Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 39 NEYTENDUR Verðmunur milli verslana í Eyjafirði og á Vestfjörðum þar sem meðalverð úr öllum verslunum í könnuninni er 100 KEA-Nettó, Akureyri Hagkaup, Akureyri KEA Hrísalundur Samkaup, ísafirði Valberg, Ólafsfirði KEA, Byggðavegi KEA, Ólafsfirði KEA, Dalvík KEA, Sunnuhlíð Hraðkaup, Akureyri KEA, Hrísey KS, Hólmavík Verslun G.S. Þingeyri Sandafell Þingeyri LÆGRA VERÐ HÆRRA VERÐ 17,5% HfL 8,4% ■fi-; > Meðalverð úr öllum 8,3% wm 3,0% ■ 0,1%! verslunum, er sett sem 100% 0,4% 1 0,9% 1 1,0% 1 1,2% ■ 2,5% > íIHl 6,6% 9,3% ..flHBI 12,8% Verðmunur milli KEA Nettó, Hagkaups og Samkaup á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni KEA - NETTÓ HAGKAUP 101,2% -100,7% SAMKAUP 106,7% 105,4% Akureyri Reykjav. Akureyri Reykjav. ísafjörður Hafnarfj. Verðbreytingar í versl. í Eyjafirði og á Vestfjörðum frá 8. júlí 1998 til 3. mars 1999 KEA-Nettó, Akureyri Hagkaup, Akureyri KEA Hrísalundur Samkaup, ísafirði Valberg, Ólafsfirði KEA, Sunnuhlíð KEA, Byggðavegi KEA, Ólafsfirði KEA, Daivík -11.68 KEA, Hrísey Verðkönnun í matvöruverslunum á Eyjafjarðarsvæði og Vestfjörðum Verðið lægst í KEA-Nettó og Samkaupum Á EYJAFJARÐARSVÆÐI _ er verð lægst í KEA Nettó og á ísa- firði er verðið lægst í Samkaup- um. Þetta kemur fram í verðkönn- un sem gerð var á vegum Neyt- endasamtakanna og verkalýðsfé- laga á Eyjafjarðarsvæðinu og Vestfjörðum. Álls var farið í 14 matvöruverslanir 3. mars sl. Ein verslun, Eló á ísafirði, neitaði að taka þátt í könnuninni. Að sögn Ágústu Ýrar Þorbergs- dóttur hjá Neytendasamtökunum hefur vöruverð lækkað í öllum verslunum á Eyjafjarðarsvæðinu nema í Hagkaupi frá því könnun var síðast gerð í júlí sl. Kann skýr- ingin að vera sú að ný verslun, Hraðkaup, hefur hafið starfsemi á svæðinu. Ágústa segir að á sama tíma og könnunin var gerð hafi verið gerð svipuð könnun í versl- unum á höfuðborgarsvæðinu. „Það reyndist ekki marktækur munur á þeim þremur keðjum sem reka verslanir bæði á höfuðborgar- svæðinu og þeim svæðum sem þessi könnun náði til.“ Ágústa segir að í fyrri könnun- um hafí verið um 3% verðmunur á KEA Dalvík og KEA Ólafsfirði. Þessi munur segir hún að hafi minnkað og var þegar könnunin var gerð um 1%. KEA er eina verslunin á Dalvík, en á Ólafsfirði er KEA í samkeppni við verslun- ina Valberg sem tekur þátt í inn- kaupasamstarfi undir heitinu Þín verslun. Allar þessar þrjár versl- anir hafa lækkað verð frá síðustu könnun í júlí og þá KEA Dalvík mest. Verð hjá Samkaupum á Isa- firði hefur lækkað um 4% frá síð- ustu könnun. Alþjóðadagur neytendaréttar 15. mars Upplýs- ingamið- stöð fyrir neytendur ALÞJÓÐADAGUR neytendarétt- ar er haldinn hátíðlegur þann 15. mars. Lágmarkskröfur neytenda voru fyrst settar fram árið 1962 af John F. Kennedy þáverandi for- seta Bandaríkjanna. Alþjóðasam- tök neytenda hafa síðan bætt við kröfurnar. - En hverjar eru þessar kröfur og hvernig stöndum