Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 20

Skírnir - 01.08.1912, Page 20
210 Jörgen Pétnr Havstein. alt fé í þrem sýslum, heldur en að eiga það á hættu, að þetta faraldur breiddist út og yrði landlægt. Kvað hann vel rísandi undir því tjóni, er leiddi af niðurskurðinum í þessum hluta lands, og mætti vænta þess, að sýslurnar næðu sér íijótt aftur með tilstyrk og atbeina hinna hérað- anna, en næði sýkin að breiðast út um alt land, væri hvergi nýjan og heilbrigðan fjárstofn að fá, ef lækningar reyndust ónógar, eins og dæinin þóttu sanna. Hélt hann þessu mjög ákveðið fram og eindregið á fundinum, og tókst að lokum að fá amtmanninn í Vesturamtinu á sína skoðun. Sömdu þeir i sameiningu Frv. til tilskip- unar um ráðstafanir til þess að útrýma og varna útbreiðslu kláðafaraldursins. Var svo fyrir mælt í því frv., að almennur fjárskurður skyldi fram fara á næsta hausti í Árnes-, Gullbringu- og Kjósar- og Borgarfjarðarsýslum að afloknum fjallgöngum, og skyldi lokið í hverju bygðarlagi fyrir jólaföstu. Skyldi rjúfa fjárhúsin jafnskjótt og fénu var lógað og láta tóftirnar standa opnar um veturinn, en hreinsa vandlega viðu alla, annaðhvort i eldi, sjó eða söltu vatni og bræla veggina o. s. frv. En í hinum sýslunum skyldi sérhver fjáreigandi maður skyldur til, að tiltölu við fjáreign sína, að selja svo mikið af ám og lömbum að vorlagi, að hver búandi í þeim sýslum, er kláðafaraldrið hefir gengið yfir, gæti fengið helming þeirrar ærtölu, sem hann hefði talið fram á næstliðnu ári, og skyldu yfirvöldin annast um skifti fjár- ins eftir því hluifalli. Kostnaður allur við fjárflutningana skyldi greiddur úr jafnaðarsjóðum hlutaðeigandi amta. Að afloknum fjárskurði skyldi stiftamtmaður og amtmennirnir með tilstyrk sýslumanna og annara manna alúðlega gang- ast fyrir því, að safna gjöfum til hjálpar þeim, er hlotið hefðu tjón af kláðafaraldrinu. Skyldi kláðasýkin mót von berast til þeirra sýslna, er áður voru ómengaðar, átti undir eins að halda saman á þeim bæjum öllu fé í ströngu varð- haldi og skera niður tafarlaust að tilhlutun yfirvaldsins, gegn því að tjónið yrði bætt sumpart með niðurjöfnun á amtsbúa og sumpart með gjöfum.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.