Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 6

Morgunblaðið - 03.05.2000, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fimm sækja um stöðu pró- fessors í frumkvöðla- fræði FIMM manns hafa sótt um prófessorsstöðu í frumkvöðla- og nýsköpunarfræði við við- skipta: og hagfræðideild Há- skóla íslands sem auglýst var í janúar. Umsóknarfrestur rann út í lok febrúar. Þetta er ný staða sem er fjármögnuð af Gunnari Björgvinssyni, sem rekur fyrirtæki með flugvélasölu í Lichtenstein. Ráðið verður í stöðuna til allt að þriggja ára. Fjórir umsækjendanna eru háskólakennarar en einn þeirra kemur úr atvinnulíf- inu. Þeir sem hafa sótt um stöðuna eru Arnar Bjarna- son, ívar Jónsson, Naurits Rossavik frá Noregi, Örn B. Böðvarsson, sem er banda- rískur ríkisborgari, og Örn D. Jónsson. Ingjaldur Hannibalsson, forseti viðskipta- og hag- fræðideildar, segir að styrk- urinn nemi 7,5 milljónum króna á ári. „Hugmyndin er sú að prófessorinn haldi nám- skeið um stofnun fyrirtækja og nýsköpun í fyrirtækjum sem geti tengst vöruþróun, upptöku nýrrar tækni og fleira í þeim dúr og þróun nýrra atvinnugreina. Hann á einnig að vinna að rannsókn- um á þessu sviði,“ segir Ingjaldur. Dómnefnd skipuð Skipuð hefur verið dóm- nefnd sem metur umsóknirn- ar og segir Ingjaldur að von- ast sé til þess að hún komist að niðurstöðu í þessum mán- uði og að prófessorinn geti hafið störf við Háskóla ís- lands næsta haust. „Oft hefur verið kvartað yf- ir því að viðskiptafræðingar séu ekki nógu duglegir að taka áhættu í atvinnurekstri. Vonandi tekst nýjum prófess- or að kveikja í einhverjum sem eru tilbúnir að reyna fyr- ir sér með sinn eigin atvinnu- rekstur. Einnig er mikilvægt að þeir sem við útskrifum og fara til starfa hjá fyrirtækj- um á íslandi hafi tilfinningu fyrir nýsköpun og stjórnunar- aðferðum sem henta til þess að þróa fyrirtæki og stofnanir áfram,“ segir Ingjaldur. Tæplega 2000 manns tóku þátt í 1. maí-hátíðahöldum í Reykjavík Morgunblaðið/Sverrir Göngumenn í kröfugöngu 1. maí báru að venju litríka félagsfána og spjöld með margvíslegum kröfum. Stjórnvöld hvött til að tryggja kaupmátt launa Á MILLI fimmtán hundruð og tvö þúsund manns tóku þátt í hátíðahöldum í Reykjavík í tilefni alþjóðlegs baráttudags verkalýðsins, 1. maí. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykja- vík, BSRB, Bandalag háskólamanna og Iðn- nemasamband íslands stóðu fyrir kröfugöngu í miðborginni og lauk henni með útifundi á Ing- ólfstorgi þar sem haldnar voru ræður og flutt skemmtiatriði. Fóru hátíðahöldin vel fram að sögn lögreglu. I ræðu sinni á Ingólfstorgi sagði Grétar Þor- steinsson, forseti Alþýðusambands Islands, m.a. að stjórnvöld yrðu að koma böndum á þensluna í þjóðfélaginu og benti hann á að ný- gerðir kjarasamningar hvíldu á þeirri forsendu að verðbólga lækkaði. „Stjórnvöld verða að stilla sér upp með launafólki og axla sinn hluta ábyrgðarinnar á því að tryggja kaupmátt launa og auka hann. Gerist það ekki mun enginn friður ríkja. Launafólk hefur sýnt vilja sinn í verki og nú á ríkisstjórnin leik,“ sagði Grétar. Grétar sagði einnig mikilvægt að sú launa- stefna yrði ríkjandi að sérstök hækkun lægstu launa nyti forgangs. Ríkisstjórnin hefði ekki verið tilbúin til að ganga að kröfum verkalýðs- hreyfingarinnar um bætt lífskjör aldraðra og öryrkja, en hún gæti ekki vikist undan því að bæta kjör þeirra sem einungis fengju lífeyri frá almannatryggingakerfinu. Ennfremur minnti Grétar á að enn stæðu nokkur aðildarfélaga ASI í kjaradeilum og að stundum dygðu ekki önnur úrræði en verkföll. Hann benti þó á að verkfallsréttinum fylgdi einnig sú skylda að standa við gerða samninga. „Hópar sem kjósa að umgangast friðarskyldu samþykktra kjarasamninga af gáleysi eru um leið að stefna í hættu því fjöreggi okkar sem samnings- og verkfallsrétturinn er. Við slíku megum við ekki,“ sagði forseti ASÍ m.a. í hátíð- arræðu sinni. BMVALLÁ Söludeild í Fomalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 Þakskífur með 25 ára ábyrgð fegra húsið þitt. Kynntu þér málið á www.bmvalla.is. www.bmvalla.is Haraldur á 167 km eftir ófarna LmsiHeSBSS .. Ljósmynd/Ingþór Bjarnason Haraldur Örn Olafsson við tjald sitt á ísnum. HARALDUR Örn Ólafsson norð- urpdlsfari á nú 167 km eftir ófarna að norðurpólnum en hann hefur gengið 605 km áleiðis að pólnum. Hann lagði að baki 17 km á mánudag og sagði færið hafa verið kaflaskipt þar sem skiptust á torfærir hryggir og sléttar flatir. Að hans sögn er lík- legt að færið verði nokkuð kafia- skipt það sem eftir lifir ferðar. Slæmt skyggni var á mánudag og nokkur snjókoma og frost um 6 stig. Haraldur sagði að færið hefði verið fremur þungt framan af degi en hefði þó batnað síðar um daginn. Þá braust sólin einnig fram í fyrsta skipti í nokkuð langan tíma og sagði Haraldur að það hefði verið mjög ánægjulegt. Tvær meinlausar vakir urðu á vegi Haralds á mánudag en á sunnudag urðu fimm vakir á vegi hans. ísinn er enn á hreyfingu vegna hafstrauma sem ollu því að tjald Haralds rak 1,8 km í fyrrinótt á ísnum. I gærmorgun var hann staddur á 88.29.25. gráðu norð- lægrar breiddar og 62.23.76. vestlægrar. Norðmenn komust á pólinn Norðmennirnir Torry Larsen og Rune Gjeldnes komust á norð- urpólinn á laugardag eftir 74 daga göngu frá Síberíu. Þeir fögnuðu áfanganum með því að gæða sér á súkkulaðiköku á póln- um að því er fram kemur á heimasíðu þeirra. Leiðangur þeirra er sjöundi norski leiðang- urinn sem kemst á pólinn en þeir eiga enn eftir ófarna 628 km til Ward Hunt-eyju. Þeir ætla að verða fyrstir til að ganga óstudd- ir þvert yfir Norður-íshafið. Níu leiðöngrum hefur mistekist það ætlunarverk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.