Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 13
FRÉTTIR
Forsætisráðherra við umræður um hag aldraðra og öryrkja
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins
Flokksmenn
um 30 þúsund
FLOKKSMENN Sjálfstæðis-
flokksins era um 30 þúsund og þar
af er helmingur í Reykjavík eða um
15 þúsund. I’etta kom m.a. fram í
ræðu Kjartans Gunnai-ssonar
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í gær.
„Þessi mikli fjöldi félaga og fé-
lagsmanna segir sína sögu um
styrk og skipulagslegt afl Sjálf-
stæðisflokksins. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ávallt lagt mikla
áherslu á öflugt kerfí félaga um
land allt og hefur það reynst hon-
um vel í marga áratugi. Auk hinna
einstöku félaga sem við þekkjum
öll, sem hér erum, starfa innan
flokksins landssamtök kvenna,
ungra manna og launþega og á
þessum fundi munu væntanlega
bætast með fullum réttindum í
þann hóp samtök eldri sjálfstæðis-
manna sem stofnuð voru fyrir
rúmu ári.“
Sjávarútvegsráðherra
um hvalveiðar
Þarf að stíga
skrefin
varlega
„EG hef alltaf verið þeirrar skoðun-
ar að við myndum taka upp hvalveið-
ar að nýju. Petta mál er hins vegar
flókið. Það kemur inn á mjög víð-
tæka hagsmuni okkar,“ sagði Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
í fyrirspurnartíma ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins á landsfundi flokks-
ins í gær.
„Það þarf því að vanda allan und-
irbúning að endanlegum ákvörðun-
um þar um. Það þarf að gæta að
þessum heildarhagsmunum og stíga
skrefin varlega og það höfum við
gert. En það er auðvitað fullveldis-
réttur okkar Islendinga að nýta allar
auðlindir sjávarins á grundvelli sjálf-
bærrar þróunar," sagði Þorsteinn.
Kjartan fjallaði nánar um hlut
kvenna í starfi Sjálfstæðisflokksins
og benti m.a. á að fengi flokkurinn
mjög góða kosningu í komandi al-
þingiskosningum gæti konum
hugsanlega fjölgað í þingliði
flokksins úr fjórum í tíu. „Þetta er
mikil breyting og mun án efa
styrkja mjög stuðning við flokkinn
meðal kvenna og stuðla að eðlilegri
þátttöku beggja kynjanna í stai’fi
flokksins eins og vera ber,“ sagði
hann.
Tvöfalt oftar talað
við fulltrúa R-listans
Kjartan gerði hlut fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í ríkisfjölmiðlum
einnig að umtalsefni og fullyrti að
fjölmiðlum sem reknir væru fyrir
almannafé væri purkunarlaust
misbeitt í þágu tiltekinna stjórn-
málaafla. „Þetta kom mjög vel í
ljós í sveitarstjómarkosningunum
síðustu en Sjálfstæðisflokkurinn
Mega búast við að kjör
þeirra batni verulega
„Við þurfum að haga störfum okkar þannig
að þeir sjái ástæðu til að treysta okkur“
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og þingmennirnir Einar K.
Guðfinnsson og Einar Oddur Kristjánsson bera saman bækur sínar á
Landsfundinum.
LANDSFUNDARFULLTRÚAR
lögðu fjölmargar fyrirspumir fyrir
ráðherra Sjálfstæðisflokksins varð-
andi kjör aldraðra og öryrkja og
fleiri hópa þjóðfélagsins í fyrir-
spumartíma á landsfundi flokksins
í gær. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra ítrekaði ummæli sín úr setn-
ingarræðu landsfundarins um að
athugun hefði leitt í ljós að kjör ör-
yrkja og aldraðra hefðu hmnið á
ámnum 1987-1991, en ríkisstjóm-
inni hefði hins vegar tekist að rétta
hag þessara hópa við á seinustu ár-
um.
„Eg sé fyrir mér að veruleg
kaupmáttaraukning geti orðið hjá
þessum hópum á næstunni,“ sagði
Davíð. „Ég tel að öryrkjar og aldr-
aðir megi búast við að kjör þeirra
batni vemlega á næstu mánuðum
og misseram."
Sanngjarnt að lífeyrissjóðir
séu tekjuskattsfijálsir?
Páll Gíslason tók upp áherslumál
samtaka eldri borgara og benti á
að 60-70% lífeyrisgreiðslna væm
tilkomnar vegna arðs af lífeyrinum.
Spurði hann fjármálaráðherra
hvort ekki væri sanngjarnt að
skattleggja þann hluta eins og aðr-
ar ijármagnstekjur.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði að sú forsenda að 2/3
hlutar af útgreiðslum úr lífeyris-
sjóðum væm fjármagnstekjur sé
sennilega rétt. „En það er fleira í
þessu máli. Ef þessu verður nú
breytt og það yrði tekið vegið með-
altal, annars vegar 10% fjár-
magnstekjuskattur af 2/3 og hins
vegar fullur tekjuskattur af 1/3, er
þá sanngjamt að lífeyrissjóðirnir,
sem reka þessa sjóði, séu alveg
tekjuskattsfrjálsir, eins og þeir em
í dag? Er sanngjarnt að þessar
greiðslur úr lífeyrissjóðum yrðu
skattlagðar með þessum hætti en
til dæmis allar bætur úr almanna-
tryggingunum með fullum tekju-
skatti? Ég er hræddur um að það
myndu vakna ýmis önnur sann-
girnisspursmál í tengslum við
þetta mál. Hitt er annað að við höf-
um fengið þetta til skoðunar og út-
reiknings í fjármálaráðuneytinu og
það er verið að vinna í því að skoða
málið. Þar við situr í augnablik-
inu,“ sagði Geir.
