Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
MARGIR fengu viðurkenningar á Héraðsþingi HSK en fyrir miðju er Guðmundur Kr. Jónsson frá Umf. Sel-
fossi, sem tók við verðlaunum fyrir hönd íþróttamanns ársins 1998, Magnús Aron Hallgrímsson kringlukast-
ara, sem einnig er í Umf. Seifossi, en hanu var staddur erlendis við æfingar.
Nýtt ferðaúti-
bú á Akranesi
Akranesi - Nýr umboðsmaður, Þór-
dís Ai’thursdóttir, hefur tekið við sölu-
umboði Norrænu ferðaskrifstofunnar,
Smyril Line, Ferðaski’ifstofu Úrvals-
Útsýnar og Plúsferða á Akranesi og
opnað skrifstofu á Kirkjubraut 3.
Þórdís er ekki alveg ókunnug ferða-
málum og þjónustu vegna þeirra. Hún
starfaði m.a. um árabil sem ferða-
máiafuiltrúi Akranesbæjar og byggði
upp öfluga ferðaþjónustu á Akranesi.
Úi'val-Útsýn og Plúsferðir hafa um
árabil haft umboðsskrifstofu á Akra-
Að sögn Þórdísar hefur mikið verið
að gera frá opnun skrifstofunnar, sem
ber upp á sama tíma og mest spurn er
eftir sumarleyfisferðum ársins. Hald-
in var ferðakynning á dögunum og var
hún vel sótt. Þórdís er bjartsýn á
framtíðina og segir byrjunina hjá sér
gefa góðar vonir. Þórdís mun hafa
listahorn á skrifstofu sinni þar sem
listamenn munu sýna verk sín og nú
stendur þar yfir sýning Philippe
Ricaif, sem sýnir veflistaverk og
myndir úr flóka.
Blönduós
Sigursteinn Guðmunds-
son læknir heiðraður
Biönduósi - Austur-Húnvetningar
þökkuðu Sigursteini Guðmunds-
syni héraðslækni fjörutíu ára
giftudijúgt starf í samsæti sem
haldið var honum til heiðurs í fé-
lagsheimilinu á Blönduósi að við-
stöddu fjölmenni á sunnudag. Það
var héraðasnefnd A-Húnavatns-
sýslu sem stóð fyrir samkomunni
fyrir hönd héraðsbúa.
Lárus Ægir Guðmundsson
stjórnaði samkomunni og oddviti
héraðsnefndar Erlendur G. Ey-
steinsson færði Sigursteini lista-
verk eftir listamanninn Æju sem
þakklætisvott frá íbúum héraðs-
ins. Feðginin Jóna Fanney og
Svavar H. Jóhannsson fluttu sam-
komunni nokkur lög við góðar
undirtektir, alþýðan söng og
haldnar voru margar snjallar
ræður.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
SIGURSTEINN Guðinundsson fékk að gjöf frá íbúum A-Húnavatnssýslu listaverk eftir Æju. Talið frá vinstri
Bryndís B. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Sigursteinn Guðmundsson og sambýliskona
hans, Kristín Ágústsdóttir, og Erlendur G. Eysteinsson, oddviti héraðsnefndar.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
ÞORDIS Arthursdóttir, hinn nýi umboðsmaður Norrænu ferðaskrif-
stofunnar, Smyril Line og Ferðaskrifstofunnar Urvals-Utsýnar og
Plúsferða, á skrifstofu sinni.
Sjóvá-Almennar og
Ferðaskrifstofa Aust-
urlands í Níuna
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
HANNIBAL Guðmundsson og Helgi Kjærnested, eigendur Ferðaskrif-
stofu Austurlands og starfsmenn Sjóvár-Almennra, í nýju húsnæði að
Miðvangi 1 á Egilsstöðum.
Héraðsþing HSK
s
Iþrótta-
maður árs-
ins valinn
Hellu - Fjöimenni var á 77. Hér-
aðsþingi HSK sem haldið var á
Laugalandi í Holtum fyrir stuttu.
Um 90 fulltrúar frá 40 aðildarfé-
lögum HSK og 2 sérráðum sam-
bandsins mættu á þingið auk
gesta og starfsmanna þingsins.
Á þinginu var lögð fram 80
blaðsíðna skýrsla um starfsemi
Héraðssambandsins Skarphéðins
(HSK) á liðnu ári og urðu nokkr-
ar umræður um starf hreyfingar-
innar á liðnu ári, enda starfið
víða þróttmikið. Á þinginu var
fjallað um fjölmörg mál sem
framundan eru, en alls voru 18
tillögur samþykktar og ýmis mál
rædd í nefndum þingsins. M.a.
var lögð fram tillaga um að
sækja um að Landsmót ung-
mennafélaganna verði haldið í
Árborg árið 2004 eða 2007.