við að vígi með tilliti til þessara krafna? „Fyrsta krafan er um rétt neyt- enda til fullnægjandi grunnþarfa eins og fæðis, klæða og skjóls“, segir Jóhannes Gunnarsson for- maður Neytendasamtakanna. „Væntanlega Mlnægir samfélag okkar þessari kröfu. I öðru lagi er það rétturinn til öryggis, að neyt- endur geti áhyggjulausir keypt vöru og þjónustu sem í boði er. Is- lensk stjómvöld hafa tekið á sig ábyrgð í þessum efnum með EES- samningnum. Eg fullyrði þó að brotalöm sé á eftirliti hér, það þarf að bæta og samræma betur en nú er gert.“ Jóhannes segir að þriðja atriðið sé mikilvægt fyrir neytendur en það er rétturinn til upplýsinga. „Þama skipta fjölmörg atriði máli s.s upplýsingar um rétt neytenda, framboð og verð, gæði vöra og þjónustu og upplýsingar á umbúð- um vöra. Neytendasamtökin leggja til að þessu verði náð með því að sett verði á stofn Upplýsingamið- stöð neytenda. Fjórða lágmarkskrafa neytenda er rétturinn til að velja, að neyt- endur eigi völ á góðu úrvali vara og þjónustu á sanngjömu samkeppn- isverði. Úrvalið er að mestu í lagi hér, en er verðið alltaf sanngjamt? Hvað með vörar eða þjónustu fyr- irtækja á fákeppnis- og einokunar- mörkuðum? Ög hvað með við- skiptahömlumar sem enn era við lýði? Rétturinn til áheyrnar er fimmta krafa neytenda sem felur í sér að tekið sé tillit til sjónarmiða neyt- enda, þegar lög og reglur eru sett- ar er varða hagsmuni þeirra. Þarna er oft við ramman reip að draga og fámennir og öflugir þrýstihópar virðast oftast hafa meiri áhrif á ákvarðanir stjórnmálamanna en fulltrúar hagsmunasamtaka neyt- enda.“ Umboðsmaður neytenda Rétturinn til bóta er sjötta kraf- an og hún er mikilvæg að mati Jó- hannesar. „Við eigum rétt til bóta ef okkur era seldar gallaðar vörar eða þjónusta eða salan fer fram á röngum forsendum. Neytendum hefur verið tryggður aðgangur að ódýram og fljótvirkum úrlausnar- leiðum utan dómstóla með Kvört- unarþjónustu NS og úrskurðar- nefndum sem samtökin stóðu að stofnun á. Þá þarf að tryggja rétt- mæta markaðssetningu og að ýms- ar sanngjamar leikreglur gildi á markaðnum. Það á að gera með stofnun sérstaks embættis Um- boðsmanns neytenda.“ N eytendafræðsla fyrir grunnskóla Rétturinn til fræðslu er sjöunda krafan. Jóhannes bendir á að á þessum vetri hafi verið gefið út námsefni í neytendafræðslu fyrir grannskóla sem marki tímamót en það sé þó einungis byrjunin. Áttunda og síðasta krafan er réttur neytenda til heilnæms og sjálfbærs umhverfis. „Vissulega stöndum við þama vel í saman- burði við flestar aðrar þjóðir. En ýmislegt má þó bæta.“ LAGERSALA Seld verða sýnishorn úr versluninni, útlitsgallaðar vörur og síðustu eintök. Samsettar og ósamsettar vörur. ■ 40-80 AFSLATTU i Aðeins laugardag og sunnudag. Fyrstur kemur - fyrstur fær! OPIÐ UM HELGINA 10:00-17:00 LAUGARDAG 12:00-17:00 SUNNUDAG - fyrir alla mmti i»róttir á Netinu ^mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.