Skírnir - 01.08.1912, Qupperneq 6
198
Jörgen Pélíii Havatein.
prentun og gefa út, ef efni fengist til, islenzk fornrit.
Tókst Hálfdan skólameistari á hendur að búa undir prent-
un fyrsta ritið, Konungs-skuggsjá, og snúa um
leið á latínu, en Sören Pens kaupmaður gekst undir að
kosta útgáfuna og annast alt þar að lútandi. Varði hann
til þess fé allmiklu og fyrirhöfn eigi síður, því hann var
einráðinn í að vanda sem mest til útgáfunnar. Lét hann
prenta ritið í Sorey 1768 og fal Jóni Eiríkssyni á hendur
að rita formálann og sjá um prentunina og var það hvort-
tveggja prýðilega af hendi leyst, sem vænta mátti; hlaut
útgáfa þessi almenningslof að maklegleikum.
En því er þessa hér getið, að svo lítur út sem þeir
Hofsóskaupmenn hafi upp frá því verið þjóðlegri og ná-
tengdari íslendingum í mörgum greinum, en títt var um
aðra kaupmenn flesta hér á landi. Á síðustu árum kon-
ungsverzlunarinnar var Johan Ilöwisch undirkaupmaður i
Hofsós, og mun hann fyrst hafa verið þar undir yfirum-
sjón Pens þess, er áður getur. Er það eigi ósennilegt, að
Pens hafi innrætt honum eitthvað af ræktarþeli sínu til
íslendinga. Þegar konungsverzlunin var afnumin hér á landi
við árslok 1787, keypti Johan Höwisch sjálfur verzlunarhús-
in og rak eftir það verzlun á eigin kostnað um langt skeið.
Johan Höwisch kaupmaður átti systur þá, er hét Sidse
Katrine. Var hún gift timburmanni við Hólminn í Kaup-
mannahöfn, er Niels hét Jakobsson. Hafði hann í æsku
verið sjómaður og sendur til Indlands að leita sér atvinnu,
en staðfestist að lokum við Hólminn í Kaupmannahöfn,
sem fyr segir, og rak þar timburmannsiðn. Faðir Niels
þessa er kallaður Jakob Nielsson Heinson, og var borgari
í Kaupmannahöfn. Er það ætlun manna, að hann hafi
verið kominn beint af Jóni Heinesen, lögmanni Færeyinga
og hálfbróður sægarpsins alkunna, Magnúsar Heinesens, er
frægur var af svaðilförum sínum í norðurhöfum; var hann
af lífi tekinn í Kaupmannahöfn 1589 fyrir víkingsskap, og
þó ranglega, af rógi fjandmanna sinna1). Þau Niels Jak-
‘) Faðir þeirra bræðra var norskur stúdent, Hænir hafrekni, svo
nefndur af þvi að hann rak á báti frá Noregi til Færeyja.