Skírnir - 01.08.1912, Qupperneq 95
Útlendar fréttir
285
tanic<5, þótt vera ætti jafnvel betri en áöur voru dæmi til. Skipið
sökk um nóttina. Björgunarbáta hafði skipið ekki nema banda
nokkrum hluta þeirra rnanna, sem það flutti, og voru konur og
börn látin sitja fyrir þeim. Annars er hór eigi róm til að segja
nákvæmlega frá þessu slysi, og verður að vísa þar til fréttablaðanna.
Als fórust þarua 1653, en 705 komust af: tæp 500 af farþegum
og rúm 200 af skipshöfninni. Er þetta talið hið gífurlegasta sjó-
slys, sem sögur fari af. Þess er getið, að þegar fregnin barst um
skipið, að hætta væri á ferðum, tók hljóðfæraflokkur þess að leika
fjörug lög til þess að leiða athygli farþega frá hættunni. Og er
skipið sökk, ljek hann enska sálminn »Nearer my God to thee«
(Hærra, minn guð, til þfn).
Meðal merkra manna, er þarna fórust, má nefna hinn heims-
kunna enska blaðamann W. T. Stead, og miljónamennina amerfsku
Astor og I. Strauss. Annars var þar margt þektra manna, einkum
frá Amerfku. En skipshöfnin var mestmegnis frá Southamton.
Smith skipstjóri fórst, og fyrsti styrimaður, er uppi var á stjórn-
palli er áreksturinn varð, skaut sig uudir eins og hann sá, hvað
úr ætlaði að verða. Meðal þeirra, sem af komust, var I. B. Ismay,
forstjóri »White-Star«-línunnar, og hefir hann fengið ámæli út af
slysinu vegna þess, að honum er kent um, að farið var með fullri
ferð, þótt aðvaranir kæmu um, að leiðin væri óhrein. Óvíst er þó,
að þær ásakanir hafi við mikið að styðjast. En þegar í fyrstu ferð
átti þetta stóra og skrautlega skip að sýna sig í því, að það þyrfti
skemmri tíma til ferðarinnar yfir hafið en önnur skip, því metnað-
ur er afarmikill um þetta milli gufuskipafólaganna, sem ferðunum
halda uppi.
Senatið í Washington kaus nefnd manna til þess að rannsaka,
hvernig í þessu slysi lægi. Var það löng rannsókn, og lagði nefndin
farbann fyrir ýmsa af þeim sem af komust, þar á meðal Ismay
línuforstjóra, er þeir voru komnir á land í New-York. Hefir nefnd
sú felt harða dóma bæði um björgunartækin á »Titanic« og um
stjórnina þar, er slysið vildi til. En Englendingar bregða þeim,
sem fyrir þeirri rannsókn Btóðu, um fákunnáttu í sjómensku, þykir
nefndin hafa verið harðdræg í framkomu gegn þeim, sem af kom-
ust, og telja dóma hennar ekki ábyggilega. Sjálfir hafa þeir skipað
aðra nefnd til þess að segja álit sitt um slysið og er Mersey lávarð-
ur, merkur maður og vel kunnugur slikum sökum, formaður henn-
ar. En álit þeirrar nefndar er enn eigi komið fram.