Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 58

Skírnir - 01.08.1912, Page 58
248 Úr ferðaiöga. mannsaldra er bæði Evrópa og Ameríka undirlægjur gulra Asíuþjóða, ef ekki verður einhver mikil breyting á ýmsu frá því sem nú er. En eg hygg að gulir menn geti ekki komist eins langt eins og hvítir þar sem bezt hefir orðið, eins og var á Grikklandi, í Rómaveldi, í Noregi fyrir harðstjórnardaga Haralds hárfagra, og síðan á íslandi, ennþá betur, þó að þar yrði of skjótur endir á, eins og eg hefi lítillega vikið á í ritgerð minni í Skírní 1906, sem min8t hefir verið á hér að framan. Mjög miklu minna rúm er ætlað áheyrendum í brezka þinginu heldur en t. a. m. í ríkisdeginum þýzka, og kven- fólkið er látið vera sér og raunar í nokkurs konar búri, með ramlegum járnstöngum fyrir. Vantraustið á kven- fólki, þar sem til opinberra mála kemur, er eins og af þessu má sjá, afar megnt með Englendingum, enda ætlar kosningarétturinn að verða kvenþjóðinni mjög torsóttur i landi Stuarts Mills. Og að vísu er mér að virðast erfið- ara og erfiðara að sjá hvað rétt muni i þessum efnum. Þar er margs að gæta. Það má sjá af sögum og eins oft af því, sem ekki hefir verið í sögur fært — og raunar bezt, ef menn skildu það — að Hrappur og þaðan af miklu verri menn, geta fengið svo mikil yfirráð yfir ýmsu kvenfólki, að það mundi snúast á móti sínum eigin börn- um, hvað þá heldur skynsamlegum ástæðum. Jafnvel hjá mestu mentaþjóðum er mikill meiri hluti kvenfólksins ó- fáanlegur til annars, en bera á sig skraut og fatnað ýmis- konar, sem er því til lýta og jafnvel heilsuspillis, og helzt kemur manni til að minnast ýmsra villimannasiða, sem sumir virðast komnir alla leið aftan úr steinöldum. Ákaf- lega mikil og ábatasöm verzlun er bygð á ýmsri kven- legri heimsku, og virðist það regla, að sú vara sem ætl- uð er kvenfólki, sé fremur svikin en önnur. Mikið er líka í kaþólskum löndum og sjálfsagt líka nokkuð víðar, kvartað undan þeim tökum, sem klerkastéttin og einstakir klerkar geti náð á kvenfólkinu, og hefir það margs manns líf eitrað, og það einmitt beztu mannanna, því að ástin er manninum því nauðsynlegri til allra þrifa, sem hann stefnir

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.