Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 76

Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 76
76 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991 Afmæliskveðja: Jón Múli Amason Heill og sæll, góði vin! Var það ekki einmitt um þessi mánaðamót árið 1946 sem Jónas I útvarpsstjóri réð þig tii þularstarfa? Mig minnir það fastlega. Það hefur þá líklega verið frá 1. degi aprílmán- aðar, þegar þú varst rétt búinn að leggja' fyrstu kvartöldina að baki. Síðan eru liðin 45 ár og nær allan þann tíma hefur þú lagt Ríkisút- varpinu til einn sterkasta dráttinn í andlitsmynd þess. Svo að hér var ekki um neitt aprílgabb að ræða árið 1946. I rauninni held ég að segja megi um Jónas I að hann hafi verið býsna glúrinn við manna- ráðningar. Nú eru reyndar liðin fáein ár síð- an þú hættir almennum þularstörf- um, en þó heyrist til þín vikulega í djassþættinum, og mun okkur mörgum þykja það mikil bót í máli. Hérlendis er enginn annar eins kunnáttumaður og þú um þá tónlist- argrein, og væri maklegt að þú yrð- ir sæmdur prófessorsnafnbót út á þekkingu þína og fræðslu á því sviði. Svo er ekki lítilsverð þín eigin tón- sköpun. Þótt hún flokkist undir „hin léttu lögin“ láta þau yfirleitt svo þægilega í eyrum, að manni glaðnar í geði. Þau verða áreiðanlega sung- in áfram um ókomnar tíðir. Á sviði Ijóðs og lags (og á leiksviði) hefur samstarf ykkar bræðranna, Jónasar og þín, verið sérlega skemmtilegt. Víst væri margs að minnast'frá samveru okkar í útvarpinu á fjórða áratug, en ég rifja ekki neitt af því upp hér. Frá minni hlið séð brá aldr- ei neinum skugga á samstarfið, sem var þó æði mikið samanlagt. Oft var líka brugðið á glettni í tilsvörum okkar í milli. Sjálfur ertu húmoristi af fyrstu gráðu og hefur ekki burð- ast með fýlupoka um dagana. Hins vegar getur dottið í þig að beita stríðni og nokkrum ólíkindalátum, eins og t.d. þegar einhverjir vilja stimpla þig sem síðasta stalínistann á voru landi. Þú kippir þér lítt upp við slíkt og hefur bara gaman af að bera í bætifláka fyrir „þann gamla“. Þetta minnir mig á að þakka þér fyrir aðalhlut þinn að því að kynna mér Garðaríki, þegar þú varst í hlut- astarfi hjá MIR árið 1964 og settir saman þriggja manna sendinefnd þangað austur, svokallaða „menn- ingarsendinefnd" (ég set gæsaiappir til vonar og vara). Þá opnaðist sæti á síðustu stundu að kalla og í það skelltirðu mér. Ur þessu varð ein bezta utanlandsreisa mín enda hafði ég hina ágætustu ferðafélaga. Minnast má þess að þann hinn sama dag sem við skoðuðum Kremlarsöfn var Krústjoff, manninum sem fletti ofan af Stalín, bolað úr sínum háa sessi þegjandi og hljóðalaust, þótt það fréttist raunar ekki opinberlega fyrr en við vorum komnir til Len- íngrað daginn eftir. Nú er upp runn- in önnur öld austur þar serrí fær vonandi farsæla þróun áfram. Búið er að leggja niður Varsjár- bandalagið, og förum við þá ekki senn að lifa þann dag að NATO verði úr sögunni og erlent heriið hypji sig héðan á brott. Það sem fyrir augu okkar og eyru bar úr Landsímahúsinu 30. marz 1949 (daginn fyrir afmæli þitt það árið), þegar vopnlaus smáþjóð lét innlim- ast í hemaðarbandalag, geymist að vísu en óþarft er að viðhalda áratug- um saman þeirri óværu sem af hlauzt og hefur amað þjóðlífi okkar fram yfir flest annað og sundrað þjóðareiningu. Jón minn góður. Þessi afmælis- kveðja er lítilfjörleg. Taktu viljann fyrir verkið. En berðu kveðju konu þinni og dætrum með ósk um að við lifum öll þann dag er við getum um alfijálst höfuð strokið. Látum