Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 92
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RTTSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Viðbiinaður vegna snjóflóðahættu er á öllu norðanverðu landinu
Bjórkassar fundust í
Goðafossi í gær
Hátt í 50 íbúar burftu
1 *f ^ * i?
1 leitar arram
að yfírgefa heimili sín 0^kE?'
ÁKVEÐIÐ var í gærkvöldi að rýma hús á tiltekn-
um svæðum á Seyðisfirði, ísafirði og í Bolungarvík
vegna snjóflóðahættu. A þessum svæðum eru
samtals tíu íbúðarhús og þurftu 45-50 manns að
yfirgefa heimili sín. Viðvörunarástand var ákveðið
á öllu norðanverðu landinu, frá Vestfjörðum aust-
ur á Seyðisfjörð. Nokkuð stórt snjóflóð féll úr
Strengsgili á Siglufirði en nýbyggður snjóflóða-
varnargarður beindi því frá byggðinni.
I gærkvöldi var leiðindaveður á norðanverðu
landinu og slæm veðurspá. Snjóflóð hafa faliið að
undanförnu í nágrenni flestra bæja þar sem snjó-
wflóðahætta getm- orðið. Vegna þessara aðstæðna
ákvað Veðurstofa Islands, í samráði við viðkom-
andi almannavarnanefndir, að rýma hús í Bolung-
arvík, á Isafirði og Seyðisfirði, þar sem hætta er
talin á snjóflóðum.
í Bolungarvík er talin hætta á snjóflóðum úr
giljum Traðarhyrnu. Rýmd voru átta hús við Dís-
arland og Traðarland, efst í bænum. Þar búa lið-
lega 30 manns og fengu þeir gistingu hjá vinum og
ættingum og i gistiheimilinu Finnabæ. Að sögn
lögreglunnar gekk rýmingin vel en henni átti að
vera lokið fyrir klukkan 10 í gærkvöldi. A Isafirði
er talin hætta á snjóflóðum við Seljaland og
Grænagarð. A því svæði sem rýma átti er eitt
íbúðarhús, en íbúar þess eru ekki í bænum, og at-
vinnufyrirtæki. A Seyðisfirði er talin hætta á snjó-
flóðum úr fjallinu Bjólfi og þurfti að rýma far-
fuglaheimilið Hafólduna, eins og fyrr í vikunni.
Þar búa fjórtán manns, aðallega pólskt verkafólk.
Fólkið fékk húsaskjól annars staðar í bænum. Auk
þess er talin hætta í hesthúsahverfunum í Hnífs-
dal, Bolungarvík og á Olafsfirði.
Rétt eftir hádegið í gær féll snjóflóð úr
Strengsgili sem er ofan við syðsta hluta Siglu-
fjarðarbæjar. Guðmundur Guðlaugsson bæjar-
stjóri sagði í gær að flóðið væri nokkuð stórt en
tók fram að ekki væri búið að mæla það. Flóðið
lenti á nýjum snjóflóðavarnargarði sem ekki er
fullgerður, fór meðfram honum öllum og nokkra
metra fram hjá tá hans og yfir veginn. Guðmund-
ur sagði hugsanlegt að flóðið hefði lent á efstu
húsunum, ef garðsins hefði ekki notið við, en ekki
væri hægt að slá því föstu. Bæjarstjórinn sagðist
ánægður með hvað garðurinn stóð sig vel. „Við
höfðum mikla trú á garðinum en erum ánægðir
með að hafa fengið virkilega sönnun á gildi
hans,“ sagði Guðmundur. Umrætt svæði undir
Strengsgili hefur verið mesta snjóflóðahættu-
svæði staðarins.
V erðbréfaþing-
Viðskipti
^ stöðvuð með
SR-mjöl
LOKAÐ vai’ fyrir viðskipti með
hlutabréf SR-mjöls á Verðbréfaþingi
Islands þar til klukkan 15 í gær.
Lokunina má rekja ti) fréttar í
Morgunblaðinu um starfsemi félags-
ins.
í fréttatilkynningu frá Verðbréfa-
þingi segir að í ljósi fréttar Morgun-
blaðsins um lokun tveggja fiski-
mjölsverksmiðja SR-mjöls hafi þing-
ið átt von á því að félagið sendi VÞI
frétt til birtingar áður en viðskipti
hæfust kl. 10 í gærmorgun. Þegar
slík frétt hafði ekki borist laust fyrir
klukkan 10 lokaði þingið fyrir við-
jpj^kipti og óskaði eftir því við forráða-
menn félagsins að frétt yrði send til
þingsins.
Forráðamenn SR-mjöls höfnuðu
þeirri beiðni og vísuðu til þess að á
undanfömum vikum hefði hver frétt-
in rekið aðra um verðlækkanir á af-
urðum loðnuverksmiðja og mikla
söfnun á birgðum sem eru óseldar.
Að SR-mjöl hf. kjósi að hætta mót-
töku hráefnis í tveimur verksmiðjum
sínum af fimm við slíkar aðstæður er
að mati forsvarsmanna fyi-irtækisins
eðlileg, fyrirsjáanleg og sjálfsögð
viðbrögð og aðgerðin þess vegna
ekki þess eðlis að tilkynna þurfi hana
til Verðbréfaþings.
■ Lokað/22
Spúlað af þrótti
ÞAU eru mörg störfin sem til
falla. Eitt þeirra er að þrífa og
ganga frá tækjum og búnaði sem
tilheyrir undirstöðuatvinnugrein-
inni, fiskveiðum. Maðurinn gaf
sér engan tima til áð Iíta upp
þegar hann spúlaði af þrótti á
hafnarbakkanum nýverið.