íþróttamaður ársins 1998
Fjölmörg verðlaun voru veitt á
þinginu til einstakra félags-
manna fyrir góðan árangur á ár-
inu en 10 íþróttamenn voru til-
nefndir til íþróttamanns ársins.
Efstur með 140 stig var fijálsí-
þróttamaðurinn Magnús Aron
Hallgrímsson úr Umf. Selfoss.
Hann er 22 ára kringlukastari og
einn af afreksmönnum framtíð-
arinnar í frjálsum íþróttum.
Hann er fimmti Islendingurinn í
sögunni sem kastað hefur
kringlu yfir 60 metra og jafn-
framt sá yngsti. Magnús kastaði
lengst 60,62 metra á sfðasta
keppnistímabili, sem er aðeins 38
cm frá lágmarki á Evrópumeist-
aramótið í Búdapest. Magnús
varð Norðurlandameistari í
flokki unglinga 22 ára og yngri í
Finnlandi sl. sumar og sýndi þar
með að hann er langbesti
kringlukastarinn í sínum aldurs-
flokki á Norðurlöndum.
Egilsstaðir - Sjóvá-Almennar hafa
flutt í nýtt húsnæði að Miðvangi 1 á
Egilsstöðum sem hefur fengið nafnið
Nían. Heigi Kjærnested umboðsmað-
ur Sjóvár-Almennra á Egilsstöðum
hefur tekið við sem svæðisstjóri
tryggingafélagsins á Austurlandi.
Auk þess að reka skrifstofu Sjóvár-
Aimennra hefur hann í félagi við
Hannibal Guðmundsson stofnað
Ferðaskrifstofu Austurlands sem
hefur aðsetur í sama húsnæði. Þeir
selja flugfarseðla bæði innanlands og
í ferðir um ajlan heim. Þeir hafa um-
boð fyrir Úrval-Útsýn, Flugleiðir,
Flugfélag íslands, Islandsflug og
Ferðamiðstöð Austuriands.
Arshátíð Grunn-
skólans í Búðardal
Búðardal - Árshátíð Grunnskólans í
Búðardal var haldin sunnudaginn 28.
febrúar sl. Að venju komu allir nem-
endur skólans fram í ýmsum atriðum
og hefur árshátíð með þessu sniði ver-
ið haldin í áratugi í Búðardalsskóla.
Að árshátíðinni vinna kennarar
ásamt nemendum og er ánægjulegt að
sjá hversu eðlilegt nemendum er að
standa á sviði og leika eða syngja íyrir
fjölda manns.
Árshátíðinni lauk með kaffiveislu
þar sem foreldrar leggja til kökur og
kræsingar á veisluborðið.
Morgunblaðið/Kristjana Ágústsdóttir
Fjáröflunarskemmtun í
íþróttahúsinu á Höfn
KARLAKÓRINN Jökull efnir til
fjáröflunarskemmtunar í dag,
laugardag. í íþróttahúsinu á
Höfn. Sú skemmtun stendur írá
hádegi fram á kvöld og lýkur með
dansleik. Skemmtiatriði eru öll
heimatilbúin af kórmönnum. Kór-
inn efnir til þessara skemmtunar í
tilefni væntanlegrar geislaplötu
sem koma mun út í vor og söng-
ferðar til Italíu í júni, auk venju-
legra vortónieika á heimaslóðum.
Á geislaplötunni verða hefð-
bundin karlakórlög, hornfirsk lög
og auk þess fimm vinsæl lög eftir
Magnús Eiríksson í útsetningu
söngstjórans Jóhanns Moráveks,
en í lögum Magnúsar annast
hljómsveit Hauks Þorvaldssonar
undirleik, ásamt undirleikara
kórsins Guðlaugu Hestnes. Þetta
er í fyrsta skipti sem út kemur
hljómdiskur með Karlakórnum
Jökli en áður hefur hann átt
nokkur lög á plötum og diskum
með öðrum.
Ítalíuferð kórsins í júní mun
standa í tíu daga og verða tónleik-
ar á a.m.k. fjórum stöðum í ferð-
inni. Kórinn hefur ekki farið í
söngferð út fyrir landsteinana ár-
um saman.
Karlakórinn Jökull hefur nú
starfað óslitið í 26 ár og allan
þann tíma hefur hann gegnt stóru
hlutverki í menningarlífi Horn-
firðinga. Stjómandi karlakórsins
Jökuls er Jóhann Moravek, undir-
ieikari Guðlaug Hestnes og for-
maður Öm Amarson.