Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 45

Skírnir - 01.08.1912, Page 45
Úr ferðasögn. 236 auðgari lönd, þar sem hin heilsusamlega nekt er ekki eins nátengd hugmyndinni um þá hluti, sem ekki vilja votta viðurvi8t. Líka minnir þetta á það sem Tacitus (Þögðir) sagnaritari segir svo fróðlega um Geirmenn (Germani), að karlar og konur hafi þar leikið á sundi saman. En Hippo- lyte Taine, sem svo skemtilega hefir ritað frá Englandi, tekur víða fram, hvað mikið hafi haldist þar í landi forn- germanskt. Forn-norrænt held eg hefði verið réttara að segja, því að fiest bezta fólkið á Bretlandi hinu mikla, er af Norðmönnum og Dönum komið, og þar lifðu íþróttirn- ar norrænu helzt af miðaldirnar, sem nærri drápu þær annarstaðar, eins og hjá oss. III. Við Hyde Park og í grendinni eru bústaðir margs fyrirfólks, og eru þeir vanalegast líkir Álfhólunum í því, að þeir vekja meiri furðu að sjá þá innan en utan. Það er fyrirfólkið, aðallinn og auðmennirnir, sem í augum út- lendinga er enska þjóðin. En enski aðallinn er í því ólíkur aðli annara landa, að þar eru ekki til efnalitlir að- alsmenn, vegna þess að elzti sonur erfir jafnan aðalseign- ina, og enginn fær aðalstign nema stórauðugur sé; en það er líka nóg, og geta einkum þeir sem leggja fyrir sig ölgjörð ogslíkt, og svo auðvitað bankamenn, gjört sér vonir um aðalsupphefð. Er því auðskilið, að enski aðallinn muni vera nokkuð blandaður Gyðingum. Fyrirfólkið, »efstu tíu þúsundirnar«, nefnastá ensku »the society«, mannfélagið; hitt sem er ekki nema allur meginþorri þjóðarinnar, telst eiginlega ekki með mönnum. Hvergi sem eg hefi komið, er fyrirfólksdýrkunin jafnmikil og skriðsamleg eins og í þessu lýðfrjálsa landi, sem margir hafa svo rangar hug- myndir um. Hér í Danmörku er t. a. m. haldið, að Eng- lendingar séu Þjóðverjum fremri um flest, en það er öf- ugt, og væri munurinn þó meiri, ef ekki nyti við Norð- mannablóðsins á Englandi. En hörmung var það að Har- aldur Sigurðarson skyldi ekki vinna sigur við Stafnfurðu- bryggju forðum; þá væri betra mál en nú er á Englandi,

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.