svo ekki EB-glýju villa okkur sýn. Kært kvaddur. Baldur Pálmason „Jón Múli les fréttirnar." Sveitadreng norður í Mývatns- sveit þótti það ekki lítil upphefð að eiga til frændskapar að telja við þá rödd sem allir landsmenn þekktu úr morgunútvarpi og fréttum ríkis- útvarpsins. Hins vegar hafði honum seint komið til hugar að þessi rödd líkamnaðist frammi fyrir sjónum hans. Hún var útvarpið sjáíft þar sem það stóð uppi á skápnum í baðstofunni og flutti fréttir jafnt utan úr heimi, frá Súes og Ungveij- alandi, sem af innlendum vettvangi eins og í landhelgisdeilunni. Hún var líka höfuðborgarsólin sem stundum rann upp á himinhvelið bak við Esju eða Móskarðshnjúka þegar léttar öldur gjálfruðu við Kolbeinshaus eða brotnuðu í fjöru við Skúlagötuna. Hún tengdi alla landsmenn, var þeim samastaður í tilverunni, öryggið sjálft. En svo er það einn síðsumardag undir kvöld að inn í eldhúsdyr í gamla bænum á Grænavatni er allt í einu kominn ókunnur maður og hefur ratað inn göngin og hvergi barið til að gera vart við sig, líkt og hann hefði skömmu áður brugð- ið sér út undir vegg. Henni ömmu minni verður heldur bilt þar sem hún á engra gesta von en ánægju- brosið fer ekki af andliti hennar það kvöld eftir að komumaður segir: „Ég er Jón Múli.“ Jafnskjótt er hann heimamaður, kominn að vitja frænku sinnar og sumardvaiar á unglingsárum meira en tuttugu árum áður, segir sögur og leikur á als oddi. Ekki er hins vegar ör- grannt um að útvarpið verði ekki jafn merkilegt og áður eftir að rödd þess hefur þannig verið svipt dulúð sinni og holdgerst í þröngum eld- húsganginum. Eftir að gesturinn hafði kvatt á bæjardyratröppunni um kvöldið með flatbrauðspart í hendinni var hann ekki lengur bara rödd, heldur raunverulegur afkomandi Jóns Hin- ríkssonar og þingeyskur uppruni hans auk þess staðfestur enn frekar bæði í Reykjahlíðar- og Skútustaða- ætt. Og nú fór að heyrast af honum á öðrum sviðum ásamt Jónasi bróð- ur sínum. I ljóðum og lögum um þær mundir senTbisnissmenn vissu ekkí sitt ijúkandi ráð en vildu fresta jólunum franuí mars til að geta grætt meira. Eða þegar ungir elsk- endur minntust kjarrsins græna inni í Bolabás og létu sig engu skipta hvort allra meina bót fengist við þeirri ókennilegu sýki sem stakk sér niður á meðal jámhausa og nefndist deleríum búbónis. Stund- um fréttist af honum blásandi í básúnu sína fyrir verkalýðinn og jafnvel marserandi í einkennisbún- ingi í kröfugöngum á fyrsta maí. Stundum var hann hins vegar á hann minnst í sambandi við sveiflu og amerískan djass og jafnvel gekk hann svo langt að láta mynda sig með rámum og raddlitlum negra sem hét Armstrong rétt eins og súgþurrkunarmótorarnir sem á þeim árum slógu taktinn í sumar- sinfóníunni á flestum bæjum í Mý- vatnssveit og áttu það til að springa í marga parta. Engu af þessu var unnt að koma heim og saman við gamalgróna þingeyska bændamenningu, en eigi að síður féll maðurinn ekki í áliti á þeim slóðum, og var þó ekki allt talið. Maður að nafni Stalín hafði ríkt austur í Rússíá, var að vísu löngu horfínn úr heiminum en fór hríðversnandi eftir því sem lengra leið frá láti hans. Kepptust þannig flestir við að rífa hár sitt og klæði og afneita persónunni og hlutu að launum vegtyllur ýmsar og upphefð ásamt fyrirgefningu syndanna. En einn var sá sem aldrei baðst afsök- unar á tilveru sinni og skoðunum fyrr og síðar og átti það meira að segja til að rífa kjaft og réttlæta þær í moldviðri fjölmiðla. Auk þess hafði sá hinn sami verið settur inn eftir að hafa