Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 23
80% hlut í Skafli hf. en Landsbanki
Islands hf. 20% í gegnum dótturfé-
lag sitt, Hömlur hf.
Eina umtalsverða eign Sa-
meinaðra verktaka er nú 75% hlut-
ur í stórhýsinu Höfðabakka 9 í
Reykjavík og er rekstur þess meg-
inrekstrarþáttur félagsins. Skafl er
nú 12,5% eignaraðili að fasteigninni
ásamt því að vera stærsti einstaki
hluthafinn í Sameinuðum verktök-
um. Þá á ríkissjóður einnig 12,5%
hlut í Höfðabakka 9.
Kauptilboðið er skilyrt því að
minnsta kosti 70% hluthafa taki
því. Tilboðsfrestur er til 25. mars
1999 og býðst Skafl til að stað-
greiða hlutabréfin miðað við gengið
3,50. Islandsbanki hefur tekið að
sér að hafa milligöngu um viðskipt-
in fyrir hönd Skafls.
Seint á síðastliðnu ári samþykkti
hluthafafundur Sameinaðra verk-
taka að selja húseignina Höfða-
bakka 9. Ef sú sala hefði átt sér
stað hefðu hluthafar félagsins
væntanlega þurft að taka afstöðu til
þess hvort leggja ætti það niður og
greiða hlutafé þess til hluthafa.
Þess í stað bjóðast Islenskir aðal-
verktakar nú til að kaupa hlutafé
þeirra og losa þá þannig út úr fé-
laginu.
Fasteignarekstur
ÍAV efldur
Stefán Friðfinnsson, forstjóri Is-
lenskra aðalverktaka, segir að ef
kaupin gangi eftir sé ætlunin að
renna frekari stoðum undir þann
fasteignarekstur sem dótturfélög
Islenskra aðalverktaka sjá um. „Ef
nægilega margir hluthafar ganga
að tilboði okkar öðlumst við yfiiráð
yfii' miklum meirihluta hússins. Það
er yfirlýst stefna dótturfélaga okk-
ar að eiga og reka fasteignir og
rekstur Höfðabakka 9 fellur vel að
henni,“ segir Stefán.
Hlutafé Sameinaðra verktaka er
um 340 milljónir króna og er
útistandandi hlutafé um 310 millj-
ónir. IAV eiga um 18% af því og
Kartöflur
gullauga og rauðar
yykr/p®Mnn
49,50 kr/kg
Melónur
Prímúlur
kr.199.
Baðinnréttinqar
Vandaðar og fallegar innréttingar
frá Belgíu á hagstæðu verði.
Sniðið að þínum þörfum!
Opið frá kl. 9-18 virka daga
og kl. 10-14 laugardaga
Vorlaukar
lOAnimónur
kr.199.-
trygginHOWM'S"
Við Fellsmúla
Simi 588 /332
IAV bjóða í bréf Sameinaðra verktaka
Verðmæti tilboðs-
ins 875 milljónir
Höfðabakki 9 eina umtalsverða eignin
SKAFL hf., dótturfélag íslenskra
aðalverktaka hf. (ÍAV), hefur gert
hluthöfum Sameinaðra verktaka hf.
tilboð um kaup á öllum hlutabréf-
um þeirra í félaginu. Með tilboðinu
hyggjast IAV því kaupa hlutafé í
Sameinuðum verktökum fyrir um
250 milljónir ki'óna á genginu 3,50
eða íyrir um 875 milljónir að mark-
aðsvirði.
Islenskir aðalverktakar hf. eiga
með tilboðinu hyggjast þeir því
kaupa hlutafé fyrii- um 250 milljón-
ir króna á genginu 3,50 eða fyrir
um 875 milljónir að markaðsvirði.
Samkvæmt þessu gengi er mark-
aðsvirði Sameinaðra verktaka því
1.085 milljónir króna, en sem fyrr
segir er húseignin Höfðabakki 9
eina fasteign þess og rekstrarþátt-
Þrjú kaupfélög kanna hagkvæmni sameiningar einstakra þátta
Fleirum boðið til samstarfs
KAUPFELAG Eyfii-ðinga, KEA,
Kaupfélag Þingeyinga og Sölufélag
Austur-Húnvetninga hafa í samein-
ingu ráðið ráðgjafarfyrirtækið
Pricewaterhouse-Coopers ehf. til að
kanna hagkvæmni sameiningar ein-
stakra rekstrarþátta hjá kaupfélög-
unum. Fyrst í stað verður lögð
áhersla á að kanna sameiningu
mjólkur- og kjötframleiðslu. Niður-
staða þessarar vinnu á að liggja fyr-
ir í síðasta lagi í maí næstkomandi.
Markmiðið er að fá fram mynd af
umfangi hverrar rekstrareiningar
og efnahagslegri uppbyggingu í því
skyni að geta metið innri tengsl
rekstrarþátta, styrkleika og veik-
leika og hugsanlegar aðgerðir, sem
aukið geta jákvæð samlegðaráhrif,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá félögunum. „Til að
tryggja samhæfingu, sem og að
tryggja að verkefnið hafi nauðsyn-
legt stjórnunarlegt vægi, verður
skipuð verkefnisstjórn sem í eiga
sæti kaupfélagsstjórar og stjórnar-
formenn kaupfélaganna þriggja."
Eðlilegt framhald
Samningur félaganna um að láta
kanna hagkvæmni tiltekinna rekstr-
arþátta á sér nokkurn aðdraganda
en um hríð hafa forsvarsmenn KEA
kannað hug annaiTa kaupfélaga á
Norðurlandi og víðar á hugsanlegri
samvinnu eða sameiningu. I frétt-
inni er haft eftir Eiríki S. Jóhanns-
syni, kaupfélagsstjóra KEA, að
þessi vinna sé eðlilegt framhald á
þeirri vinnu. „Ég vil leggja áherslu
á að þetta mál verður unnið í náinni
samvinnu við framleiðendur á fé-
lagssvæðunum enda höfum við
fundið fyrir jákvæðum straumum
frá þeim vegna þessara hugmynda.
Einnig er vert að undirstrika að
þótt þessi þrjú félög hafi nú tekið
höndum saman með þessum hætti
er fullur vilji til þess hjá öllum aðil-
um að fleiri félög geti komið inn í
þessa vinnu ef þau óska.“