Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 23

Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 23 80% hlut í Skafli hf. en Landsbanki Islands hf. 20% í gegnum dótturfé- lag sitt, Hömlur hf. Eina umtalsverða eign Sa- meinaðra verktaka er nú 75% hlut- ur í stórhýsinu Höfðabakka 9 í Reykjavík og er rekstur þess meg- inrekstrarþáttur félagsins. Skafl er nú 12,5% eignaraðili að fasteigninni ásamt því að vera stærsti einstaki hluthafinn í Sameinuðum verktök- um. Þá á ríkissjóður einnig 12,5% hlut í Höfðabakka 9. Kauptilboðið er skilyrt því að minnsta kosti 70% hluthafa taki því. Tilboðsfrestur er til 25. mars 1999 og býðst Skafl til að stað- greiða hlutabréfin miðað við gengið 3,50. Islandsbanki hefur tekið að sér að hafa milligöngu um viðskipt- in fyrir hönd Skafls. Seint á síðastliðnu ári samþykkti hluthafafundur Sameinaðra verk- taka að selja húseignina Höfða- bakka 9. Ef sú sala hefði átt sér stað hefðu hluthafar félagsins væntanlega þurft að taka afstöðu til þess hvort leggja ætti það niður og greiða hlutafé þess til hluthafa. Þess í stað bjóðast Islenskir aðal- verktakar nú til að kaupa hlutafé þeirra og losa þá þannig út úr fé- laginu. Fasteignarekstur ÍAV efldur Stefán Friðfinnsson, forstjóri Is- lenskra aðalverktaka, segir að ef kaupin gangi eftir sé ætlunin að renna frekari stoðum undir þann fasteignarekstur sem dótturfélög Islenskra aðalverktaka sjá um. „Ef nægilega margir hluthafar ganga að tilboði okkar öðlumst við yfiiráð yfii' miklum meirihluta hússins. Það er yfirlýst stefna dótturfélaga okk- ar að eiga og reka fasteignir og rekstur Höfðabakka 9 fellur vel að henni,“ segir Stefán. Hlutafé Sameinaðra verktaka er um 340 milljónir króna og er útistandandi hlutafé um 310 millj- ónir. IAV eiga um 18% af því og Kartöflur gullauga og rauðar yykr/p®Mnn 49,50 kr/kg Melónur Prímúlur kr.199. Baðinnréttinqar Vandaðar og fallegar innréttingar frá Belgíu á hagstæðu verði. Sniðið að þínum þörfum! Opið frá kl. 9-18 virka daga og kl. 10-14 laugardaga Vorlaukar lOAnimónur kr.199.- trygginHOWM'S" Við Fellsmúla Simi 588 /332 IAV bjóða í bréf Sameinaðra verktaka Verðmæti tilboðs- ins 875 milljónir Höfðabakki 9 eina umtalsverða eignin SKAFL hf., dótturfélag íslenskra aðalverktaka hf. (ÍAV), hefur gert hluthöfum Sameinaðra verktaka hf. tilboð um kaup á öllum hlutabréf- um þeirra í félaginu. Með tilboðinu hyggjast IAV því kaupa hlutafé í Sameinuðum verktökum fyrir um 250 milljónir ki'óna á genginu 3,50 eða íyrir um 875 milljónir að mark- aðsvirði. Islenskir aðalverktakar hf. eiga með tilboðinu hyggjast þeir því kaupa hlutafé fyrii- um 250 milljón- ir króna á genginu 3,50 eða fyrir um 875 milljónir að markaðsvirði. Samkvæmt þessu gengi er mark- aðsvirði Sameinaðra verktaka því 1.085 milljónir króna, en sem fyrr segir er húseignin Höfðabakki 9 eina fasteign þess og rekstrarþátt- Þrjú kaupfélög kanna hagkvæmni sameiningar einstakra þátta Fleirum boðið til samstarfs KAUPFELAG Eyfii-ðinga, KEA, Kaupfélag Þingeyinga og Sölufélag Austur-Húnvetninga hafa í samein- ingu ráðið ráðgjafarfyrirtækið Pricewaterhouse-Coopers ehf. til að kanna hagkvæmni sameiningar ein- stakra rekstrarþátta hjá kaupfélög- unum. Fyrst í stað verður lögð áhersla á að kanna sameiningu mjólkur- og kjötframleiðslu. Niður- staða þessarar vinnu á að liggja fyr- ir í síðasta lagi í maí næstkomandi. Markmiðið er að fá fram mynd af umfangi hverrar rekstrareiningar og efnahagslegri uppbyggingu í því skyni að geta metið innri tengsl rekstrarþátta, styrkleika og veik- leika og hugsanlegar aðgerðir, sem aukið geta jákvæð samlegðaráhrif, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá félögunum. „Til að tryggja samhæfingu, sem og að tryggja að verkefnið hafi nauðsyn- legt stjórnunarlegt vægi, verður skipuð verkefnisstjórn sem í eiga sæti kaupfélagsstjórar og stjórnar- formenn kaupfélaganna þriggja." Eðlilegt framhald Samningur félaganna um að láta kanna hagkvæmni tiltekinna rekstr- arþátta á sér nokkurn aðdraganda en um hríð hafa forsvarsmenn KEA kannað hug annaiTa kaupfélaga á Norðurlandi og víðar á hugsanlegri samvinnu eða sameiningu. I frétt- inni er haft eftir Eiríki S. Jóhanns- syni, kaupfélagsstjóra KEA, að þessi vinna sé eðlilegt framhald á þeirri vinnu. „Ég vil leggja áherslu á að þetta mál verður unnið í náinni samvinnu við framleiðendur á fé- lagssvæðunum enda höfum við fundið fyrir jákvæðum straumum frá þeim vegna þessara hugmynda. Einnig er vert að undirstrika að þótt þessi þrjú félög hafi nú tekið höndum saman með þessum hætti er fullur vilji til þess hjá öllum aðil- um að fleiri félög geti komið inn í þessa vinnu ef þau óska.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.