Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 23

Skírnir - 01.08.1912, Page 23
Jörgen Pétur Havstein. 213 læknana, er bezt þættu henta, og voru það auðvitað saraa sem engar ráðstafanir, eða því sem næst, því stiftamtmað- ur var sjálfur meira en lítið hikandi og óákveðinn i mál- inu. Höfðu skipanir yfirvaldanna syðra jafnan verið mjög á reiki í þessu máli og litil framkvæmd fylgt, enda verið illa hlýtt. I Norðurumdæminu var þessu annan veg háttað. Þar voru ráðstafanir allar skýrar og einbeittar frá yfirvaldsins hálfu og samhuga áhugi að hlýðnast þeim og framfylgja frá almennings hálfu. Þegar um haustið 1857 skoraði amtmaður á fjárkláðanefndina í Hánavatnssýsiu, að koma í veg fyrir með öllu leyfilegu móti að sent yrði þá um haustið skurðarfé, sauðir eða annað fé, til Suðurlands, því bæði gæti það orðið hættulegt, ef eitthvað skyldi sleppa hjá rekstrarmönnum, og eins yrði það skaði fyrir Sunn- lendinga, ef skurðarfé kæmi að norðan, vegna þess að miklu geldfé mundi verða lógað á Suðurlandi um haustið. Þessi ráðstöfun vakti allmikla gremju syðra, og var í Þjóð- ólfi látið drjúgan yfir því, að Norðlendingar ættu að búa við rússneska harðstjórn og að þeir þyldu amtmanni sín- um slíkt gerræði; mundi engu yfirvaldi syðra koma til hug- ar að skipa slíkt, enda séu þar engir, er þyldu að sér væri boðið annað eins. Það var nú nokkuð satt í þessu. Sunnlendingar létu ekki bjóða sér að hlýðnast skipunum yfirvaldanna í þessu máli, og því fór sem fór, að alt Suð- urland var í voða. Norðlendingar sýndu aftur á móti þá þann þroska og þjóðlyndi, að þeir hlýðnuðust boðum, sem þeir sáu að voru sprottin af umhyggju fyrir liag og heill amtsbúa og voru nauðsynleg í almennings þarfir, þótt það bakaði þeim í svipinn óþægindi og fjárhagstjón, og svar- aði Norðri svo árásum Þjóðólfs á amtmann út af þessari ráðstöfun, að »ef allir aðrir gætu eins vel valdið sínum hluta af rangri og klaufalegri aðferð í því máli, þá þyrfti það ekki að leggjast þungt á almenning*1). Það reyndi þó fyrst að marki á dugnað amtmanns og ‘) Norðri Y. árg. bls. 109.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.