Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sj álfstæðisstefnan í nutíð og framtíð FUNDARGESTIR í Ársal Hótel Sögu í fyrrakvöld. ÞRÍR málefnafundir í fundaröð undir yfirskriftinni Sjálfstæðis- flokkurinn í sjötíu ár voru haldnir á Hótel Sögu í fyrrakvöld í tengslum við 33. landsfund Sjálfstæðisflokks- ins. Flestir virtust kjósa að sækja fund um sjálfstæðisstefnuna í nútíð og framtíð í þéttsetnum Ársal en færri þátttakendur voru á fundi um Frelsi og framfarir í 70 ár og fundi undir yfírskriftinni Frjáls þjóð í frjálsu landi. Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, stiklaði á stóru í sögu flokksins á fundi um Frelsi og framfarir í 70 ár og umræður urðu um kjörorð flokksins, Stétt með stétt og Frelsi einstaklingsins. Drífa Hjartardóttir sagði að af- stæði frelsishugtaksins hefði gefið fundarmönnum tilefni til ígrundana. Einnig bar á góma hvemig umhverfí flokkurinn var stofnaður í fyrir 70 ámm þegar haftastefna og kreppa var í þjóðfé- laginu og aðstæðurnar þá bornar saman við árangurinn í dag sem er verðbólguhjöðnun og kaupmáttar- aukning. ,^Allir sem til máls tóku á fundin- um voru á einu máli um að bæta þurfí kjör öryrkja og aldraðra og tóku undir orð formannsins við setningu Landsfundar," sagði Drífa. Aðrir frummælendur á fund- inum vom Þorgerður K. Gunnars- dóttir lögfræðingur, Eyþór Am- alds framkvæmdastjóri og Þórann Gestsdóttir sveitarstjóri. Erfitt að spá um þróun heimsmála Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra vék að sögu Islendinga á fundinum Frjáls þjóð í frjálsu landi og hélt því fram að íslendingai hefðu í raun aldrei litið á sig í öðm ljósi en sem frjálsa þjóð. Einnig gerði hann að umtalsefni hvemig Sjálfstæðisflokkurinn gegndi for- ystuhlutverki í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að ástandið í Evrópu væri í raun ótryggara eftir lok kalda stríðsins. Nefndi hann að lík- lega hefði Persaflóastríð aldrei get- að brotist út á dögum Kalda stríðs- ins vegna andstöðu Sovétríkjanna við hemaðaríhlutun Bandaríkj- anna. Bjöm sagði óvarlegt að spá langt fram í tímann um þróun heimsmála og benti á í því sam- hengi að ekki hefðu menn geta spáð um fall Berlínarmúrsins 1989 né heldur að Ólafur Ragnar Grímsson yrði sá forseti íslands sem færi til Póllands þegar Pól- verjar gengju í Atlantshafsbanda- lagið eða að Svavar Gestsson yrði sendiherra árið 1999. Aðrir fmm- mælendur á fundinum vora Tómas Ingi Olrich alþingismaður, Stefan- ía Óskarsdóttir stjórnmálafræð- ingnr og María E. Ingvadóttir við- skiptafræðingur. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor gerði m.a. að umræðu- efni frjálsa samkeppni, sérhags- muni og almannahagsmuni. Hann sagði að hugsuðir átjándu aldar hefðu séð það strax að manninum verður ekld breytt með samþykkt- um og frómum óskum. Maðurinn Morgunblaðið/Porkell væri að sumu Ieyti eigingjarn og að öðru leyti óeigingjarn. Hann keppti að sérhagsmunum sínum af meiri krafti en almannahagsmunum ekki síst vegna þess að hann hefði oft og tíðum ekki mikla vitneskju um hverjir almannahagsmunimir em. Eftir ákveðnum leikreglum fæm þó sérhagsmunir hans í sama far- veg og almannahagsmunir og þá sprytti friður því þá væra hags- munir launþega, vinnuveitenda, karla og kvenna, ungra og gamalla, þéttbýlisfólks og landsbyggðar- fólks, þeir sömu. „Það er slík brú sem er aðalatriðið í sjálfstæðis- stefnunni," sagði Hannes Hólm- steinn. Davíð Oddsson um forystu næstu ríkisstjórnar Líta þarf til styrks og stærðar flokka DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í svari við fyrirspurn á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins í gær að ekki ætti að gera kröfu til þess fyr- irfram að Sjálfstæðisflokkurinn færi með forsætisráðuneytið yrði