Skírnir - 01.08.1912, Síða 96
286
Útlendar fréttir.
William Thomas Stead var svo merkur maður og áhrifamik-
ill, að hans verður að minnast nánar en gert er hór að framan.
Hann var liðlega sextugur að aldri, fœddur 1849, prestssonur, og
fókst í æsku við verzlnn < Newcastle. En snemma fór hann þó að
gefa sig við blaðamensku, og frá 1883—89 var hann aðalritstjóri
blaðsins »Pall Mall Gazette« í Lundúnum. Á þeim árum verður
hann fyrst nafnkunnur, og er sagt, að hann hafi þá tekið upp ýmsa
nýbreytni í blaðamenskunni, er aðrir tóku síðan smátt og smátt
eftir. Siðan stofuaði hann tímaritið »Review of Reviews«, sem varð
mjög víðlesið og áhrifamikið, eins og kunnugt er, og var hann rit
stjóri þess til dauðadags. Mjög mikla athygli vakti rit, sem hann
gaf út meðan hann var ritstjóri »Pall Mall Gazette«, um BÍðspill-
inguna í Lundúnura, og var hann fyrii það dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi, en bókin varð samt orsók til nyrrar löggjafar um þau efni,
sem hún vakti athygli á. »Ef Kristur kæmi til Chicago« beitir
önnur bók eftir hann, sem út kom 1903 og vakti þá mikið umtal
er það einnig ádeilurit um siðferði. Stead var mjög víðförull. Hann
var friðarpostuli mikill og barðist ákaft, gegn Búastríðinu. A s<ð-
ustu árum var hann andatrúármaður og ritaði »ósjálfrátt«. Hann
stofnaði þá andaskrifstofu < Lundúnum, »Skrifstofu JúKu«, er átti
að vera sambandsliður milli andaheimsins og mannheimsins, og gátu
menn fengið að tala þar við framliðna kunningja sína.
August Strindberg. Sænska stórskáldið August Strindberg er
nýlega dáið. Strindberg hafði lengi verið þungt haldinn af veikind-
um og andaðist á heimili sínu < Stokkhólmi 14. maí, 63 ára gam-
all, fæddur < Stokkhólmi 22. jan. 1849. Hann var svo fjölhæfur
rithöfundur, að fá dæmi eru til annars eins. í öllum greinum
skáldskaparins hefir hann ritað meira og minna, en þar að auki
hefir hann fengist við vfsindastörf, sögu og málfræði, efnafræði o. fl.
Við blaðamensku hefir hann einnig fengist. Líka við málaralist;
hafði ofan af fyrir sór með henni stundum, er hann dvaldi erlendis.
í skáldskapnum varð Strindberg brautryðjandi < Sv<þjóð. Fyrstu
skáldrit hans vöktu þar mikinn óróa meðal bókmentamanna: »Röda
rummet«, »Máster 01af«, »Nya riket« o. fl. Hann var þá boðberi
virkileikastefnunnar. En síðan hefir hann hvarflað < ýmsar áttir <
skáldskap nínum, þv< hvergi hefir hann verið við eina fjölina feld-
ur. Og jafnan hefir hann átt < stríði og deilum, og oft átt örðugt
uppdráttar. Um nokkur ár var hann taliun geðveikur. Hann var
um eitt skeið aðstoðarbókavörður < Stokkhólmi (1874—82). Slðan