Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 26
irgus / NA011 MORGUNBLAÐIÐ 26 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 RACHEL EMILY GRIFFITHS WATSON TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Besta leilckona í aðalhlutverki Besta leikkona í aukahlutverki TVÆR®TUR. TVOLIF. EINAST N SAGA: 14.990 kr. Idag opnar ný Nautilus líkamsræktarstöð í kjallara Suður- bæjarlaugarinnar í Hafnarfirði Þar munu faglærðir kennarar leið- beina hverjum einstaklingi um þjálfun í nýjustu og fullkomnustu Nautilus tækjunum. í tilefni opnunarinnar býður Nautilus einstakt tilboó; árskort á Nautilus á íslandi Suðurbæjarlaug Hafnarfirði og Sundlaug Kópavogs Innifalió er aðgangur aö sundlauginni hvenær sem hún er opin, einnig má nota kortið í Sundlaug Kópavogs Tilboðið stendur aðeins til 21. mars. n.k. VIÐSKIPTl Kvartanir Miðlunar á hendur Landssímanum Öllum frjálst að selja upplýsinga- þjónustu í sínia SAMKEPPNISRÁÐ hefur úr- skurðað í tveimur málum sem rekja má til kvartana fyiirtækisins Miðl- unar ehf. á hendur Landssímanum. Ráðið mælti fyrir um að Landssím- inn skuli veita þeim, sem vilja reka upplýsingaþjónustu í síma gegn gjaldi, aðgang að þeirri aðstöðu Landssímans sem nauðsynleg er til þess að geta boðið upp á slíka þjón- ustu auk þess sem samkeppnisráð taldi ekki tilefni til íhlutunar á grundvelli samkeppnislaga vegna kvörtunar Miðlunar vegna ókeypis aðgangs notenda að símaskrá Landssímans á Internetinu. Miðlun hafði kvartað yfir því til Samkeppnisstofnunar, að upplýs- ingaþjónustu Landssímans, 118, væri heimilt að taka sérstakt auka- gjald fyrir símtal í þjónustuna. Gulu Línunni, upplýsingaþjónustu Miðl- unar, væri hins vegar ekki unnt að taka slíkt aukagjald, heldur yrði fyrirtækið að byggja afkomu þjón- ustunnar eingöngu á skráningar- tekjum frá fyrirtækjum. Með þessu taldi Miðlun að Gulu línunni væri mismunað í samkeppni þar sem fyr- irtækin tvö veitu að vissu leyti sams konar þjónustu. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Samkeppnisstofnun hafði Lands- síminn ekki viljað veita þeim sem annast upplýsingaþjónustu, eins og Gulu línunni, aðgang að þeirri að- stöðu fyrirtækisins sem nauðsynleg er til þess að unnt sé að taka sér- stakt gjald fyrir símtal í slíkar línur, á sama hátt og gert er varðandi sjálfvirkar upplýsingalínur á svokölluðum símatorgum. Sam- keppnisráð lítur svo á að synjun Landssímans um aðgang að þessari nauðsynlegu aðstöðu hafi skaðleg áhrif á samkeppni og brjóti því gegn samkeppnislögum. Fyrirtæki, sem vilja koma á fót fyrmefndum upplýsingalínum geti ekki leitað annað en til Landssímans um að- gang að þeirri aðstöðu sem nauð- synleg er til starfseminnar. Með synjun sinni telur ráðið að Lands- síminn haldi fyrirtækjum frá við- komandi markaði og takmarki þar með valkosti neytenda en fyrirtæk- ið reki sjálft upplýsingalínu um símanúmer sem skarist að nokkru leyti t.d. við starfsemi Gulu línunn- ar. Samkeppnisráð mælir því fyrir um að Landssíminn veiti þeim sem vilja reka upplýsingaþjónustu með svörun í síma gegn sérstöku gjaldi fyrir símtalið, aðgang að nauðsyn- legri aðstöðu hjá fyrirtækinu. í málinu var því haldið fram af hálfu Landssímans að ekki væri hægt að veita aðgang að umræddri aðstöðu f'yrr en búið væri að setja opinberar reglur um þá þjónustu sem hér um ræðir. I niðurstöðu samkeppnisráðs er byggt á þeirri niðurstöðu samgönguráðuneytis og Póst- og fjarskiptastofnunar að gildandi lög og reglugerðir standi ekki í vegi fyrir því að Landssíminn veiti aðgang að aðstöðunni og því ekki þörf á sérstökum reglum um þessa þjónustu. Litlar tekjur á móti kostnaði I síðara málinu hafði Miðlun kvartað til Samkeppnisstofnunar yfir því að Landssíminn veiti ókeyp- is aðgang að símaskrá fyrirtækisins á Internetinu. Auk þess bjóði Landssíminn upp á skráningu net- og veffanga í netsímaskrána, en Miðlun gefur m.a. út netfangaskrá. Landssíminn opnaði fyrir endur- gjaldslausan aðgang að netsímaskrá sinni í júní 1998 og hóf að selja aug- lýsingar í skrána í október sama ár. Samkeppnisráð telur sýnt að litlar tekjur hafi komið á móti kostnaði við útgáfu og rekstur skrárinnar þann tíma sem skráin hefur verið aðgengileg á Internetinu og þannig hafi Landssíminn enn sem komið er haft óverulegar tekjur af þessari starfsemi sinni. Pó lítur ráðið til þess að viðskipti á Intementinu séu í verulegri þróun. Ljóst sé að mark- aðssetning upplýsingaveitu eins og símaskrárinnar á Internetinu sem auglýsingamiðils, taki nokkurn tíma en fyrir liggja áætlanir Landssím- ans um að auglýsingatekjur standi undir rekstri netsímaskrárinnar i framtíðinni. Þá bendir ráðið á að sú skylda hvíli á Landssímanum skv. eldri ákvörðunum samkeppnisyfir- valda að mismuna ekki aðilum er kaupa aðgang að gagnagrunni síma- skrárinnar og nýta hann síðan til útgáfu, m.a. á Internetinu. Með vísan til þessa taldi samkeppnisráð ekki ástæður til íhlutunar á grund- velli samkeppnislaga vegna ókeyp- is aðgangs að netsímaskrá Lands- símans. Viðskiptahalla spáð áfram VIÐSKIPTAHALLINN var 33,5 milljarðar á árinu 1998 og hefur hann ekki verið meiri á tíu ára tímabili. í ár er spáð um 30 milljarða króna halla. Eins og hér sést að ofan hefur viðskiptajöfnuðurinn einungis þrisvar verið jákvæður, þ.e. á árunum 1993-95, á tíu ára tímabili. 1998 -33,48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.