Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 25
Finnur Ingólfsson á fundi með
frammámönnum atvinnulífsins
Ný uppspretta
aukins hagvaxtar
Aðalfundur
RAFRÆN viðskipti eru á góðri leið
með að bylta hefðbundnum við-
skiptaháttum. Petta kom fram í
máli Finns Ingólfssonar iðnaðar- og
viðskiptaráðherra á hádegisverða-
fundi með frammámönnum atvinnu-
lífsins nýverið þar sem áherslur og
aðgerðir iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytis á sviði rafrænna viðskipta
voru kynntar. Sagði Finnur að við-
teknar viðskiptavenjur myndu
breytast við tilkomu rafrænna við-
skipta, milliliðum fækka, viðskipta-
kostnaður lækka, nánara samband
myndi ríkja milh fyrirtækja og nýir
markaðir og vörur myndu spretta
upp. Því væri ekki að undra, að tal-
að væri um hinn fullkomna markað
sem muni koma til með að reynast
öflugasta uppspretta hagvaxtar á
næstu árum.
I fréttatilkynningu kemur fram,
að ráðherra hafi hvatt fulltrúa við-
skiptalífsins til að taka höndum
saman með stjórnvöldum til að
vinna að framgangi rafrænna við-
skipta. Markmið þeirrar vinnu er að
tryggja að rafræn viðskipti njóti
viðurkenningar að lögum þannig að
frjór jarðvegur skapist fyrir ís-
lenskt viðskiptalíf til að vera í farar-
broddi á þessu sviði, sagði Finnur.
Viðskiptaráðherra kynnti á fund-
inum úttekt á íslenskum lögum með
tilliti til rafrænna viðskipta sem
tveir lögfræðingar, þeir Gunnar
Thoroddssen og Skúli Magnússon,
hafa unnið fyrir ráðuneytið. I
skýrslunni, sem nefnist „Rafræn
viðskipti - umfjöllun um íslensk
lög“, komast höfundar að þeirri
meginniðurstöðu, að ekki sé unnt að
fullyrða að núgildandi lög tryggi
það, að rafræn viðskipti verði metin
til jafns við viðskipti sem staðfest
eru með hefðbundinni undirskrift í
viðskiptum þar sem venjan er að
krefjast skriflegrar staðfestingar á
viðskiptunum. Því sé rétt að al-
mennar reglur séu settar, sem
tryggi að löggerningar sem stofnað
er til með rafrænum hætti njóti
sambærilegrar stöðu cg hefðbundn-
ir löggerningar.
Lagagrundvöllur rafrænna
viðskipta treystur
I fréttatilkynningu frá iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu kemur fram
að ráðherra hafi skipað tvær nefndir
til að treysta lagagrundvöll raf-
rænna viðskipta. Önnur er fjögurra
manna nefnd sem fjallar um rafræn-
ar undirskriftir í viðskiptum, og er
henni stýrt af Gunnari Jónssyni
hæstaréttarlögmanni. Hinni nefnd-
inni er ætlað að vinna að mótun
reglna um rafrænan greiðslumiðil,
eða rafeyri, og meta hvort þörf sé á
sérstökum lögum um greiðslukorta-
starfsemi. Er það níu manna nefnd
með Yngva Öm Kristinsson, fram-
kvæmdastjóra peningamálasviðs
Seðlabanka Islands í forsæti.
Auk þessara tveggja atriða eru
megin aðgerðir ráðuneytisins á sviði
rafrænna viðskipta á þessu ári á
sviði greiðslumiðlunar, neytenda-
verndar og þess að skapa sóknar-
færi fyrir Islendinga á þessu sviði,
enda eru rafræn viðskipti óháð tíma
og stað. Hyggst ráðuneytið gera út-
tekt á því hvar íslendingar geti látið
til sín taka í þessari nýju tegund
viðskipta, og hvað stjórnvöld geta
gert til að tryggja að svo geti orðið.
[ Dagskrá aðalfundar FBA árið 1999
Aðalfundur Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. verður haldinn
miðvikudaginn 24. mars 1999 kl. 15.00 í Borgarleikhúsinu.
Dagskrá fundarins er þessi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu
endurskoðanda félagsins verða lögð fram til staðfestingar.
3. Meðferð hagnaðar.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðanda.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir
síðastliðið og næstkomandi kjörtímabil.
7. Breyting á samþykktum félagsins, vegna tilkomu
rafrænnar skráningar verðbréfa.
8. Önnur mál. \
5
í
Gögn sem lögð verða fyrir fundinn eru hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins
að Ármúla 13a, Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 17. mars 1999. I
FJARFESTINGARBANKl
ATVINNULÍFSINS H F
Armúli 13a
108 Reykjavík
Sími: 580 50 00
Fax: 580 50 99
www.fba.is
NÝBYLAVECI 2 S í M 1 551, 2600
JIÖFUR
Rúm fyrir fjölskylduna
PEUGEOT
PRÓFIÐ
'ST
1800 cc, ii2 hestafla vél * Viðarlnnrétting * Geislaspilari * Álfelgur * Vindkljúfur * ABS * Loftpúðar * Fjarstýrðar samlæsingar * Þjófavörn og margt fleira
406 Lion d’Or - 7 manna skutbíll
1,890.000 kr.
PEUGEOT
LjÖn A Vejinitnfí
--- Opið -----
laugardag 13-17
sunnudag 13-16