Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 63
j
Safnaðarstarf
Fagnaðardagur
í Fríkirkjunni
Veginum
IÁ MORGUN, sunnudag, er sér-
stakur fagnaðardagur í Fríkirkj-
unni Veginum, Smiðjuvegi 5, Kópa-
vogi. Tiu manna hljómsveit heldur
uppi gleðisveiflu. Stuttur leikþátt-
ur verður fluttur, vitnisburðir
sagðir og mikill söngur. Herdís og
Gísli flytja splunkunýja tónlist í
bland við eldri. Heitt á könnunni á
eftir.
Húið opnað klukkan 19.30 en dag-
skráin hefst kl. 20.
Kaffisala í Óháða
söfnuðinum
FJÖLSKYLDUGUÐSPJÓNUSTA
er í kirkju Óháða safnaðarins
sunnudag kl. 14. Að henni lokinni er
kaffisala kvenfélagsins til styrktar
Bjargarsjóði, líknarsjóði Óháða
safnaðarins. Þar verður viðamikill
viðurgerningur reiddur fram af
kvenfélagskonunum. Eru menn
| hvattir til þess að mæta í messuna
og fá jafnt andlega sem líkamlega
næringu á þessum degi.
Barátta og
gleði í Kvenna-
kirkjunni
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í Áskirkju sunnudaginn
14. mai’s kl. 20.30. Yfirskrift
messunnar er: Baráttan og gleðin.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir pré-
dikar og sagt verður frá starfi
Hjálparstarfs kirkjunnar meðal
KIRKJUSTARF
kvenna og bama á Indlandi. Mikill
söngur verður í messunni og nýir
söngvar kenndir. Sunginn verður
nýr sálmur eftir Eygló Eyjólfsdótt-
ur sem hún orti sérstaklega fyrir
Kvennakirkjuna. Það er stefna
Kvennakirkjunnar að hafa sem
mest af sálmum eftir konur og
sálmum þar sem talað er til kvenna
eða beggja kynja, en ekki eingöngu
til karla eins og algengt er í íslensk-
um sálmum.
Eftir messu verður kaffi í safnað-
arheimili Áskirkju.
Heimsókn í
Seljakirkju
VON er góðra gesta í Seljakirkju á
sunnudag. Sóknarprestur og söng-
fólk, ásamt organista Holtspresta-
kalls í Rangárvallasýslu, koma og
heimsækja Seljasöfnuð. Við guðs-
þjónustu kl. 14 mun sr. Halldór
Gunnarsson, sóknarprestur í Holts-
prestakalli, prédika en prestar
Seljakirkju þjóna ásamt honum fyr-
ir altari. Kórar beggja sóknanna
munu leiða söng og syngja í guðs-
þjónustunni. Söngstjóri og organisti
í Holtsprestakalli er Þorgerður
Jóna Guðmundsdóttir en í Selja-
kirkju er söngstjóri og organisti
Gróa Hreinsdóttir.
Mætum til guðsþjónustu og tök-
um vel á móti góðum gestum ásamt
því að uppbyggjast í Guðs orði í tali
og tónum.
Seljasókn.
Borgarstjóri á
fræðslumorgni í
Hallgrímskirkju
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík
mun á sunnudag fiytja erindi á
fræðslumorgni í Hallgrímskirkju
kl. 10. Borgarstjóri mun ræða um
„trú og stjórnmál". Eftir fyrirlest-
urinn kl. 11 verður messa og
barnastarf. Hópur úr Mótettukór
syngur undir stjórn organistans
Douglas A. Brotchie og prestur
verður sr. Jón D. Hróbjartsson.
Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30.
Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyr-
ir unglinga kl. 21.
Hafnarfjarðarkirkja. Kl. 11-12.30
opið hús í Strandbergi. Trú og
mannlíf, biblíulestur og samræður.
Leiðbeinendur sr. Gunnþór Inga-
son og Ragnhild Hansen.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Ræðumaður
Sigrún Einarsdóttir. 16. mars:
bænastund kl. 20.30. 17. mars:
Samverustund unglinga kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri
barna (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vina-
minni kl. 13.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 í Hiíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
KFUM og KFUK. Fjölskylduguðs-
þjónusta verður í Perlunni á morg-
un, sunnudag, kl. 14, vegna 100 ára
afmælis æskulýðsstarfs KFUM og
KFUK. Að lokinni guðsþjónust-
unni verða tónleikar í boði KFUM
og KFUK. Aðgangseyrir er eng-
inn. Allir velkomnir og fólk hvatt
til að fjölmenna. Ath. Engin sam-
koma verður í aðalstöðvum KFUM
og KFUK við Holtaveg á morgun
vegna hátíðarinnar í Perlunni. -
Opið hús verður í Perlunni í dag
frá kl. 13-18. Kynning á starfi og
sögu KFUM og KFUK. Allir vel-
komnir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 13 laugar-
dagsskóli. Kl. 20.30 vakningarsam-
koma. Ofurstarnir Norunn og
Roger Rasmussen tala.
Glóbleikt og purpuralitt
Hot Fuchsias
Nýir litir sem minna á suðrænar hitabeltiseyjar:
Bleikt, purpuralitt og sægrænt
ímyndaðu þér að þú sért á suðrænni eyju.
Sjáðu fyrir þér draumbláan himinn, og dulúðug kvöld.
Varirnar klæðast villtum bleikum
litum - glóbleiku, purpurasvölu.
Augun verða framandleg í mjúkum
næturskuggum, með smáskammti
af blágrænu til áherslu.
Neglurnar glampa í eyjableiku
og Ijósfjólubláu.
í þessari línu er lögð áhersla
á nýju Color Swirl litina fyrir varirnar
og á Duo Sticks augnskuggana.
Þessj seiðandi suðræna lína frá
ESTEE LAUDERfæstí:
■SNfRTIVÖRUVERSLUNIN
GL/ESÍÆ
sími 568 5170
I
I
I
I
íþr. skór
barna & fullorðins
Man. United
Verð áður kr. 6,490
Verð nú
i kr. 4,490
Nike & Puma skór
Ensku bolta-vörurnar
30% afsláttur
Barnaúlpa
Verð áður kr. 4,990
Verð nú
kr. 2,990
Hjólabuxur \
2 stk. kr. 1,995
íþr. gallar
Barna & fullorðins
Gönguskór
Verð áður kr. 6,990
Verð nú kr. 3,990
Úlpur
Fullorðins
Verð áður kr. 7,990
Verð nú kr. 3,990
Barna
Verð áður kr. 5,990
Verð nú kr. 3,490
Kuldagalli
Verð áður kr. 9,500
Verð nú
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Jakkar
Fullorðins
Verð áður kr. 5,990
Verð nú kr. 2,990
Barna
Verð áður kr. 3,990
Verð nú kr. 1,990
Barnajakkar *
Verð áður kr. 4,
Verð nú
kr. 1,990
Snjóbrettaúlpa
Verð áður kr. 8,990
Verð nú
kr. 5,995
Laugavegi 49 » slml 551 2024
LAUGARDAG KL.: 10,00 -17,00
SUNNUDAG KL.: 13,00 -18,00
30-70% afsláttur