Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 31

Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIL) FLMMTGDAGUR %8. MAfiZ, ,1991 31 Þau úlskrilasl úr Leiklistaiskólanum: Kjartan Rgqnarsson höfundur oq leikstjóri: Ari Matthíasson Ingibjörg Gréta Gísladóttir Þórey Sigþórsdóttir Þorsteinn Guðmundsson Leikhús þarf aö vera ævintýri Magnús Jónsson Halldóra Björnsdóttir KJARTAN Ragnarsson er höf- undur Dampskipsins Islands og leikstýrir einnig uppfærslu Nem- endaleikhússins á verkinu á stóra sviði Borgarleikhússins. Fram- setningin er óvenjuleg; áhorfend- ur silja í kringum hringsviðið, sem snýst síðan með leikmynd- inni og leikurunum eins og við á, þar sem skipið siglir sem leið liggur til íslands. „Þessi saga er eitthvað sem hefur kitlað rnig í nokkur ár,“ segir Kjart- an. „Ég skálda út frá ýmsu sem vinkona mín, hún Gagga Lund, hefur sagt mér. En leikritið er eng- inn sannleikur og persónumar eru ekki raunvemlegar á neinn hátt, Gagga hitti þær ekki á ferð sinni með Dampskipinu íslandi á sínum tíma. En verkið er innblásið af æskuárum hennar. Hún fékk þessa ferð til íslands í stúdentsgjöf frá foreldrum sínum, þegar hún var L9 ára gömul, og það er sannleikurinn í sögunni. Göggu Lund tileinka ég verkið og vona að það sé henni ekki til skammar. Það er skemmtilegt að með skip- inu frá íslandi í þessari sömu ferð fór Halldór Laxness, þá á leið í sína fyrstu utanlandsferð. Um það má lesa í byijun bókarinnar Úngur ég var.“ Reyni ekkert að prédika — Verkið er um ferð skipsins til Lslands. „Já, um eftírvæntinguna, nýtt ísland er að verða tii, og um borg- aralegar spumingar tilverannar. Verkið mótast mikið af því að í Nemndaleikhúsinu era átta krakk- ar. Ég reyni því að skrifa átta bita- stæð hlutverk, og að gera verkið skemmtilegt fyrir sjálfan mig og aðra í leiðinni. Egill Ólafsson sér um alla tónlist í sýningunni, og leikur einnig ópera- söngvara sem er farþegi á skipinu. Rullan er bókstaflega skrifuð með hann í huga. Það kemur dálítið út frá andblænum, en á þessum tíma voru óperusöngvarar dægurlaga- söngvarar þess tíma, poppstjörnur dagsins í dag, og sérstakar hetjur. Egill er góður leikari og söngvari, og getur næstum sungið í stíl klass- ískra söngvara, svo hann var kjör- inn í hlutverkið. Skipið er eins og form fyrir borg- araLegt samfélag. Því fékk ég tvær dömur í viðbót til að tjá samfélags- tóninn — þær eru samfélagið í hnot- skurn. Drifkrafturinn er kona sem hefur lent í sérstöku starfi erlendis, og er komin út úr öllum normum hinna borgaralegu viðmiða. Fyrir tilverknað hennar get ég látið reyna á hina, kpmið þeim pínulítið úr skorðum. Ég reyni ekkert að pré- dika hvað er rétt og hvað er rangt, heldur bara að bregða upp sem mest ólgandi lífi.“ — Þú vannst verkið frá byijun með sviðsetninguna á hringsviðinu í huga. „Já, en útfærslan er Grétars Reynissonar. Við vinnum þannig saman að maður veit eiginlega ekki hvor á hvað, bæði leikstjórn og leik- mynd. Þegar verið er að skapa verk sem á að vera ein samstæð heild; tónlist, myndlist, leikstjórn og leik- ur, tekst það því betur sem menn ná betur að stilla sálir sínar saman. Það borgar sig ekki að afmarka hlutina of mikið, við förum allir inn á svið hvors annars, þeir Egill og Grétar eiga þannig hlut í leikstjórn- Kjartan Ragnarsson inni. Þeir sátu báðir æfingar, og það finnst mér vera mjög af hinu góða.