Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 90

Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 90
MOKGlfNBlAÐID FIMM^yDAqyfl 28. MAPZ 1991 ; §0 HÁTÍÐ Á LÆKJARBREKKU ALLA PÁSKADAGANA LÁTIÐ OKKUR UM ÞJÓNUSTUNA OG NJÓTIÐ PÁSKANA í NOTALEGU UMHVERFI. BORÐAPANTANIR í SÍMA 14430. GLEÐILEGA PÁSKA 1 Nú hefur verið ákveðið að festa kaup á stórhýsi Sláturfélags Suðurlands við Laugarnesveg. har verður í framtíðinni miðstöð æðri listmenntunar á íslandi. #FYRSTI SKÓLADAGUR Við bjóðum alla velkomna í nýtt listahús í samvinnu við fjármálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti hyggjast listaskólarnir fagna þessum tímamótum með því að taka á móti gestum í nýja listahúsinu, sýna þeim húsakynni og veita þeim ýmsa skemmtan, hver listhópur eftir sínu höfði. Opinn dagur: „Fyrsti skóladagur" í nýja listahúsinu að Laugarnesvegi 91 fimmtudag, skírdag, kl. 14-17. Nýtt og glæsilegt hús. Fjölbreytt atriði í öllum hornum. Nemendafélögin bjóða kaffi og með því. Öll fjölskyldan velkomin! Fjármálaráðuneytið Menntamálaráðuneytið Leiklistarskóli íslands Myndlista- og handíðaskóli íslands Tónlistarskólinn í Reykjavík Þorleifur Björns- son - Minning' Fæddur 24. janúar 1926 Dáinn 24. mars 1991 Þorleifur Björnsson fæddist í Njarðvíkum, sonur hjónanna Guð- laugar Stefánsdóttur, Þorsteinsson- ar frá Stardal í Stokkseyrarhreppi, og Björns Þorleifssonar, Bjarnason- ar í Þórukoti í Njarðvíkum. I Þórukoti var tvíbýli. Þar bjó einnig föðursystir Þorleifs, Guðrún ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Guðmundssyni. Allt var þetta mikið sómafólk og ólst Þorleifur upp í miklu ástríki tveggja fjölskyldna á mannmörgu heimili. í æsku stundaði hann sjóróðra, síðar vörubflaakstur og hin síðari ár verktöku á Keflavíkurflugvelli. í starfi sínu sýndi hann ætíð vand- virkni, dugnað og trúmennsku. Þorleifur var trúaður maður og taldi sig hafa sönnun fyrir öðru lífi eftir þetta. Hann sagði mér að hann hefði iðulega fundið til nærveru vina sinna sem gengnir voru til æðri til- veru, og að dauðinn væri aðeins flutningur á æðra stig til fullkomn- ara lífs. 17. júní 1950 kvæntist hann eft- irlifandi konu sinni Ragnheiði Bjömsdóttur frá Vífilsstöðum, mik- illi sæmdarkonu. Eignuðust .þau fjögur böm. Börn þeirra eru: Sig- urður tæknifræðingur, kvæntur Sigrúnu Óskarsdóttur og eiga þau þrjú börn. Björn Vífill veitingamað- ur, kvæntur Nönnu Jónsdóttur og eiga þau fjögur böm. Sigurgeir tæknifræðingur, kvæntur Þóm Harðardóttur og eiga þau eitt bam. Yngst er Guðrún sölumaður. Fjölskyldan átti sér notalegt sumarhús í Grímsnesi. Þar undu þau við ræktun, og var unun að fylgjast með þeirri alúð og um- hyggju sem hann sýndi hverri ein- ustu plöntu, enda árangur eftir t Systir okkar, ÁSTA ÁRNADÓTTIR, lést á elliheimilinu Grund hinn 26. þ.m. Vikar Árnason, Þráinn Árnason, Birgir Árnason, Barði Árnason. t Maðurinn minn og faðir okkar, HELGI GUÐLAUGSSON, áður á Jófríðarstaðavegi 7, Hafnarfirði, lést 26. mars. Ingigerður Eyjólfsdóttir og börn. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, HÖRÐUR SVAVARSSON, jarðfræðingur á Orkustofnun, Bæjartúni 5, Kópavogi, varð bráðkvaddur að kvöldi sl. þriðjudags 26. mars. Ellen Árnadóttir, Hinrik Þór Harðarsson, Árni Már Harðarsson, Gerður Björk Harðardóttir. því. Fegurri minnisvarða gat hann ekki látið eftir sig. Fyrir um sjö áram gerði vart við sig sá sjúkdómur er dró hann til dauða. Þrátt fyrir góða trú um að sigrast á sjúkdómnum hafði heilsan farið hnignandi undir það síðasta. Hins vegar sýndi hann slíkt vilja- þrek samfara rólyndi og æðruleysi að maður vildi ekki trúa öðru en að allt færi vel. Þorleifur'var ákaflega vandaður maður, alltaf boðinn og búinn tii að rétta hjálparhönd. Engan þekkti ég sem ekki bar hlýhug til hans og ekki var hægt að hugsa sér betri nágranna. Við kona mín þökkum áralanga vináttu og vottum eiginkonu og afkomendum samúð okkar. Ég kveð vin minn með þakklátum huga fyr- ir samfylgdina. Megi blessun fylgja honum í ferðinni til birtunnar. Áki Granz
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.