Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 79 FRETTIR „Síberíuhrað- lestin44 sýnd í bíósal MÍR KVIKMYNDIN „Síberuhraðlest- in“ verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 7. mars kl. 15. Mynd þessi var gerð í Kazakhst- an á áttunda áratugnum undir leik- stjórn Eldars Úrazbajevs, en hand- ritshöfundar vora þeir Alexander Adabashjan og Nikita Mikhalkov í samvinnu við Andrei Mikhalkov- Kontsalovskíj. Sagan, sem sögð er í myndinni gerist á árinu 1927. Japanski iðnjöfurinn Saito telur að samlandar sínir eigi að stunda við- skipti við Rússa en ekki standa í stríði við þá og fer því í viðskiptaer- indum til Moskvu. Leyniþjónusta Japana undirbýr þá áætlun um að myrða Saito í svefnklefa hans í Sí- beríuhraðlestinni og vekja síðan grun um að sovéskur útsendari hafí framið morðið. Inn í ráðagerðina er blandað kabaretteigandanum Pham, sem er Kazakhi að þjóðerni en með kínverskt vegabréf. Ætlun- in er að láta Demidovu, sem læst vera kona Phams, skjóta á Saito, en síðan á að koma þeim hjónaleysun- um fyrir kattarnef og lauma skil- n'kjum og byssu í vasa Phams. En japanska leyniþjónustan veit ekki að Pham er sovéskur TSEKA-mað- ur og heitir í reynd Omar Kasym- kanov. Áform Japana renna því út í sandinn. Myndin er talsett á ensku. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Samæfíng björg- unarsveita á Suðurnesjum ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda samæfíngu björgunarsveita á Suð- urnesjum ásamt Almannavörnum Suðurnesja, Brunavörnum Suður- nesja og slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli ásamt svæðisstjórn laug- ardaginn 13. mars. Fyrirhugað er að hafa æfinguna milli kl. 13 og 18. I æfingunni er gengið út frá því að um stórslys sé að ræða, segir í fréttatilkynningu. Boeing 727 einkavél með um 30-40 manns um borð lendir í mikilli ísingu á leið til Keflavíkurflugvallar og er í miklum vandræðum í lokastefnu á braut. Fær vélin ís í tvo mótora, missir mikla hæð og brotlendir í sjó við Stafnesvita, brotnar í þrjá hluta og dreifíst um stórt svæði. Mikill eldur kemur upp í vélinni. í æfingunni taka þátt Björgunar- sveitirnar Skyggnir í Vogum, Ægir í Garði, Sigurvon, Sandgerði, Eldey í Höfnum, Þorbjörn í Grindavík, Suðurnes, Reykjanesbæ, Oreon Keflavíkurflugvelli, björgunarbát- arnir Hannes Þ. Hafstein, Sand- gerði, og Oddur V. Gíslason, Gr- indavík, Almannavarnir Suður- nesja, Brunavarnir Suðurnesja, Slökkvilið Keflavíkurflugvallar, Til- kynningaskyldan, svæðisstjórn, lögreglan í Keflavík og Slökkvilið Sandger ðisbæj ar. Skíðaganga og gönguferð FERÐAFÉLAG íslands efnir til tveggja sunnudagsferða á sunnu- dag. Kl. 10.30 er skíðaganga yfir Leggjabrjót, gömlu leiðina milli Þingvalla og Hvalfjarðar. Sú ganga er fyrir vant skíðagöngufólk. At- hugun hefur leitt í ljós að skíðafæri er erfitt og því æskilegt að vera á skíðum með stálköntum. Kl. 13 er gönguferð á Reykja- borg (286 m. y.s.) og Æsistaðafjall í Mosfellssveit. Brottför frá BSI, austanmegin og Mörkinni 6. Átta- vitanámskeið er þriðjudaginn 16. mars kl. 20. Skráning á skrifstof- unni. Aðalfundur ferðafélagsins er miðvikudagskvöldið 17. mars kl. 20.30 í Mörkinni 6. Upplýsingablað um páskaferðirnar liggur frammi á skristofunni og er einnig hægt að fá sent. SIGURLIÐ síðasta árs í aldursflokki 12-15 