Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR>28. MARZ.1991
45
Páll Pétursson
„íslenskum hagsmun-
um er betur borgið und-
ir íslenskri forsjá en
undir yfirráðum frá
Brussel. Við getum
skapað okkur glæsta
framtíð sem sjálfstæð
þjóð í landi okkar, til
þess þarf einungis
kjark og fyrirhyggju.“
næstu framtíð sé ég aðeins einn
kost fyrir hendi ætli Norðurlöndin
að halda uppi lífvænlegu samstarfi:
Hann er svæðisbundið norrænt sam-
starf innan EB.“
Sennilega geta Danir gert útaf
við norrænt samstarf ef þeir ganga
til þess með svona hugarfari. Nor-
rænt samstarf hefur gert Norður-
lönd að miklu betri íbúum sínum,
en ef það hefði ekki komið til og
svo getur orðið áfram ef rétt er á
haldið. Norrænt samstarf getur orð-
ið heiminum fyrirmynd að nánu
samstarfi þjóða án þess að þátttöku-
ríkin glati sjálfstæði eða fullveldi.
Norræn viðhorf eiga að hljóma hvar-
vetna á alþjóðavettvangi þar sem
færi gefst. Norrænir stjórnmála-
menn og norræn lífsviðhorf eiga
erindi við heiminn. Það verður hins
vegar ekki ef viðhorf Uffe-Elle-
manns Jensens verður ráðandi með-
al norrænna stjórnmálamanna.
ísland og EB
Ég mun ekki ræða tengsl íslands
og EB að þessu sinni. Ég læt ein-
ungis í ljósi þá skoðun að aðild að
EB væri það óskynsamlegasta sem
íslendingar gætu óskað eftir. Við
getum ekki deilt auðlindum okkar
með öðrum. Við megum ekki með
nokkru móti játast undir sameigin-
lega fískveiðistefnu bandalagsins
eins og er ófrávíkjanleg krafa þess
til aðildarríkja.
íslenskum hagsmunum er betur
borgið undir íslenskri forsjá en und-
ir yfirráðum frá Brussel. Við getum
skapað okkur glæsta framtíð sem
sjálfstæð þjóð í landi okkar, til þess
þarf einungis kjark og fyrirhyggju.
Ég frábið mér þess vegna íhlutun
danska utanríkisráðherrans í mál-
efni íslands. Danir eru okkar besta
vinaþjóð og okkur hefur vegnað
betur eftir að Danir hættu að ráða
hér á íslandi.
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, efnir
um þessar mundir til almennra stjórnmálafunda í
öllum kjördæmum landsins.
Næstu fundir verða sem hér segir:
Á ísafirði fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30
Á Akranesi föstudaginn 5. apríl kl. 20:30
Á Blönduósi laugardaginn 6. apríl kl. 15:30
í Njarðvík mánudaginn 8. apríl kl. 20:30
Á Egilsstöðum laugardaginn 13. apríl kl. 13:30
í Vestmannaeyjum mánudaginn 15. apríl kl. 20:30
Allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
FRELSI OG
MAN NÚÐ
Höfundur erformaður þingflokks
Framsókimrflokksins og
fyrrverandi forseti
Norðurlandaráðs.
10. apmtil Benidorm
4 vikur - 48.800 kr.*
*pr. mann — 2 í íbúð. Verðið lækkar ef fleiri
eru saman í íbúð. Góður barnaafsláttur.
Kynntu þér verð hjá okkur.
sv
$
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
m
AÐALSTRÆTI 16
SÍMI 91-621490