Morgunblaðið - 28.03.1991, Qupperneq 79

Morgunblaðið - 28.03.1991, Qupperneq 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991 79 að uppfylla allar óskir fjölskyldu minnar og vina. Allt þar til ég lenti sjálfur í vondri kreppu. Ég fór að líta í kringum mig og sá veruleik- ann og mínar eigin tilfinningar í nýju ljósi. Það var mjög sár reynsla þegar ég var að átta mig á því að sálarlíf mitt stjórnaðist, að miklu leyti, af tilfinningum sem komu frá undirmeðvitundinni. Ég kalla það stjórntæki ótta. Ég hélt áfram að reyna að finna út hvað orðið ást þýddi í raun og veru og smátt og smátt fann ég grunninn að mínum eigin sannleika. Og ég var svo lánsamur að hafa verið gefinn hæfileikinn til að taka við óbrengluðum upplýsingum, öðr- um til hjálpar. Þegar ég áttaði mig á þessu, fór ég að skilja að sú leið sem ég hafði til að sýna samferðar- mönnum mínum kærleika, væri að leyfa not af mér sem farvegi; far- vegi frá einni veröld til annarrar. Minn eigin sannleikur er því ímynd míns eigin persónleika, afurð já- kvæðrar hæfni og hæfileikinn til að horfast í augu við þann ótta úr fortíðinni sem hindraði mig í að sjá minn eigin sannleika. Ég hef lært að skilja hið sanna eðli ástarinnar og ég leyfi ekki lengur fólki sem sýnir mér kærleika - og ég því á móti - að þvinga mig til að gera það sem ótti þess segir til um.“ Trúarbrögð Nú fer ekki hjá því að starf miðla snerti trúna að miklu leyti. Maður hefur oft heyrt talað um að miðlar grafi undan kristinni trú, beini fólki í átt að austurlenskum trúarbrögð- um sem alls ekki falli að okkar vestræna hugsunarhætti og kirkjan virðist vera algerlega á móti allri leit mannsins að sannleika - alla- vega hér á landi. Hver er þín af- staða í þessum efnum? „í fyrsta lagi, er það ljóst að öll trúarbrögð og allar kennisetningar fela í sér mikla fegurð og verð- mæti, vegna tilgangs þeirra. En hver sem trúarbrögðin eru og í hvaða samfélagi sem er, grundvall- ast þau á því heimspekikerfi sem samfélagið býr við. Með öðrum orð- um, afhjúpar gildismat hvers sam- félags. Én innan ramma allra trúar- bragða eða samfélaga, er okkur kennt að það er á okkar eigin ábyrgð að finna Guð innra með okkur. Og það eru alls staðar ein- staklingar sem þurfa á strangri bókstafstrú að halda og fyrir þeim er stefna kirkjunnar rétt. En sann- leikurinn um Guð verður okkur aðeins ljós þegar við höfum fundið okkar innri æðri mátt. Sá Guð sem ég skil, er sá guð sem talar til mín tungumáli tilfinn- inganna og vegna kærleikans sem í því felst, veitir mér möguleika á að skilja sjálfan mig. Ef við lítum aðeins á kenningar Krists, til dæmis í sögunum sem hann kenndi okkur, sjáum við að hann segir að það sé á okkar eigin ábyrgð að skilja Guð innra með okkur; þegar öllu er á botninn hvolft, kenndi hann að Guð er alls- staðar og í öllu. Ég er sjálfur, smátt og smátt, að byija að skilja Guð í sjálfum mér - en ég get ekki svarað fyrir þær aðferðir sem annað fólk beitir til að finna sinn Guð, sinn sann- leika. Ég legg af mörkum það sem ég kann og vona að það hjálpi öðr- um til að svara þeim kröfum sem þeir standa frammi fyrir í þroska- og sannleiksleit sinni. Samfélagið og stofnanir þess eru «1 vegna þess að við höfum þörf fyrir að hafa allt í föstum skorðum. Þær geta allar vísað okkur sína leið til Guðs, en í hnotskurn má segja að þær endurspegli alltaf - hvort sem þær eru góðar eða slæmar - baráttu mannsins til að ná völdum og þörf hans fyrir að segja: „Ég hef á réttu að standa.“ Þeir gleyma - og við gleymum öll - að hina einu sönnu leið til andans finnum við aðeins ef við náum að losa okk- ur við valdagræðgi og athygli - út á við - en lærum í þess stað að þekkja vald og möguleika okkar sanna eðlis.“ Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir Sterkur og tæknilegur nú á frábæru ver&i Vegna nýrra og hagstæSra samninga við fram- leioendur FIATAGRI getum viS nú boÖiS hann á geysilega hagstæöu verði. FIATAGRI hefur undanfarin ár verið mest selda dráttarvélin í Evrópu. FIATAGRI er einstaklega lipur og hannaður meS notandann í huga, húsið er þægilegt, öruggt og mjög vel hljóöeinangraS, meÖ stórum gluggum sem gefa mikla vfirsýn. Sætið er þæailegt me3 örmum og er stiílanlegt eftir (DÖrfum nvers og eins, stýrio sömuleiðis. Auðveit er að komast að öllum stjórntækjum sem gerir gæfumuninn á löngum vinnudegi. Vökvalyftukerfi FIATAGRI er ótrúlega fjölbreytt, lipurt og þolir langa og mikla notkun við erfiSustu skilyrði. FIATAGRI er einn ódýrasti kosturinn í V-Evrópskum dráttarvélum því tæknibúnabur er meiri en í sambærilegum vélum. Til að mynda: * Bremsur á öllum hjólum.. * "Hiah speed" gírkassi, samhæfður og gírstöng staosett hægra megin við ökumanninn. * 40 km. hámarkshraði. Veltistýri með hæðastillingu. Vendigír. * Hafið samband við sölumenn okkar, umboðsmenn um land allt. * Vélar með fjórhjóladrifi FIATAGRI 70-90 DTC fjórhjóladrifinn 70 hestöfl. Verð kr. 1.580.000. FIATAGRI 80-90 DTC fjórhjóladrifinn 80 hestöfl. Verð kr. 1.650.000. NÝR DAGUR AUGLÝSINGASTOFA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.