ára. Nemendasýning og liða- keppni í dansi á Broadway NEMENDASYNING Dansskóla Jóns Péturs og Köru verður haldin á Broadway sunnudaginn 14. mars nk. Þar munu allir nem- endur í barna- og unglingahóp- um skólans ásamt nokkrum full- orðinshópum koma fram með sýnishorn af því sem þeir hafa lært í vetur. Húsið verður opnað kl. 13 og hefst sýningin kl. 14. Strax að lokinni sýningu kl. 15 verður liðakeppni á milli dans- skóla og hefur nokkrum dansskól- um verið boðið til leiks. Keppt verður í tveimur aldursflokkum, 11 ára og yngri og 12-15 ára. Hvert lið samanstendur af íjórum danspöram, tveimur sem dansa standard dansana. Fimm dómarar munu dæma keppnina. Miða á sýninguna og keppnina verða seldir á Hótel íslandi 14. mars og hefst miðasala kl. 13. Frítt er fyrir 11 ára og yngri en aðgangseyrir fyrir 12 ára og eldri er 500 kr. Málþing um streitu NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG Reykjavíkur efnir til málþings í Þingsal 1, Hótel Loftleiðum, þriðju- daginn 16. mars kl. 20. Málþingið ber yfirskriftina: Líf án streitu. í fréttatilkynningu segir að fjallað verði um spurningar á borð við hvaðan streitan sé komin, hvort við getum hamið hana, hvort hægt sé að nýta hana til góðs eða þurfi að út- rýma henni. Fundarstjóri verður Anna Páls- dóttir, upplýsingafulltrúi Heilsu- stofnunar NLFI í Hveragerði. Frummælendur verða: Þórkatla Að- alsteinsdóttir sálfræðingur, Konráð Adolphsson, skólastjóri Stjórnunar- skólans, Katrín Fjeldsted heimilis- læknh- og Hildur Hákonardóttir, forstöðumaður Listasafns Árnes- inga. Anna Elísabet Olafsdótth-, mat- væla- og næringafræðingur, Anna S. Pálsdóttir prestur og Magnús Scheving þolfimikennari verða með pallborðsumi-æður. Aðgangseyrir er 400 kr. en frítt verður íyrir félagsmenn. Kosningamið- stöð VG opnuð KOSNINGAMIÐSTÖÐ Vinstri hreyfingarinnar _ græns framboðs verður opnuð á morgun, sunnudag, kl. 16, á Suðurgötu 7, á horni Vonar- strætis og Suðurgötu. Listamenn flytja orð og tóna og nokkrir frambjóðendur og forystu- menn flokksins ávarpa gesti. Kaffi og sætabrauð á boðstólum. Frjálslyndi flokkurinn Stj órnmálafundur og kjördæmafélag SVERRIR Hermannsson boðar til almenns stjórnmálafundar í Félags- lundi á Reyðarfirði í dag, laugai’dag- inn 13. mars, kl. 15. Klukkustund fyrr verður stoftifund- m- kjördæmisfélags Austurlands hald- inn á sama stað. Þegar hafa verið stofnuð kjördæmafélög í Reykjavík, á Reykjanesi, í Norðuríandskjördæmi vestra og Norðurlandskjördæmi eystra, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu fi’á Frjálslynda flokknum. VINNINGSHAFINN í afmæhsleik mbl.is var Hulda Jónsdóttir sem á myndinni hefur tekið við gjafabréfi af Guðna Hreinssyni hjá Flugleið- um (t.v.) en fulltrúi afmælisbarnsins mbl.is, Halldór Bachmann, er lengst til hægri á myndinni. Afmælisleikur mbl.is í TILEFNI af eins árs afmæli mbl.is 2. febrúar sl. var gestum vefsins boðið að taka þátt í leik á smávef sem gerður var af þessu tilefni. Á vefnum komu fram upplýs- ingar um sögu vefsins, heim- sóknatölur, fjölda sérvefja sem birst hafa o.m.fl. Þátttakendur í leiknum voru spurðir spurninga úr þessum upplýsingum og vora vegleg verðlaun í boði: Ferð fyrir tvo til Minneapolis með Flugleið- um með gistingu á fimm stjörnu lúxushóteli ásamt tveim miðum á eina vinsælustu