“ Rækta þarf andrúmsloftið — Hvernig er að fá upp í hend- umar hóp af leikurum sem gjör- þekkja hvem annan. Er það ekki allt annað en að þurfa að byija á að velja leikara héðan og þaðan? „Jú, það er allt öðruvísi. Þetta er í þriðja skipti sem ég vinn svona. Fyrst var það Saumastofan, ég fékk þá hóp af konum, því leikhúsið vildi hafa sýningu í tilefni af kvennaár- inu. Síðan hef ég einu sinni áður unnið með Nemendaleikhúsinu, samdi þá og setti upp leikritið Peysufatadagurinn 1937. Það virk- ar á byggingu verksins hvaða hljóð- færaskipan maður hefur í höndun- um. Og kannski líka á atburðarás- ina, því maður sækist eftir að krakkamir fái öll að spreyta sig og jafnframt þarf verkið að standast sem slíkt.“ Hvemig er að vinna með þess- um nemendum? „Krakkarnir eru búnir að Læra heilmikið og það er mjög gaman að vinna með þeim. Hópurinn er góður og samstilltur. Þegar leikarar koma í leiksýningu úr sitt hvorri áttinni þarf að byija á að búa til andrúmsloft. Þess þarf ekki í svona bekk. Það er mikill kostur hvað þau eru lítið á verði hvert gagnvart öðru. Gott andrúmsloft á vinnustað er forsenda góðs árangurs, og eitt aðalverkefni leikstjóra er að skapa vinnugleði og einhvers konar alvör- uleysi sköpunargleðinnar. Lista- menn verða alltaf að vera að leika sér í fúlustu alvöru. Þeir era at- vinnubörn! Ef listamennimir í sýn- ingunni era ekki barnslega glaðir þegar þeir vinna hlutinn er engin von um að aðrir verði það þegar þeir sjá hann. Áhorfeodur koma aldrei til með að upplifa lengri, stærri og dýpri víddir en við erum sjálf búin að ganga í gegnum og skapa. Höfuðviðfangsefnið er að rækta þetta andrúmsloft sem síðar á að verða andrúm sýningarinnar. En á vissan hátt gengur maður að þessu andrúmslofti í nemendaleik- húsi. Auðvitað er viss hætta á að krakkar, sem hafa gengið saman gegnum súrt og sætt í þijú ár, séu orðnir leiðir hver á öðrum. En þau eiga líka traust og athvarf hvert Morgunblaðið/Einar Falur hjá öðru, svo yfirleitt eru hóparnir góðir.“ Hræddur við að kunna þetta — Leikfélag Reykjavíkur býður Nemendaleikhúsinu að leika í Borg- arleikhúsinu. Er það byijun á nán- ara samstarfi? „Undanfarin ár hefur það verið viðhorf leikhússfólks að einhvers konar samvinna við Nemendaleik- húsið væri æskileg. í gamla daga, þegar ég var að læra, voru leiklist- arskólar reknir á vegum leikhús- anna. Það gerði það að verkum að við voram mikið notuð í aukahlut- verk í leiksýningum húsanna. Smám saman fann fólk að þessu formi, í stað þess að æfa átakamik- il hlutverk væru Leiklistarnemarnir í fullu í að sækja yfirhafnir sem þjónar í hinum og þessum leikritum. Því var skilið á milli leikhúsanna og leiklistarnáms. Það hafði sína kosti, nemendur fengu meiri vinnu- frið, en einnig þá ókosti að þeir voru ekki í sambandi við leikhúsið. Nemendur, og aðstandendur, kvarta þess vegna sáran yfir því að þeir hafi ekki tæknilega notað raddirnar og tæknina í þessum stóru rýmum, og virkilega fengið að takast þannig á við hlutverk leik- arans. Á þennan hátt er komið mikið til móts við þarfir skólans, til að láta krakkana takast á við leik á stóru sviði.“ — Leikrit þín taka oft fyrir ákveðið tímaskeið eða samfélag. „Já, mér finnst það ákaflega skemmtilegt Leiksýning er engin kennslustund í sagnfræði, en að taka hluti aðeins út úr sínum eigin tíma hjálpar manni að komast út úr hversdagsleikanum. Leikhúsið þarf að vera ævintýri. Sá ævintýra- heimur sem ég get gengið inn í er kannski einhverskonar sagnfræði- legur heimur, sem ég get síðan breytt svolítið út frá mínum eigin forsendum, og notað sagnfræðina til þess að ljúga að fólki að það eigi að taka mark á þessu. í leikhúsi vil ég sjá karaktera sem gneista af samspili og átök milli persóna sem heltaka mig. Leikhúsið og umbúnaðurinn allur verður að vera mér upplifun og ævintýri. Ég er hræddastur af öllu við að halda að ég kunni þetta allt saman!“ Viðtal: Einar Falur Ingólfsson Þorsteinn Bachmann Gunnar Helgason
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.