Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
I ___________________________________________ERLENT_______________________
Forystumenn þýzks viðskiptalífs ánægðir með mannaskiptin í fjármálaráðuneytinu
Gera sér vonir um breyt-
ingar á efnahagsstefnunni
Talsmenn SPD reyna
að slá á slíkar vonir
Bonn. Reuters.
TALSMENN þýzks viðskiptalífs
tóku fréttinni af afsögn Oskars
Lafontaines almennt fagnandi, og
sögðust í gær vonast til að með því
mætti gera ráð fyrir breyttum
áherzlum í efnahagsstefnu
Schröder-stjórnarinnar.
Gerhard Schröder kanzlari sagði
hins vegar á blaðamannafundi í gær,
að þótt Lafontaine hefði yíirgefið
stjórnina yrði hún óbreytt að öðru
leyti og hún hygðist sitja út allt fjög-
urra ára kjörtímabilið, sem eins og
kunnugt er hófst iyiir aðeins fimm
mánuðum tæpum.
Peter Struck, þingflokksformaður
SPD, sagði ráðhen-askiptin í fjár-
málaráðuneytinu ekki munu hafa
neina verulega stefnubreytingu í för
með sér í efnahagsmálum. „Það
væri rangt að reikna með því að
mannabreytingarnar færi stjórnina
nær atvinnurekendum,“ sagði
Struck í sjónvarpsviðtali. „Það er
hneykslanlegt hvernig hlakkar í
sumum forystumönnum viðskipta-
lífsins út af þessu,“ sagði hann.
Fyrirtækjarekendur bjartsýnni
Hagfræðingar segja hættuna á
kreppu í þýzku efnahagslifi hafa
minnkað og möguleikar á auknum
hagvexti hafa að þeirra mati aukizt
eftir afsögn Lafontaines. Þykir sér-
fræðingum í þýzku efnahagslífi lík-
legt að fyrirtækjarekendur í landinu
verði almennt bjartsýnni á betra
gengi eftir brotthvarf „rauða
Oskars" úr fjármálaráðuneytinu,
þar sem honum hafði með „key-
nesískri" ríkisafskiptastefnu sinni
tekizt að hleypa illu blóði í samskipti
ríkisstjórnarinnar við forystumenn
hagsmunasamtaka viðskiptalífsins.
Onnur þungvæg vandamál standa
þó eftir óleyst, sem Schröder-stjórn-
in verður að fá aðila vinnumarkaðar-
ins í lið með sér til að leysa. Stærst
þeirra er hið svokalla „bandalag í
þágu atvinnu" (Búndnis fúr Arbeit),
sem stjórnin hefur bundið miklar
vonir við að megi verða til að
minnka atvinnuleysið í landinu. En
viðræður um það hafa ekki gengið
vel fram að þessu; foi-ystumenn
samtaka atvinnurekenda voru
komnir upp á kant við stjórnina
einkum vegna óánægju þeirra með
skattbreytingaáform fjármálaráð-
herrans. Vonir standa því til að
þessar viðræður gangi betur að
Lafontaine gengnum.
Það sem viðskiptalífið mun þó
horfa mest til er hvort skattalaga-
pakkinn, sem Lafontaine gekk frá
Reuters
WOLFGANG Clement, forsætisráðherra Nordrhein-Westfalen, kemur
hér til aukafundar flokksstjórnar SPD í Bonn í gær, þar sem lýst var
yfir stuðningi við að Gerhard Schröder tæki við stjórn flokksins.
!
við lítinn fógnuð atvinnurekenda og
samþykktur var á dögunum í Sam-
bandsþinginu, neðri deild þýzka
þingsins, verði tekinn til endurskoð-
unar fyrst Lafontaine er farinn eða
hvort stjórnin muni halda fast við
allt sem þar var búið að ákveða.
Stefan Schneider, hagfræðingur
hjá Paribas í Frankfurt, benti á
þetta í samtali við Reuters. Tals-
menn stjórnarinnar hafa þó sagt, að
skattafrumvörpin verði ekki endur-
skoðuð, þau verði borin upp til af-
greiðslu í efri deild þingsins, Sam-
bandsráðinu, 16. marz eins og búið
var að ákveða.
Sumir hagfræðingar segja það
eitt, að Lafontaine sé ekki lengur við
stjórnvölinn í fjármálaráðuneytinu
auka tiltrú manna í viðskiptalífinu.
„Þetta gæti haft jákvæð áhrif á hag-
vöxt,“ hefur Reuters efth- Thomas
Meyer, aðalhagfræðingi fjármála-
fyrirtækisins Goldman Sachs i
Frankfurt. Fyirnefndur Schneider
sagðist ekki viss um að hagvöxtur
ykist eftir fráhvarf Lafontaines, en
að Þýzkaland hefði stigið skref í átt
frá efnahagslegri stöðnun.
Róttækar umbætur
enn nauðsynlegar
Holger Schmiedling, sérfræðing-
ur í evrópskum viðskiptamálum við L
Merrill Lynch-bankann í Lundún- j
um, tók undir það sjónarmið að J|
brotthvarf Lafontaines væru góðar p
fréttir fyrir viðskiptalífíð, en minnti
á að Schröder yrði að gjöra svo vel
að hrinda í framkvæmd róttækum
kerfisumbótum til að afstýra enn al-
varlegri efnahagsvandamálum þeg-
ar frá líður.
„Það má segja að Schröder sé í
bílstjórasætinu og hann vill fram-
fylgja viðskiptalífsvinsamlegri L
stefnu,“ sagði Schmiedling, „en ráð- I
ist hann ekki í kerfisumbætur verð- ^
ur hann í miklum vanda staddur
eftir ár eða svo.“ Mest aðkallandi
kerfisumbæturnar snúa að lækkun