mótmælt á Austur- velli að íslendingar væru vélaðir inn í hernaðarbandalag til að tryggja hér ævinleg hersetu og dæmdur í framhaldi af því til missis almennra mannréttinda. Þótt kommúnismi og uppsteyt gegn landsins réttskikkuð- um yfírvöldum væru almennt ekki talið til fyrirmyndar leyfðist Jóni Múla slíkt án þess að missa traúst þingeyskra frænda sinna, enda arf- ur hvers kyns uppivöðslusemi sterk- ur á þeim slóðum eins og átti eftir að koma í ljós síðar. Minning for- feðranna spillti ekki heldur fyrir og þar var nafn afa hans eitt af þeim stóru, hvort heldur var fyrir róttæk- ar kröfur á sinni tíð eða annálaðan glæsileika sem marka má af sög- unni um hinn sanna aristókrat og séntilmann, sem sýndur var íslend- ingi í enskum klúbbi en reyndist vera Jón í Múla. Á fundum herstöðvaandstæðinga og sósíalista þótti það löngum við hæfí að ekki færi annar með fund- arstjóm en Jón Múli, enda maðurinn öðrum fremri á því sviði, ekki síst þegar safna þurfti sjóðum í rauðar fötur. Reyndust þá ýmsir ekki fast- heldnir á síðasta þúsundkall ekkj- unnar þegar hugsjónin krafðist hans með alkunnri rödd sem hver og einn fann snerta við samvisku sinni. Þó minnist ég best er ég ein- hveiju sinni sótti hann í bíl til ein- hvers fundar, en hann mun þá hafa saknað hraðfants síns, að það var ekki fundarefnið sem við ræddum. Nei, allan tímann sagði hann mér sögur af helvítinu honum Skála- glam, sem hann taldi útspekúlerað- astan hesta og hafði kynnst á þeim ámm þegar hann fór með hey- bandslestir heim af Grænavatns- engjum. A sjötugsafmælinu á páskadag óska ég Jóni Múla langrar upprisu í þessu lífí við góða heilsu og flyt honum kveðjur allra Grænvetninga. Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni. Ég er þekktur fyrir að vera ein- faldur sakleysingi, sem þykist kunna skil á flestum hlutum. Á menntaskólaárunum, þegar ég var í fimmta bekk, stóðum við nokkrir félagar af og til fyrir tónlistarkynn- ingu. Þá voru fengnir valinkunnir menn til þess að fjalla um og leika tónlist fyrir nemendur. Á þessum árum var Atli Heimir Sveinsson tónmenntakennari við Menntaskól- ann í Reykjavík þar sem ég stund- aði nám, og héldum við tónlistar- kynningarnar í íþöku. Þar voru frábær hljómflutningstæki og að- staða til hlustunar hin besta. Við, þessir þrír, sem stóðum að tónlist- arkvöldunum, vorum einu sinni sem oftar að velta fyrir okkur næsta tónlistarkvöldi. Það stakk einn okk- ar upp á því að fá Jón Múla til þess að halda djasskvöld og fjalla um Louis Armstrong, en ég, hr. Alvitur, fullyrti að Louis hefði orð- ið sjötugur fyrr um veturinn. Mér var falið að hringja í Jón og biðja hann að kynna Louis í tilefni sjö- tugsafmælisins. í frímínútunum einn morguninn hringdi ég til hans og bar upp erindið. Jón Múli sagði það að Louis hefði orðið sjötugur í hitteðfyrrra og það væri marg- búið að fjalla um hann á þessum forsendum. Ég varð eins og illa gerður hlutur, spurði hvort einhver annar stórsveiflumeistari, t.d. Duke Ellington, væri ekki nýlega orðinn sjötugur. Jón Múli hló, og sagði að það yrði ekki fyrr en á næsta ári, og samtalið varð ekki lengra. Ég fór á fund félaga minna, og missti titilinn „Hr. Alvitur" hvað tónlist varðaði. Þetta voru ein fyrstu kynni mín af Jóni Múla, sem verður sjötugur á páskadag, 31. þ.m. Seinna meir áttu kynnin eftir að verða meiri og nánari. Jón Muli hóf störf hjá Ríkisút- varpinu á miðjum fimmta áratugn- um, vann meðal annars á frétta- stofunni aðstoðaði Þorstein Ö. á leiklistardeildinni, en langþekktast- ur