leiksýninguna þar í borg. Þetta virtist falla í góðan jarðveg hjá gestum mbl.is því fjöldinn allur tók þátt í hon- um. Maraþon í sundi fyrir hreyfí- hamlaða unglinga UNGLINGAHÓPURINN BUSL sem er á vegum Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, mun halda mara- þon í sundi. Maraþonið hefst laugar- daginn 13. mars kl. 9 í sundlaug Sjálfsbjargarheimilisins í Hátúni 12, gengið inn að norðanverðu. Tilgangur þessa sunds er að safna áheitum til styrktar utanlandsferð hópsins sem farin verður árið 2000. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja ferðina með áheitum eða öðrum hætti geta haft samband við skrif- stofur Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. Hópurinn hefur stofnað bankareikning í Sparisjóði vélstjóra og er númer reikningsins 407 546, segir í fréttatilkynningu. Samkoma Súð- víkinga, Álftfírð- inga og Seyðfírð- inga syðra FÉLAG Súðvíkinga, Álftfii-ðinga og Seyðfirðinga syðra verður sunnudag- inn 14. mars í Safnaðarheimili Dóm- kirkjunnar að lokinni messu í kirkj- unni sem hefst kl. 14. Prestur er sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, fyrrver- andi sóknarprestur Súðvíkinga. Félagsstjómin gengst fyrh’ sam- komunni og dagskrá hennar. Fólk úr þessum sveitum við Djúp er velkom- ið ásamt fjölskyldum sínum til þess að styrkja kynnin og rifja upp liðna tíð, segir í fréttatilkynningu. Lýst eftir stolinni bifreið LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir bifreiðinni HX-898 sem er Toyota Corolla árgerð 1986, rauð að lit. Bifreiðinni var stolið frá Sjúkra- húsi Reykjavíkur, Fossvogi, mánu- daginn 8. mars. s.l. Þeir sem hafa einhverjar upplýs- ingar um bifreiðina hafi samband við lögregluna í Reykjavík. Fyrstu nemend- ur í jarðlagna- tækni útskrifast FYRSTU nemai’ í jarðlagnatækni eru nú að ljúka námi. Samorka hefur í samvinnu við Menningar- og fræðslu- samband alþýðu, Eflingu stéttarfélag og Landssímann undirbúið nám í jarðlagnatækni. Sautján manns munu ljúka námi. Markmiðin með starfs- náminu era betri og ánægðari starfs- kraftar, aukin gæði á lagnakerfi og auknir möguleikar á að bæta kjör starfsmanna og gera starfsmenn jafn- víga á jarðlagnir hjá vatnsveitum, hitaveitum, rafveitum og síma. Námið er hugsað fyrir ófaglærða starfsmenn sem vinna við jarðlagnir hjá hitaveitum, rafveitum, vatnsveit- um, fráveitum, Landssímanum og verktökum. Kenndar era bæði al- mennar greinar s.s. íslenska, stærð- fræði, tölvukennsla og bókleg og verk- leg kennsla í jarðlögnum, jarðvegs- fræði, rafrnagnsfræði og vélfræði. Einnig er íjallað um veitufyrirtækin, öryggismál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði og lög og reglugerðir er varða veitufyrirtækin. Starfsnámið er alls 300 tímar. Kennt er í þremur hálfs mánaðar tömum. Gert er ráð fyrir að næsti hópm’ byrji á haustmánuðum. Afhending skírteina fer fram í móttökuhúsi Vatnsveitu Reykjavík- ur kl. 14 laugai’daginn 13. mars nk. og mun borgarstjóri, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, afhenda skírteinin. Ólafur Ólafsson ræðir um sam- skipti lækna og sjúklinga STYRKUR, samtök krabbameins- sjúklinga og aðstandenda þeirra, verður með opið hús mánudaginn 15. mars kl. 20.30 í Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Olafur Ólafsson, fyrrverandi land- læknir, ræðir um