sagði hann. Framleiðsla á frystum þorski fyr- ir Bandaríkjamarkað hefur aukist ap undanfömu. Bjami taldi að það væri fyrst ögTfemsfvégna þess~ að afli togaranna hefði verið að glæðast en einnig mætti rekja það til þess að verðið í Bandáríkjunum hefði verið að hækka hægt og bítandi. Ahugi manna á þessum markaði ykist um allan helming við styrkingu dollarans að undanfömu. Sagði hann að útgerðir fzystitogar- anna væru sumar þegar búnar að breyta framleiðslunni og sami áhugi væri í frystihúsunum en breyting- amar þar væm vandasamari og tækju lengri tíma. Sigurður Garðarsson, fram- kvæmdastjóri frystihússins Voga hf. í Vogum, sem flytur út ferskan og frosinn físk, aðallega til Banda- ríkjanna, sagði að hækkun dollar- ans lagaði mjög stöðu þeirra sem framleiddu fyrir Bandaríkjamarkað en árið í fyrra hefði verið þeim mjðgerfitt.Hanfr sagðtþó að hækk- un á tillagi í Verðjöfnunarsjóð setti mikið strik í reikninginn, minnkaði það sem fyrirtækið fengi fyrir hvern dollar um 2-3 krónur. Sigurður sagði að fískverð á Bandarílqa- markaði hefði verið óhóflega hátt að undanfömu vegna fiskskorts og það hlyti að lækka við aukið fram- boð. Kemur illa viðýmsa Hækkun dollarans kemur illa við ýmis fyrirtæki. Sigurður Á. Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Jötuns hf. sem flytur m.a. inn bíla frá Bandaríkjunum, sagði að hækkun dollarans raskaði öllum áætlunum fyrirtækisins. Jötunn hefði ætlað að nýta vel lágt gengi dollarans og pantað mikið af bandarískum bílum skömmu áður en dollarinn fór að hækka. Nú yrðu þeir að hækka verð bílanna í takt við hækkun doll- arans. Miðað við það verð sem var á dollar í fyrradag þarf að hækka Chevrolet Corsica úr 1.300 þúsund í 1.417 þúsund og Chevrolet Caprice Classic úr 3.000 þúsund í 3.270 þúsund, eða um 270 þúsund kr. Sigurður sagði að sveiflur á gengi dollars væru erfíðar fyrir fyrirtæki sem flyttu mikið inn frá Banda- ríkjunum. Það væri ákaflega slæmt að hér á landi væri ekki leyfílegt "að kaupa erlendaiTgáldéýri frarir í' tímann eins og tíðkaðist erlendis. Ef það mætti hér hefði Jötunn get- að nýtt sér lágt gengi dollarans fyrr á árinu og tryggt sig fyrir verðsveiflum með því að kaupa gjaldeyri til þriggja mánaða. Við hækkun dollarans frá ára- mótum hækka dollaraskuldir íslenskra fyrirtækja. Til dæmis hækka skuldir Flugleiða vegna end- umýjunar flugflotans um hátt í einn milljarð kr. Á móti kemur að flug- flotinn er endurmetinn í dollurum. Almennt séð hefur hækkun dollar- ans neikvæð áhrif á hag félagsins vegna þess að stærri hluti gjalda en tekna er í dollurum. Ekki hefur orðið vart við aukið framboð hluta- bréfa í Flugleiðum vegna þessa eft- ir þvf sem Morgunblaðið kemst næst og ekki orðið verðbreytingar á gengi hlutabréfanna. Álafoss hefur unnið að því að minnka vægi dollarans í sölu sinni og hafa breytingar á gengi dollar- ans því ekki eins afgerandi áhrif til hins betra hjá félaginu og lækk- un dollarans í fyrra hafði til hins verra. Álafoss skuldar mikið í doll- umm og hækka skuldir félagsins því í takt við hækkun dollarans. Kaup á aðföngum skiptast á milli gjaldmiðla í svipuðu hlutfalli og_ skuTðírl Qlíufélagið hf.: Geir Magnús- son ráð- inn fram- kvæmdastjóri GEIR Magnússon, bankastjóri í Samvinnubankanum, var ráðinn framkvæmdastjóri Olíufélagsins hf. á stjórnarfundi í fyrirtækinu i gær. Geir tekur við af Vilhjálmi Jóns- syni, sem hefur verið framkvæmda- stjóri í 32 ár, en lætur nú af störf- um fyrir aldurs sakir. Geir 49 ára. Hann er kvæntur Kristínu Björns- dottur og eiga þau þijú börn.'"
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.