Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1912, Side 57

Skírnir - 01.08.1912, Side 57
Ur ferðasögu. 247 er að segja: snillingar i að flytja ræður sínar, voru róm- sterkir og kunna vel áherzlu og alla ytri tilburði. En efnið var í rauninni magurt. Það leyndi sér ekki, að það eru ekki þessir menn, sem hugsa fyrir þjóðinni, þó að þeir hafi orð fyrir henni. Ræða Mc Kenna var öllu fróðlegri en Wyndhams, og viðkvæðið þetta: Hvar á þetta að lenda ? Hann sýndi fram á hvernig herflotakostn- aðurinn fer altaf vaxandi, með vaxandi hraða. Skipin eru altaf að verða dýrari; nú kostar fyrsta flokks bryn- skip um 40 miljónir króna (meir en þinghöllin, svo mikil sem hún er) og jafnframt verða skipin skammærri, skemra þangað til þau eru orðin úrelt og eru seld fyrir lítið verð, hjá því sem þau kostuðu upphaflega. Oft var Þýzkaland, »Djörmani«, eða hvernig í skrattanum þeim tekst að bera það fram, nefnt í þessum ræðum, og er Þýzkaland sú grýla, sem er höfð til að hleypa upp herkostnaðinum, og vilja Englendingar að flotinn enski standi á sporði flota tveggja þeirra þjóða, sem mestan herskipastól eiga. Héldu stjórnarandstæðingar því fram, að núverandi stjórn hugs- aði ekki um að fullnægja þeim kröfum, og stofnaði land- inu í voða, íhaldsblöðin veittu stjórnarflokknum jafnvel þungar ávítur fyrir það, að hann væri að hugsa um mann- félagsumbætur í stað herbúnaðar, og er skrítið, en ekki skemtilegt, að slíkt skuli verða geflð stjórn að sök á 20. öldinni. Ymsir halda að vofi yfir stríð milli Þjóðverja og Englendinga, og er ekki gott að vita nema þar logi upp úr. En þó mun ekki þurfa annað en aukna alþýðument- un til þess að taka fyrir ófrið milli Evrópu-þjóða. Þegar opnuðust augu alþýðu í öllum löndum, svo að hún sæi að styrjaldirnar eru engum til gagns nema nokkrum auð- mönnum, þá mundi hún alveg neita að gerast blótfórn á altari Mammons. Munu þá verða stórar umbætur á högum manna, er alt það vit, alt það fé og alt það starf, sem nú fer til herbúnaðar, beinist að mannfélagsþörfum. Annars er eg sífurðandi mig á því, að sjá ekki ritað meira um samband milli allra hvítra þjóða en gert er; því að það liggur alveg í augum uppi, að eftir ekki mjög marga

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.