Morgunblaðið/Þorkell
TOLLGÆSLAN í Reykjavík kyrr-
setti í gær Goðafoss, eitt skipa Eim-
skips, en leit að smyglvamingi hefur
staðið yfir í skipinu eftir að smygl
uppgötvaðist síðasthðinn mánudag.
Skipið átti að halda áleiðis til Banda-
ríkjanna í gær en ekki var vitað í
gærkvöld hversu lengi það yrði kyrr-
sett.
Sveinbjöm Guðmundsson, aðal-
deildarstjóri hjá Tollgæslunni, sagði
að í gær hefðu fundist 5-6 kassar af
bjór til viðbótar í skipinu en í fyrra-
dag fundust rúmlega 100 lítrar af
áfengi og 60 lengjur af vindlingum.
Áður höfðu fundist um 600 lítrar af
áfengi. Áfengið og vindlingamir
fundust í vélarrúmi en bjórinn var á
öðram stað í skipinu.
Fjórir til átta menn leita stöðugt í
skipinu og segir Sveinbjörn reynt að
hafa allt tiltækt lið í leit en henni
stjórnar Þórir Magnússon. Svein-
björn sagði ekki Ijóst í gærkvöld
hversu lengi kyrrsetja yrði skipið,
framhaldið réðist af því hvort og
hvað finnast kynni um borð og
hvernig rannsókn miðaði.
Hjörleifur Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri innanlandssviðs Eim-
skips, tjáði Morgunblaðinu að áætl-
un Goðafoss væri ekki í uppnámi
þótt brottför tefðist kannski um hálf-
an sólarhring. Kvaðst hann vona að
skipið gæti jafnvel siglt í nótt sem
leið. Tveir tæknimenn Eimskips eru
tollvörðum innan handar vegna leit-
arinnar. Hjörleifur sagði að búið
væri að manna skipið, enda væri
jafnan talsverður hópur skipverja fé-
lagsins í landi þar sem áhafnir skip-
anna sigldu yfirleitt tvo túra og ættu
frí þann þriðja.
Allir ellefu skipverjarnir vora úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til næst-
komandi mánudags og kærðu þeir
úrskurðinn til Hæstaréttar. Staðfesti
hann gæsluvarðhald yfir átta mönn-
um síðdegis í gær. Þrír mannanna
höfðu þá verið látnir lausir í gær þar
sem lögreglan taldi ekki þörf á varð-
haldi lengur.
Fjármálaráðherra vill breytingar á sjómannaafslætti
Utgerð greiði launa-
Loðnuvertíðin hefur valdið miklum vonbrigðum
Mmm verðmæti þrátt
fyrir meiri veiði
VETRARLOÐNUVERTIÐIN er
nú á síðasta snúningi en vertíðin
hefur valdið bæði sjómönnum og
framleiðendum verulegum von-
brigðum, þrátt fyrir að veiðin sé
nú þegar orðin nokkru meiri en á
alfri vetrai’vertíðinni á síðasta ári.
Slæmt ástand á mjöl- og lýsis-
mörkuðum og lélegt hráefni til
frystingar hafa valdið því að áætl-
að tekjutap sjávarútvegsins og
þjóðarbúsins í heild nemur um 2,4
milljörðum í samanburði við ver-
tíðina 1998 sem þó þótti í lakara
lagi. Aætlað útflutningsverðmæti
loðnuafurða á yfirstandandi vetr-
arvertíð nemur alls tæpum 4,4
milljörðum króna. Miðað við mark-
aðsv.erð, eins og það er í dag, nem-
ur verðmæti mjölframleiðslunnar
því um 2.950 milljónum ki'óna en
verðmæti lýsisframleiðsluvertíðar-
innar um 504 milljónum króna.
Verðmæti Japansloðnunnar á ver-
tíðinni er nær helmingi minna en á
síðustu vertíð.
■ Áætlað tekjutap/30
kostnað sjómanna
„ÉG TEL að þegar litið sé til sög-
unnar sé sjómannaafslátturinn nið-
urgreiðsla á útgerðarkostnaði í
landinu, þ.e.a.s. niðurgreiðsla á
launakostnaði útgerðarinnar. Mín
skoðun er sú að við eigum að reyna
að koma þeim kostnaði af ríkinu yf-
ir á launagreiðandann, þ.e. útgerð-
ina. Þetta verður ekki gert í einu
vetfangi miðað við hvemig mál
hafa þróast á löngum tíma í þessu
sambandi," sagði Geir H. Haarde
fjái-málaráðherra á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins.
Geir sagðist telja að sjómannaaf-
slátturinn ætti tæplega rétt á sér
lengur og það ætti að knýja út-
gerðina til að taka þetta á sig
Breytingin
gæti tekið
nokkur ár
smám saman þannig að sjómenn-
irnir yrðu skaðlausir eftir. Hann
sagðist hafa tekið eftir því að íyrir
nokkram misseram hefði Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélags-
ins, sagt að það væri sama hvaðan
gott kæmi og vísað til þess að það
skipti ekki máli hvort þetta væri
greitt af ríkinu í formi skattaaf-
sláttar eða af útgerðinni í formi
hærri launa.
„Ég er viss um að þeir sem vinna
við útgerð séu ekki sammála þessu
og vilji ekki taka við þessum
pakka, en á endanum hygg ég að
þeir verði samt að gera það. Ég
hygg að það muni taka nokkur ár
að breyta þessu og kallar vafalaust
á einhvem ágreining við útgerðina.
Ég vil bæta því við að afslátt
eins og þennan myndum við ekki
leggja á í dag. Hann er barn síns
tíma. Hann var réttlættur af okkar
flokksmönnum og öðram á for-
sendum þess tíma, en núna held ég
að við ættum að reyna að losa okk-
ur við þetta þó að það kalli á vissar
álögur á útgerðina."
■ Landsfundur/12,13,48,49