Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Sparisj óður V estmannaeyj a
27 milljóna kr. hagnaður
Olíufélagið hf. ( £ssq) '“s''6'
Rekstrarreikningur Mmjónir króna 1998 1997 Breyt.\
Rekstrartekjur 10.462 10.910 -4%
Rekstrargjöld 9.852 10.463 -6%
Rekstrarhagnaður f. fjármagnsliði og skatta 610 447 +37%
Fjármagnsliðir 2 18 -89%
Tekju- og eignaskattur (219) (175) +25%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 393 290 +36%
Hagnaður 394 285 +38%
Leiðrétting
RANGAR tölur birtust í töflu
með grein um afkomu Olíufélags-
ins hf. - Esso í Morgunblaðinu
síðastliðinn fimmtudag og er hún
því birt aftur. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
HAGNAÐUR af rekstri Sparisjóðs
Vestmannaeyja nam liðlega 40 millj-
ónum króna fyi'ir skatta en eftir
tekju- og eignarskatta nam hagnað-
ur ársins 1998 26,9 milljónum króna.
Heildartekjur Sparisjóðsins námu
260 milljónum króna og rekstrar-
gjöld að meðtöldum afskriftum voru
tæplega 220 milljónir króna.
Innlán og verðbréfaútgáfa Spari-
sjóðsins námu í árslok tæplega 1.798
milljónum króna og höfðu aukist um
tæp 10% á árinu. Heildarinnlán
sjóðsins voru í árslok tæplega 1.613
mUljónir króna og höfðu aukist um
28% á árinu. Langstærstu útlána-
flokkamir voru eins og áður tU ein-
staklinga og íbúðarlána, eða 52% af
heUd, því næst kom sjávarútvegur
með 33%, verslun og þjónusta með
9% og iðnaður og byggingastarfsemi
með 4% af heildarútlánum sjóðsins.
I fréttatilkynningu kemur fram að
eigið fé Spaiisjóðsins nam í árslok
liðlega 285 mUljónum króna og hafði
aukist um rúmlega 12%. Samkvæmt
reglum um eigið fé banka og spari-
sjóða, CAD reglum, var eiginfjár-
hlutfall 16,5% af útreiknuðum
áhættugrunni í árslok 1998 en má
lægst vera 8%. Sparisjóðurinn setti
upp hraðbanka í verslun KA við
Goðahraun í Vestmannaeyjum á
fyrrihluta ársins auk þess sem Spari-
sjóðurinn gerðist aðili að Verðbréfa-
þingi Islands á miðju ári sem auð-
veldar öU viðskipti með hlutabréf. Þá
var tekið í notkun nýtt og mjög full-
komið afgreiðslukerfi í Sparisjóðn-
um í desember sl. sem mun hafa í för
með sér aukin þægindi fyrir við-
skiptamenn Sparisjóðsins. Starfs-
menn Sparisjóðsins eru 15 talsins og
sparisjóðsstjóri er Benedikt Ragn-
arsson.
Þjóðarbú-
skapurinn
á Netinu
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN gefur jafn-
an út ritið Þjóðarbúskapinn á fyrsta
ársfjórðungi nýs árs. I ritinu er lýst
framvindu efnahagsmála á liðnu ári
og jafnframt er lýst mati stofnunar-
innar á framtíðarhorfum í þjóðarbú-
skapnum. Að þessu sinni verður birt-
ing með eilítið öðru sniði en venju-
lega, því ritið verður fyrst birt á
heimasíðu Þjóðhagsstofnunar
www.ths.is þriðjudaginn 16. mars
nk. eftir kl. 16, en prentuð útgáfa
mun liggja fyrir nokkrum dögum
síðar.
I fréttatilkynningu kemur fram að
Þjóðhagsstofnun mun einnig senda
þeim aðilum sem þess óska fréttatil-
kynningu í tölvupósti með yfírliti yfn-
helstu niðurstöður skýrslunnar á
sama tíma og hún er birt í heild á
Netinu. Viðkomandi geta skráð sig á
útsendingarlista með því að senda
beiðni ásamt upplýsingum um nafn,
póstfang, símanúmer/faxnúmer og
netfang til Þjóðhagsstofnunar, en
netfang hennar er ths@centbk.is.
Einnig er hægt að hafa samband við
stofnunina með hefðbundnum hætti
að Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík, í
síma 569 9500 eða myndsíma
562 6540.
------------------
Miðlarar
á hálum ís
Stokkhólmi. Reuters.
KAUPHÖLLIN í Stokkhólmi hefur
vísað máli Credit Suisse First
Boston (CSFB) og Nordiska verð-
bréfafyrirtækisins til aganefndar,
sem verður falið að rannsaka hvort
umrædd fyrirtæki eða staifsmenn
þeirra hafí brotið reglur, vegna ásak-
ana um ólögleg viðskipti með hluta-
bréf í trjávörufyrirtækinu Stora.
Aldrei hefur gerzt áður að mál að-
ila kauphallarinnar komi til kasta
aganefndarinnar, sem hefur vald til
að reka þá sem gerast sekir, alfarið
eða um stundarsakir, eða dæma þá í
sekt að upphæð allt að 10 milljónum
sænskra króna að sögn yfirmanns
markaðseftirlitsins, Mats Wilhelms-
son.
Nýlega rak CSFB þrjá verðbréfa-
sala sína í London, sem voru kallaðir
„Flaming Ferraris" í höfuðið á eftir-
lætis hanastéli þeirra, vegna ásak-
ana um viðskipti með sænsk hluta-
bréf. Einn þeira var sonur brezka
milljónamæringsins Jeffrey Ai-cher,
hins kunna rithöfundar og stjórn-
málamanns.
Sænska fjármálaeftirlitið, Fin-
ansinspektionen, kannar einnig
ásakanir um óheiðarleg viðskipti
með bréf í Stora, sem hefur verið
sameinað Enso í Finnlandi í Stora
Enso.
Fjármálaeftirlitið hefur samvinnu
við brezk fjármálayfirvöld í málinu
að þess sögn.
Verðbréfasali Nordiska hefur látið
af störfum að sögn fyrirtækisins.
Ekki hefur áður verið minnzt á Nor-
diska í sambandi við rannsóknina.
I
Verð fráaðeins:
830 kr. pr. nr|
og boröar
4 20%
afsláttur
Sommer
yfir 30 litir
Verð frá:
830 kr. pr. m
Á gólf og veggi
Verð fra:
1.090 kr. pr. m
Boen parket
á frábæru tilboðsverði.
7 mismunandi gerðir. ?
Verð frá: 2.690 kr. pr. m
málning %
MMÁUWNGÁVEGG! 41
HÁlfMÖTT PIASTMÁLNING GUÁSTIG <0 ^
Ertu að byggia - Víltu breyta - Þarftu að bæta?
Grensásvegi 18 s: 581 2444.
Opið mánud.- föstud. kl. 9-18, laugard. 10-16, sunnud. 12-16