Konur, aldraðir og öryrkjar
kjósa síður Sjálfstæðisflokkinn
Helga Guðrún Jónasdóttir
spurði forsætisráðherra hvort
hann hefði ekki áhyggjur af því
að konur, aldraðir og öryrkjar
kysu síður Sjálfstæðisflokkinn en
aðra. Aður fyrr hefði þetta fólk
verið helsta stoð flokksins. Davíð
sagðist deila með Helgu áhyggj-
um sínum af þessum þáttum; sem
væm ekki alveg rökréttir. „Ég tel
okkur þá hafa að minnsta kosti
verið klaufaleg að ná til þessa
fólks, því við höfum allar forsend-
ur til þess, eins og við höfðum hér
forðum tíð. Við erum með þessum
landsfundi og með verkum okkar
upp á síðkastið að leggja góðan
grunn að því að þessir mikilvægu
hópar, sem og aðrir, megi treysta
okkur til að fara með þeirra mál-
efni,“ sagði Davíð. „Við þurfum
að haga störfum okkar þannig að
þeir sjái ástæðu til að treysta
okkur og ef okkur heppnast það,
munu þeir á nýjan leik skila sér í
auknum mæli til okkar,“ bætti
hann við.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KJARTAN Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, benti m.a. á að hlyti Sjálfstæðisflokkurinn
mjög góða kosningu í alþingiskosningunum í vor gæti konum fjölgað í þingliði sjálfstæðismanna úr fjórum í tíu.
gerði eins og menn muna grein
fyrir því á grundvelli óháðrar at-
hugunar óháðs aðila að fréttastof-
ur Ríkisútvarpsins mismunuðu
mjög frambjóðendum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík og frambjóð-
endum R-listans. Það er sama
hversu oft og lengi menn á þessum
fjölmiðli reyna að bera þetta af
sér, tölumar tala ským máli. Það
er óhugsandi að það sé tilviljun
þar sem tveir flokkar sitja í borg-
arstjórn og em í framboði að það
sé talað tvöfalt oftar við fulltrúa
annars framboðslistans heldur en
hins.“
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
Tek pólitíska
ábyrgð
á ráðningu
Svavars
DAVIÐ Oddsson forsætisráð-
herra var spurður að því á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
hvort hann teldi viðeigandi að
gera einn helsta talsmann and-
stæðinga utanríkisstefnu þjóð-
arinnar í 30 ár að sendiherra.
Þar er átt við Svavar Gestsson,
sem skipaður hefur verið sendi-
herra í Kanada.
„Ég tel að ég beri pólitíska
ábyrgð á þessari ákvörðun ut-
anríkisráðherrans. Þótt hann
hafi formlega tekið ákvörðun-
ina var hún tekin í samráði við
mig. Ég vil ekki draga fjöður
yfir það. Þetta var viðkvæm
ákvörðun fyrir margra hluta
sakir, bæði vegna þess sem fyr-
irspyrjandi nefndi og eins höfð-
um við áhyggjur af því að við
væmm að blanda okkur í mál
Samfylkingar og Vinstrafram-
boðs. Við ákváðum að láta það
lönd og leið og taka efnislega
ákvörðun.
Þessi tiltekni einstaklingur
hefur verið formaður í stjórn-
málaflokki um langt árabil, hef-
ur gegnt fjölmörgum ráðherra-
embættum með stuðningi
meirihluta Alþingis um langa
hríð. Með hliðsjón af því töldum
við að kraftar hans gætu nýst
til þess starfs sem hann var
ráðinn í,“ sagði Davíð.
Umræður
og kjör
vara-
formanns
KOSNING varaformanns
Sjálfstæðisflokksins fer fram
síðdegis á morgun, ef marka
má dagskrá fundarins, en í
dag verða m.a. umræður um
ályktanir landsfundarins. St-
arfshópar starfa fram yfir há-
degi í dag en í kvöld verður
landsfundarhóf; kvöldverður
og dans á Hótel Islandi.
Um 200 manns
í kvöldverði
Landssam-
bands sjálf-
stæðiskvenna
LANDSSAMBAND sjálfstæð-
iskvenna boðaði til kvöldverðar í
Ásgarði í Glæsibæ á fimmtudags-
kvöld þar sem um 200 manns,
flest konur, hlýddu á ávarp Sól-
veigar Pétursdóttur, frambjóð-
anda til varaformannsembættis
Sjálfstæðisflokksins. Einnig tóku
til máls frambjóðendur til mið-
stjórnar flokksins, Ásgerður
Magnúsdóttir, Ásta Þórarinsdótt-
ir, Elínborg Magnúsdóttir og
Birna Lárusdóttir.
Kosningabarátta Sólveigar ber
yfirskriftina „Áræði á nýrri öld“
og nefndi hún í ræðu sinni mikil-
vægi þess að breikka forystusveit
Sjálfstæðisflokksins með því að
kjósa konu í sæti varaformanns
flokksins.
Sólveig sagði hlut kvenna inn-
an flokksins hafa aukist jafnt og
þétt síðustu ár og bæru nýleg úr-
slit kosninga í öðrum landshlut-
um þess glögglega merki. „Nú er
að fylgja eftir glæstum árangri.
Við þurfum að vera konum sem
bjóða sig fram til forystu innan
Sjálfstæðisflokksins hvatning,"
sagði Sólveig að lokum.