samskipti lækna og sjúklinga. í frétt frá Styrk segir að allir velunnarar félagsins séu vel- komnfr. Fyrirlestur um uppeldisaðferðir DR. SIGRÚN Aðalbjarnardóttir, prófessor við Háskóla Islands, ræðir á fræðslufundi í Hofsstaðaskóla um uppeldisaðferðir og samskipti for- eldra og barna mánudaginn 15. mars k. 20.30. Nefnist fyrirlestur hennar: Ræðum saman heima - uppeldisað- ferðir foreldra. Sigrún hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum og unglingum og hefur gert rannsóknir m.a. á sam- skiptahæfni barna og áhrifum upp- eldisaðferða á áhættuhegðun. Sigrún hannaði einnig námsefnið Samvera sem notað hefur verið í grunnskólum með góðum árangri, segir í fréttatil- kynningu. Að loknum fyrirlestri verðm- boðið upp á kaffi og síðan verða fyiirspumh’. Árshátíð Alli- ange Fran^aise ÁRSHÁTÍÐ Alliance Francaise verður haldin fóstudaginn 19. mars í Risinu, Hverfisgötu 105. Dagskráin hefst kl. 20 með hátíð- arkvöldverði að katalónskum hætti. Matreiðslumeistari er Fancis Fons sem ættaður er frá Katalóníu, héraði á landamærum Frakklands og Spán- ai’. Meðan á borðhaldi stendur verða uppákomur og leikir og verður happ- drætti þar sem meðal vinninga verð- ur flugferð til Parísar. Loks verður stiginn dans fram á nótt. Aðgansmiðar liggja frammi í húsa- kynnum Alliange Frangaise, Austm’- stræti 3. Miðaverð er 2.950 kr. og veitir hver miði þátttöku í happ- drættinu. 3.950 kr. fyrir félagsmenn en 5.650 kr. fyrir aðra. Tekið er við ski’áningu á ski’ifstofu Gigtarfélags íslands, Ár- - múla 5, segir í fréttatilkynningu. Kaffidagur Dýr- fírðingafélagsins DÝRFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík heldur hinn árlega kaffi- dag félagsins sunnudaginn 14. mars í Bústaðakirkju. Hefst hann með guðsþjónustu kl. 14 en prestur verð- ur sr. Pálmi Matthíasson. Þegar messunni lýkur hefst kaffisala í safn- aðarheimilinu. Allir velunnrar félagsins og Dýra- fjarðar era velkomnir og er félags- mönnum 70 ára og eldri sérstaklega boðið. Námskeið um að styrkja bak BAKSKÓLI Gigtarfélags íslands hefst mánudaginn 15. mars kl. 17.-19. Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir sjúkraþjálfari kennir hvernig á að nota og styrkja bak á réttan hátt. Á námskeiðinu verður farið i upp- byggingu baksins og helstu mein og varnh’ þeirra, líkamsbeitingu og vinnuvemd. Hver tími er byggður upp af bæði bóklegum og verklegum þáttum. Einnig er gert ráð fyrir að hópurinn geti hist eftir 4-6 vikur til að ræða hvemig gangi og rifja upp það sem lærst hefur. Námskeiðið kostar 3.950 kr. fyrir félagsmenn en 5.650 kr. fyrir aðra. Tekið er við skráningu á skrifstofu Gigtarfélags Islands, Ár- múla 5, segir í fréttatilkynningu. Leiðrétt Internetið - útflutningsleið nútímans í frétt sem birtist í Morgunblað- inu í gær um ráðstefnuna „Intemet- ið - útflutningsleið nútímans“ féll niður annar aðstandandi ráðstefn- unnar. Hið rétta er að ráðstefnan var haldin á vegum Útflutningsráðs íslands og Samtaka íslenskra hug- búnaðarfyrirtækja. Er beðist vel- virðingar á þessum mistökum. Aðalfundur Eimskips I frétt er birtist í Morgunblaðinu í gær um aðalfund Eimskips vantaði orð (arð) inn í textann. Bfrtist hann réttur hér: Á fundinum var sam- þykkt samhljóða að greiða 10% arð til hluthafa. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.