Skírnir - 01.08.1912, Page 31
Jörgen Pétur Havstein.
221
íslendinga að villimönnum i fjárkláðamálinu og forvígis-
mann þeirra í því máli að landráðamanni. Greri þetta
aldrei um heilt siðan og leiddi amtmanni embættisstöðu
hans á Islandi hin seinni árin, enda var stjórnin í Kaup-
mannahöfn honum jafnan andstæð og mótsnúin upp frá því.
IV.
Lítt var Havstein amtmaður riðinn við stjórnmála-
deilur þær, er hátt risu jafnan hér á Islandi um hans
daga, og leiddi þær hjá sér að mestu. Mun hann jafnan
hafa verið meira hneigður fyrir umboðsstörf og fram-
kvæmdir, en þingsetu og stjórnmálaumræður. Alls einu
sinni sat hann á þingi (1853), og var þá konungkjörinn.
Lenti honum þegar í þingbvrjun allsnarplega saman við
þann mann, er þá og lengi síðan var talinn forvigismað-
ur þingsins, Jón Sigurðsson. Var það út úr þingsetubanni
Jósefs læknis Skaftasonar. Hafði Havstein amtmaður
bannað honum að sitja á þingi eða vera svo lengi fjar-
verandi frá umdæmi því, er hann átti að gegna sem
læknir; hafði hann verið með konungsúrskurði settur til
að gegna öllum læknisstörfum í Húnavatnssýslu og nokkr-
um hluta Skagafjarðarsýslu. Jón Sigurðsson krafðist þess,
að amtmaður gerði þinginu fulla grein fyrir ástæðum sín-
um, en amtmaður neitaði og kvað þingið enga heimild
hafa til að vefengja yfirvaldaúrskurði, enda kaus málið
að öllu undan þess dómi. Kom þar máske fullmikið fram
i honum geðríkið, því víst mun hann hafa haft fyrir sér
góðar og gildar ástæður. Að öðru leyti tók hann sjaldan
til máls á þinginu, en þó raá geta þess til merkis um
frjálslyndi hans og óhlutdrægni í samanburði við suma
aðra þingmenn, að þegar til umræðu var málið um fjölg-
un verzlunarstaða og 4. konungkjörni þingmaður (Þórður
Jónassen) mótmælti því, að settur væri kaupstaður í Sauð-
árkrók, af þeim ástæðum að það mundi draga verzlun
frá Hofsósi, en þar með væri gengið of nærri rétti ein-