flokkurinn aðili að næstu ríkis- stjóm, enda væri það samningsat- riði á hverjum tíma. A hinn bóginn þyrfti þó að líta til styrks og stærð- ar flokka. Þetta kom fram í svari við fyrir- spurn Þorvaldar Þorvaldssonar, sem spurði hvort kæmi til greina að afhenda framsóknarmönnum for- sætisráðuneytið ef flokkarnir end- urnýjuðu stjórnarsamstarf sitt. Oskynsamlegt að leiða ekki ríkisstjómina 1983 „Við göngum ekki fram og gerum kröfu til þess í stjómarmyndunar- samningum fyrirfram að Sjálfstæð- isflokkurinn fari með forsætisráðu- neytið. Á hinn bóginn þarf að líta til styrks og stærðar flokka. I megin- atriðum er það eðlilegra að sá flokk- ur sem hefur meira fylgi á bak við sig í stjórnarsamstarfi leiði ríkis- stjórn. Þetta hefur verið samnings- atriði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengið í ríkisstjórnarsamstarf án þess að hafa forsætisráðherra. Það var gert 1983. Eg tel reyndar að það hafi ekki verið skynsamleg ráð- stöfun þá. Engu að síður hefur þetta verið gert. Þetta er samnings- staða og ég held að við eigum ekki að ganga fram á völlinn fyrirfram og segja að það eitt komi til greina að Sjálfstæðisflokkurinn leiði ríkis- stjóm. Það er dálítill frekjutónn í því, þó að rök getið hnigið í þá átt- ina. Við göngum opnir til allra samningaviðræðna um stjórnar- myndun, við hverja sem það nú verður,“ sagði Davíð. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins Skipulagsreglur flokksins verði endurskoðaðar MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til við landsfund flokks- ins að henni verði falið að skipa sérstaka nefnd til þess að endur- skoða skipulagsreglur Sjálfstæðis- flokksins og leggja tillögur að nýj- um reglum fyrir næsta landsfund. Við endurskoðun skipulagsregln- anna verði sérstakt tillit tekið til þeirra breytinga sem orðið hafa á skipan sveitarfélaga í landinu og þeirra breytinga sem væntanlega verða á kjördæmaskipan landsins um næstu alþingiskosningar. Jafn- framt verði hugað að þeim þáttum sem snerta félagslega uppbygg- ingu flokksins í því augnamiði að starf hans megi ávallt verða sem öflugast. Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra fagnaði þessari tillögu miðstjómar á landsfundinum í gær, en hann hefur eins og kunn- ugt er komið fram með þá hug- mynd að kosin verði fímm manna framkvæmdanefnd er starfí við hlið formanns flokksins. „Við kjós- um hér miðstjóm á þessum lands- fundi, en ég hef einnig varpað því fram hvort ekki sé eðlilegt að kjósa sérstaka framkvæmdastjórn sem starfí með umboði landsfundarins að ályktunum flokksins við hlið for- manns flokksins," útskýrði hann. Síðar sagði Bjöm: „Mál hafa verið skýrð þannig m.a. að ég hafi lagt til að embætti varaformanns yrði lagt niður. Að sjálfsögðu þarf í Sjálfstæðisflokknum að vera skýr staðgengill formanns flokksins ef til þess kemur að menn þurfa að hlaupa í skarðið fyrir hann en það er hægt að leysa það mál með öðr- um hætti heldur en að kjósa vara- formann hér á landsfundinum. En í sjálfu sér var það ekkert höfuð- atriði í mínum tillögum hvort hér yrði kjörinn varaformaður eða hvort þeirri skipan yrði háttað með öðram hætti, heldur hitt að lands- fundurinn kysi framkvæmdastjórn sem starfaði við hlið flokksleiðtog- ans að því að vinna að stefnumálum flokksins," sagði hann. Morgunblaðið/Þorkell í KARLAKÓR Reykjavíkur söng fyrir sjálfstæðiskonur. í einu laganna fóru þeir á hnén fyrir samkomugesti og sagðist Sólveig vonast til að slíkt hið sama yrði uppi á teningnum á landsfundinum. „Þetta er sérstakt tæki- færi þar sem allir þessir karlmenn falla að fótum okkar,“ sagði Sólveig og jafnframt vonaðist hún til að það I yrði góður fyrirboði fyrir kjörið. i i I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.