mun hann vera fyrir morgunút- varpið, en hann átti hugmyndina að því. Jafnframt þessu haslaði hann sér völl sem einn besti laga- höfundur landsins og átti þátt í að semja söngleiki með Jónasi bróður sínum og Stefáni Jónssyni frétta- manni. Það er fýrst og fremst morgunútvarpið sem mig langar til að rabba um hér. Það var árið 1961 eða 2 sem ég heyrði talað um að nú ætti að byija að útvarpa klukkan 7, en útvarpið hafði alltaf byijað klukkan 8 með morgunbæn. Þá var ég nemandi í Blindraskólanum í Reykjavík og þar bjó einnig mikið af gömlu fólki, sem vann hjá Blindravinafélagi ís- lands, en það starfrækti einnig Blindraskólann. Það sagði að spennandi yrði að vita hvernig strákurinn hans Áma frá Múla myndi klára sig frá þessu, þar sem hann væri lífsglaður og léttlyndur með afbrigðum. Ég var þá á 10. ári og vitið ekki meira en guð gaf. En það bar til með undarlegum hætti að ég heyrði fyrsta morgun- útvarpið hans Jóns Múla. Þannig var að nokkrum dögum áður kvikn- aði í einu herbergi í húsinu þar sem ég bjó. Ég hafði ekki hugmynd um þetta fyrr en aldraður tvíburabróð- ir minn, þá bráðungur, vaknaði með ákafan hlustarverk, og ég fór að leita hjálpar. Þá var mér sagt hvað gerst hafði fyrr um nóttina. Ég varð ofsalega hræddur og fékk óteljandi martraðir næstu nætur. Foreldrar mínir höfðu gefíð mér lítið útvarpstæki sem stóð á nátt- borðinu og það kom fyrir að ég sofnaði út frá því á kvöldin. Svo var það eina nóttina að ég vaknaði og heyrði snark og bresti einhvers staðar. Ég lá í einu svitabaði og fannst að eldurinn myndi þá og þegar gleypa mig, og enginn mamma eða pabbi til að kalla í. Svona leið nóttin, og ég svitnaði meir og meri. Allt í einu hætti snarkið og gamla, góða útvarps- klukkan sló 7 högg, einu höggi færra en venjulega. Ég hrökk í kút og sperrti eyrun. Það heyrðist mild og frekar dimm karlmannsrödd sem sagði: „Útvarp Reykjavík, Út- varp Reykjavík, Ríkisútvarpið býð- ur góðan dag og verið velkomin á fætur.“ Síðan voru sagðar veður- fréttir og þá kom röddin aftur og sagði að þulur í morgunútvarpi væri Jón Muli Árnason. Þá lagði Jón út af veðurspánni og veðurlýs- ingunni og fór að spjalla um heima og geima, hvað hefði borið fyrir augun, þegar hann fór ofan úr Þingholtunum. Hann lýsti flugi fugla og sá einmana máf á sveimi, rakst á einn og einn götusópara eða árrisulan vegfaranda á leið í vinnuna og lýsti því stöku sinnum hvað ein og ein önd eða andapar hefðist að á Tjörninni. Það gaf hann ákaflega skemmtilega lýsingu á umhverfí og náttúrufari. Svo lýsti han sólarupprás eða sagði frá því hvenær sólin kæmi upp, og hvernig hafíð, einstaka hús eða fyöll speg- luðust í skini morgunsólarinnar. Þessi almenna náttúrulýsing var svo raunveruleg, að við, sem sáum ekki of vel, nutum hennar til hins ýtrasta ásamt öðrum landslýð. (Seinna kom einhver vitringur úr Útvarpsráði, sennilega einhver veð- urfræðingur, með þá staðhæfingu að þetta væri bæði óvísindalegt og leiðinlegt.) Eftir þessa byijun leiddi hann spjallið inn í kynningu á fyrsta laginu, svo að þetta small allt saman og varð ein heild. Þá voru dagskrárkynningar Jóns Múla fastur liður í morgunútvarpi. Hann las alla dagskrána, tók einn dag- skrárliðinn fyrir og tengdi hann næsta lagi á eftir. Ég var einn þeirra mörgu, sem urðu miklir aðdáendur Jóns Múla, og mátti vart missa af morgunút- varpinu. Jón valdi allrahanda tón- list, sígild verk og léttmeti, sönglög og svo auðvitað djass, en um hann er Jón allra manna fróðastur. Jón Muli spjallaði og fræddi hlustendur um þá sem voru á viðkomandi hljómplötum, og svo var hann manna fyrstur til að kynna nýja tónlist sem barst inn á tónlistar- deildina eða einhver gaukaði að honum. Þess má geta að undirritað- ur kom stundum með hljómplötur frá sjálfum sér þegar hann fór seinna að vinna fyrir Ríkisútvarpið. Eftir því sem árin liðu, tók ég eftir því að Jón Múli mótaði að miklu leyti tónlistarsmekk minn, og margt af því sem ég veit um tónlist er komið beint frá honum. Stundum kom fyrir að Jón mætti ekki í morgunútvarpið vegna veik- inda eða annarra orsaka. Þá hlupu ýmsir í skarðið og allt var ómögu- legt. Það fór því fagnaðarbylgja um mig þegar hann mætti aftur til leiks, og svo hefur líklega verið um fleiri, því að Jón Múli var í augum margra hlustenda náinn heimilisvinur, svolítið brokkgengur á köflum, en honum fyrirgafst flest. Stundum urðu ýmsar uppákom- ur í morgunútvarpinu. Ég man einu sinni eftir því að Pétur Sveinbjarn- arson, sem þá var framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, var með fasta þætti í útvarpinu, strax eftir veður- fréttimar, korter yfir átta. Eins og margir muna, var þularstofan uppi á sjöttu hæð á Skúlagötu 4, þar sem Ríkisútvarpið var til húsa. Einu sinni kom Pétur móður og másandi að hljóðnemanum, bauð góðan dag og náði vart andanum fyrir mæði. Hann byijaði þáttinn sinn og kall- aði svo: „Jón, ég get þetta ekki.“ Þá kom Jón Múli og bað hlustendur afsökunar, en útvarpslyftan hefði bilað og Pétur væri nýbúinn að hlaupa upp 120 tröppur, og það væri svo sem ekkert verra að vera tímanlega í því. Á meðan Pétur væri að kasta mæðinni skyldum við hlusta á Elddansinn eftir De- falla. Elddansinum lauk og Pétur flutti umferðarþáttinn sinn eins og hann var vanur. Jón Múli var mikið á milli tann- anna á fólki, og margt var sagt um hann, til dæmis að hann væri mikill kvennamaður, og nokkuð ölkær. Það var einu sinni, rétt fyr- ir hálf níu árið 1967, að Jón var að leika eitthvert lag af hljómplötu, og svo heyrðust skruðningar og það varð þögn. Þá kom Jón að hljóð- nemanum og bað hlustendur afsök- unar á þessári truflun ,sem væri ekki vegna bilunar, heldur vegna þess að þulur hefði verið að athuga um grammófónnálina, þumalfing- urinn farið í kross og rekist í arm- inn með áðurgreindum afleiðing- um. Svo bætti Jón við: „En það fer yfirleitt ekki vel þegar Bakkus er með í ráðum.“ Mér varð mjög und- arlega við og fyrirgaf honum sam- stundis. Þegar ég hóf störf hjá Ríkisút- varpinu árið 1973, af því að æðri máttarvöld ákváðu eldgos á Heima- ey, kynntist ég Jóni Múla. Við átt- um skap saman og höfðum mjög svipaðan tónlistarsmekk. Jón var eins og alfræðiorðabók um tónlist og benti mér á margt sem komið gæti að góðu gagni í dagskrárgerð. Það er draumur flestra að allt sem vel er gert muni vara að ei- lífu. Ég gat ekki hugsað mér tilver- una án morgunútvarpsins og Jóns Múla. Þegar stjómendur Ríkisút- varpsins ákváðu með litlum fyrir- vara að breyta um stefnu í morgun- útvarpinu, í lok 8. áratugarins, og að Jón Múli skyldi verða þar eins og hver annar þulur, raskaðist svefnró mín og ég varð morgunlat- ur með afbrigðum. Að mínu mati voru þetta ein verstu mistök sem stjórnendur Ríkisútvarpsins gerðu á þeim tíma. Morgunútvarpið hans Jóns Múla var stórkostlegt lista- verk sem hefði mátt vara miklu lengur, en svona er nú það. Jón Múli hefur, með morgunút- varpinu, haft ómæld áhrif á flesta þá sem sjá um tónlistarkynningar í útvarpinu. Margir hafa reynt að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.